Heimilisritið - 01.06.1952, Side 50

Heimilisritið - 01.06.1952, Side 50
Þess vegna raðaði hann töfl- unum fyrir framan sig, óskaði sjálfum sér til hamingju með fallega náttsloppinn sinn og stillti mynd af Seliu upp við vekjaraklukkuna. „Ég hef enga lyst, en ég neyði mig til að eta af tilliti til vina minna. Það er ekkert eins þreytandi og for- smáður elskhugi“. Með þessum orðum byrjaði hann þessa síð- ustu, léttu máltíð. Töflurnar voru ekki lengi að virka. Vinur vor lokaði augun- um, gætti þess að setja upp bros, sem smekkmaður gæti verið vel þekktur fyrir að finnast með að morgni, og bjó sig undir ferðina inn í dauðans skuggadal. FLUGIÐ var stutt og laggott. Hann kom hvergi við, og hann varð undrandi yfir að uppgötva, að það var alls ekki til neitt EKKERT, þó að maður væri ó- neitanlega dauður í glæsilegasta herbergi Muttonsgistihússins. „Hér er ég. Dauður. í Muttons- gistihúsi," sagði hann hissa. Hugsunin var svo nýstárleg, ' að hún kom honum til að spretta fram úr rúminu. Hann tók eftir því, að líkið lá kyrrt í rúminu, og hann var feginn að sjá, að brosið sat á sínum stað sem vera bar. Hann gekk að speglinum til að gá að, hvort andlitið væri jafn heillandi nú, en þegar hann leit í spegilinn, sá hann ekki neitt. En samt hafði hann ómót- mælanlega bæði handleggi og fætur, og hann fann, að hann gat hreyft augabrúnirnar á sinn venjulega hátt, og af því álykt- aði hann, að hann væri á marg- an hátt líkur sjálfum sér, en þó með öðru móti. „Ég er bara ósýnilegur,11 sagði hann, „og það getur haft sína kosti.“ Hann ásetti s^r að fara strax út til að njóta sín í þessu nýja ástandi. Hann gekk niður stig- ana fylgdist með gesti út um hringdyrnar og gekk síðan út Korkstræti. Þetta virtist vera rétt eftir miðnætti, hann sá lög- regluþjón, bíla og nokkra kven- menn, sem alls ekki tóku eftir honum. En hann hafði ekki gengið nema tuttugu metra, þegar grannur, dökkur herramaður kom út úr skugga við hús, gekk beint til hans og sagði: „Fjand- inn hirði yður, maður. Skárri er það tíminn, sem þér hafið þurft til þess arna!“ Louis varð dálítið hverft við að uppgötva, að hann væri ekki eins ósýnilegur og hann hafði haldið. Hann starði á gestinn og sá, að augu hans glóðu í myrkr- 48 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.