Heimilisritið - 01.06.1952, Page 43

Heimilisritið - 01.06.1952, Page 43
skrifa þau á daginn. Því eigin- maðurinn þarfnast konu, sem hann getur talað við — ekki konu, sem sífellt segir: iss!“ „Það er þá satt!“ sagði hún. „Að ég var ekki í eftirvinnu — já“. Hann leit á klukkuna. „En nú verð ég að komast af stað“. Og svo fór hann sína leið, brosandi út að' eyrum. ÞEGAR hann kom heim, var búið að leggja á kvöldverðar- borðið. Kanínusteik. María, sem var í sínum fínasta kjól, leit snöggvast upp. Hún var að skrifa bréf. Steve beit á vörina. Hún storkaði honum. Venjulega tók hún ekki til við skriftirnar fyrr en eftir kvöldverð. „Segðu mér, má þetta alls ekki bíða?“ Hún hristi höfuðið. „Mér finnst maður eigi að svara nafnlausum bréfum um hæl“. „Svara nafnlausum — —?“ Hann starði undrandi á hana. „Hvernig ætlarðu að fara að því, má ég spyrja?“ „Eg skal segja þér, ég veit, hver skrifaði bréfið. Heldurðu að allir séu jafn lélegir í réttrit- un og skrifi fylgja ypsilonlaust. Og þú tókst þessu líka áberandi rólega, þegar nafnlausa bréfið kom. Og svo hef ég fundið stræt- isvagnsmiðann í vasanum á regnkápunni þinni. Hugsa sér, að þú skvldir nenna alla þessa leið til að láta bréfið í póst. Hvers vegna endilega í þessu hverfi?“ „0, nafnlausir bréfritarar fara nú alltáf skrítilega að ráði sínu, þeirra vegir eru órannsakanlegir. En })ú hefur alveg unnið leik- inn“. sagði hann og hló. „Nei, það gerðir þú“. Brosandi rétti hún honum blað, sem á var skrifað: ,,Kœri Steve! Hér eftir skaltu fá helmingi meiri ást og helm- ingi fleiri kossa. Enga eftir- vinnu!“ „Sjáum til! Þetta líkar mér“, sagði hann hlæjandi. „Já, og svo hef ég ákveðið að klemma bréfaskriftirnar inn á milli matar- og kaffitíma". „Alveg afbragð!“ sagði hann og tók hana í fangið og lét hana detta á legubekkinn. „Það er nefnilega meiningin, að eiginmenn séu persónur, sem tekið sé allmikið tillit til. OG um kvöldið voru þau bæði í samræmi við 93. síðu — alveg fullkomin lijón. En það er ekki hægt að krefjast þess, að mann- eskjan geti verið fullkomin alla daga ársins. JÚNÍ, 1952 41

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.