Heimilisritið - 01.06.1952, Blaðsíða 6

Heimilisritið - 01.06.1952, Blaðsíða 6
byrjaðir að vinna hér? spurði pilturinn. Og hversvegna fórstu að vinna hér? Thja, hversvegna? Já, það er nú það. Hversvegna er lífið ekki snurðulaus hringur, ha, segðu mér það? Hversvegna eru allir þessir hnökrar á bláþræði mann- lífsins? Og hversvegna er ekki hægt að mjakast krókalaust með þennan líkama, sem guð hefur skapað okkur 1? Af hverju ertu að rausa þetta, hreytti pilturinn út úr sér. Hon- um kom á ný til hugar að flytja sig, en hætti aftur við það. Ég var að spyrja þig hversvegna þú hefðir farið að vinna hér. Jájá, ég heyrði til þín, dreng- ur minn. En ég hef verið að hugsa svo margt í dag. Mér voru færðar fréttir í dag, mikil tíð- indi. Nú, annars eru ástæður fyrir því, að ég fór að vinna hér. Gamli maðurinn þagnaði eins- og hann vseri að rifja upp fyrir sér eitthvað, sem lá grafið í for- tíðinni. Pilturinn varð ánægðari á svipinn. Ef til vill var eitthvað púður í sögu karlsins. Viltu ekki «egja mér frá því, Bráinn? spurði hann og hag- ræddi sér á pokahrúgunni. Jú, sagði maðurinn og brá fyr- ir bliki í augum hans. Drengur minn, allt á sína sögu og hver saga er fædd af lífinu. Mundu það og þá mun þér margt verða ljósara í þessu lífi, því það sem gefur lífinu gildi er þekking á því, vitundin um mátt þess og tilbrigði. Annars hefst hin gild- andi saga mín ekki fyrr en ég kynntist stúlkunni minni. Þá var ég sex ára gamall. ÞEGAR VORIÐ BLIKAR við hreinleika himinsins, sem spegl. ast 1 vötnunum, hefst saga mín með ást minni. — Þessi litla stúlka var jafnaldra mín. Við lékum okkur saman öll æskuár- in. Við leiddumst um hagann og fórum til berja á sumrin. Hríðar- veður vetrarins voru það eina, sem gat aðskilið okkur. Já, slík- ar voru unaðsstundir lítils drengs, sem þótti vænt um leik- systur sína.-----Hún hét Hug- rún og var björt einsog mjöllin, en heit og blíð einsog sumarið. Feður okkar voru miðlungsgild- ir bændur, miklir vinir og létu sér annt um hvorn annan og hvors annars hag. En um mæður okkar gegndi öðru máli. Þær voru eins ólíkar og dagurinn og nóttin. Móðir mín hafði mikinn áhuga á búskap og heimilisstörf- um, enda átti hún fyrirmyndar heimili. En móðir Hugrúnar var ofsatrúarmanneskja, og sinnti lítt búskap; heimili hennar var líka ekki eins vistlegt eða þrifa. 4 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.