Heimilisritið - 01.06.1952, Page 7

Heimilisritið - 01.06.1952, Page 7
legt og heimili okkar. Nei, það var það ekki. — En segðu mér, drengur, spurði gamli maðurinn eftir andartaks þögn, hefur þú nokkurntíma átt heima 1 sveit? Nei. Þá þekkir þu ekki landið þitt, veslings drengur, og ég get aldrei lýst því fyrir þér með neinum orðum hvernig það er að sjá og finna landið sitt, svo þú getir skynjað þó ekki væri nema lítinn hluta af þeirri dýrð, sem í því er fólgin. Þar — í sveitinni — er það háleitasta, sem ég veit; þar er heilagleikinn, sem býr í sjálfum þér — og öllu lífinu. Þar er náttúran: fjöllin, sem um- kringja dalinn þinn, hólarnir og hæðirnar, mosavaxnar þúfurnar og græn grösin, sem bylgjast fyrir andvaranum, fuglarnir, sem fljúga fyrir ofan þig og syngja um sumardýrðina. Það er þetta og ótalmargt fleira, sem kemur þér til að þekkja sjálfan þig og þakka það, að þú skulir eiga þetta land einsog landið á þig. Og minningin um þetta vermir hjarta þitt ævinlega. Jafnvel mitt gamla hjarta ham- ast einsog hjarta ástfangins ung- lings, þegar ég segi þér frá þess- um mesta heilagleika hvers lands og hverrar þjóðar. — En drengur minn, ég fékk dapurlegar fréttir í dag. Maður. inn með ljáinn fór um hinn gras- frjóa völl lífsins og hjó: ljár nam við bein. ... Pilturinn sat þögull undir tali mannsins, en þegar hann tók sér andartaks málhvíld, notaði pilt- urinn tækifærið og sagði óþolin- móðlega: Jæja, Bráinn, áfram með sög- una. Með söguna, endurtók Bráinn. Er þetta saga? Nei, lagsmaður, reyndar er það ekki saga. Ég geng aðeins um haga lífsins og tíni upp lagðana. Það eru lagð- ar, sem lífið hefur veitt mér af gnægð sinni, — hefur skilið eft- ir á víð og dreif svo maðurinn geti gengið um hagann og hirt þá, já, látið í poka og geymt til kaupstaðarferðarinnar miklu, sem fyrir öllum liggur að fara. Rétt einsog fyrir löngu, þegar ég fór um hagann og hélt í litla telpuhönd og fann manndóminn samlagast blóði mínu. JÆJA; DRENGUR MINN, nema það, að eitt sinn sátum við á bæjargilsbakkanum og hlust. uðum á hjal lækjarins. Á engj- unum stóðu karlmennirnir að slætti. í fjarlægðinni virtust þessir menn, sem annars voru svo tröllauknir vexti í okkar augum0 vera einsog smávaxnir dvergar. Það glampaði á ljáina, JÚNÍ, 1952 5

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.