Heimilisritið - 01.06.1952, Side 11

Heimilisritið - 01.06.1952, Side 11
Ég fór hingað suður til sjávar, svarar hann eftir stutta þögn. Ég reri ásamt öðrum og sótti miðin. Þar dró ég fiska á öngul og drap. BRÁINN TÓK SÉR aftur nokkra málhvíld. Hann strauk fingrunum yfir hrjúft borð vél- arinnar og sópaði burt fiskflís- um sem þar voru. Fölgrátt and- lit hans var svipdapurt. Já, drengur minn, hélt hann áfram, auðvitað héldu dagarnir áfram að líða. En einn daginn — í nepju vetrarins — mætti ég ungri stúlku, sem var prests- systirin úr sveitinni minni fyrir norðan. Hún kvaðst eiga að spyrja mig, hvort ég væri orð- inn sterkur. Ég verð það, svaraði ég. Og þá var það, drengur minn, sem ég kom fyrst í þessa verksmiðju. Ég fékk vinnu hér við þessa vél. Vélin býr yfir feiknaafli og með nokkrum höggum mer hún sund- ur harðfiskinn. Mér var það ó- trúleg nautn að hlusta á þung högg hennar og sjá hamarinn falla niður á fiskinn og merja hann. Ég útskýri það ekki fyrir þér, hversvegna mér var það nautn, þú skilur það tæplega. Svo mætti ég prestssysturinni aftur og sagði henni, að nú réði ég yfir afli. Hún svaraði engu, en sagði mér, að á prestssetri fyrir norðan hefði ungbam prestshjónanna dáið, og sorgin hefði sezt að á heimilinu. Þá fór ég hingað drengur minn, hingað inn í verksmiðjuna og settist við þessa vél. Hádegis- verðarhléinu var lokið, og ég hóf vinnu mína á ný. En í stað þess að leggja harðann fiskinn undir hramm vélarinnar lagði ég vinstri hönd mína, og með jötunafli sínu kramdi hann sundur höndina. Það var mín tjáning til sorgarinnar. Aftur mætti ég prestssystur- inni. Hún spurði hvort ég væri giftur, og ég svaraði: það verð ég bráðum. Ég kvæntist síðan blindri stúlku, drengur minn, því hvernig gat ég átt konu, sem hefði getað séð í augum mér ástina til annarrar? En í morgun, vinur minn, í morgun fékk ég boð, sem mér voru flutt af miðaldra prests- systur. Hvílík tíðindi voru mér ekki færð! Á prestssetri. Fyrir norðan varð prestsfrúin fyrir ljá og beið bana af. Eitt sæti hér í heimi er autt, því — Ijár nam við bein. Þetta er ferðasaga mín, dreng- ur minn, sagði gamli maðurinn og dæsti við. Þessi lífsganga einnar sálar, sem lifði án and- JÚNÍ, 1952 9

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.