Heimilisritið - 01.06.1952, Side 49

Heimilisritið - 01.06.1952, Side 49
Til vítis með fyrstu ferð Afar furðuleg smásaga eftir JOHN COLLIER LOUIS Thurslow hafði ákveð- ið að svipta sig lífinu, en hann áleit þó, að heppilegra væri að gera það í ró og næði og flana ekki að neinu. Hann leit í vesk- ið: Þar voru nokkur þúsund krónur. Gott, hugsaði hann, þá ætla ég að flytja úr þessari lé- legu íbúð og dvelja eina veru- lega ánægjulega viku í Muttons- gistihúsi. Ég ætla að njóta un- aðsemda lífsins einu sinni enn, áður en ég kveð allt saman. Hann leigði sér heila íbúð í gistihúsinu og lét sendisveininn hafa nóg að gera við að hlaupa smáerinda. Hann þurfti að fá rósir, o.g franskar sígarettur, til að minna sig á yndislegt gisti- hús á Signubökkum. Og þú get- ur verið viss um, að hann át og drakk ekki nema það allra bezta: eitt glas af þessu, annað af hinu; það var svo margt, sem hann þurfti að kveðja. Síðasta kvöldið hringdi hann til Seliu, hann langaði að heyra rödd hennar einu sinni enn. Hann þagði auðvitað, þó hann langaði til að segja: Þú ættir ekki að hrópa „halló“ í belg og biðu, heldur kveðja mig. En það hafði hún nú reyndar. gert fyrir nokkru síðan, af því þessi bölv- aði meðbiðill hafði komizt í spil- ið. Louis lagði frá sér símann og opnaði skúffu, þar sem hann hafði safnað allmiklum birgðum af veronaltöflum. Þetta er líklega heldur erfið- ur skammtur að taka í einu, hugsaði hann. Ég þóttist góður að vera ekki eins og þessir of- boðsfullu sjálfsmorðingjar, sem brenna upp innyfli sín með ein- hverjum hroðalegum vökva, sem þeir gleypa í sig, en nú finnst mér næstum ennþá ókurteis- legra að enda þessa yndislegu viku með tuttugu hörðum munn- fyllum og tuttugu gúlsopum af vatni, en svona er nú lífið. Ég ætla að taka það rólega. JÚNÍ, 1952 47

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.