Heimilisritið - 01.06.1952, Blaðsíða 56
sem gull í Atlavík.
Og fljótsins svanir svcipast
í sólarlagsins eld.
Og hlæjandi, syngjandi, frelsinu
fagnandi
fylgjumst við burtu það kveld.
Ur Hallormsstaðaskógi
ber angan enn í dag.
Og síðan hefur sungið
í sál mér þetta lag.
Því okkar kðna ótta
var engri nóttu lík.
Og ennþá lifir í minningu minni
sú niynd úr Atlavík.
SAUMAKONU-VALSINN
Lag: Jón Jónsson frá Hvanná
Texti: HreiSar E. Geirdal
Þegar mína ástarsöngva samdi ég
um þig,
saumavélin ennþá braðar vann.
Seinast þegar komstu bér um kvöld
að finna mig,
kossinn þinn á vörum mínum brann.
Þó að kaldir stormar lífsins blási
móti mér,
mun ég aldrei, aldrei gleyma þér.
Ef ég merki fótatak þitt, hjartað hraðar
slær,
þá hrópa ég: Ó, kontdu! — komdu nær!
ÆSKUMINNING
Lag: Agúst Pétursson — Texti J. J.
Manstu gamlar æskuástarstundir?
Yndislegt var þá að vera til,
— í litla kofann blómabrekku undir,
bunulækinn upp við hamragil?
Um sumarkvöld við sátum þar
og undum,
um sólarlag í blíðum sunnanþey, —
og litla blómið, fagra, cr við fundum
í fjóluhvammi, það var Gleym-mér-ei.
LÍFSGLEÐI NJÓTTU
Texti: Kristján frá Djópalæk
Til hvers er að vera ungur og elska
lífið heitt,
cf einskis njóta megum við af því?
Við hristum af oss drungann, þegar
dimma úti fer
og dönsum þar til sólin rís við ský.
Og ungar stúlkur munu kunna að meta
f) O
okkar þrek,
og máske biðja þær um samfylgd heim,
og þegar nóttin landið okkar vefur
rökkurvoð
og veginn líka, segir fátt af tveim.
Þú veizt, að okkar ltf er stutt og Iöngum
fullt af sorg,
og langt á milli bæja þar í sveit,
sem gleðtn býr og kvöldin ent kvik
af ærslaþrám.
Nú komum við í ævintýralcit.
ELSKAR ÞÚ MIG?
Lag og texti: Steingrimur Sigfiísson
Hún: Elskar þú mig?
Hann: Já.
Hún: Segðu mér aftur. Elskarðu mig?
Hann: Já.
Hún: Segðu það aftur. Elskarðu mig?
Hann: Já, alltaf ég elska þig.
Elskar þú mig?
Hún: Já.
Hann: Segðu það aftur. Elskarðu mig?
Hún: Já.
Hann: Segðu það aftur. Elskarðu mig?
Hún: Já, alltaf ég elska þig.
Bæði: Þá skulum við eyða ævinni í það
sem clskendur jafnan hafast að:
Dansa og syngja um dægrin löng,
dásama allt með gleðisöng.
Elskarðu mig? Já, segðu það aftur.
Eiskarðu mig? Já. Segðu það aftur.
Elskarðu ntig? Já, alltaf ég elska þig.
54
HEIMILISRITIÐ