Heimilisritið - 01.10.1955, Side 22
blómabeðin fá reglubundin
mynztur, — eins er manneskj-
an ræktuð, þær verða ekki djúp-
særri við það, en þær fá á sig
snið.
Ungar stúlkur eru í klaustrum
unz þær giftast, og iðka guð-
hræðslu og hljóðfæraslátt á víxl.
Svo kemur brúðkaupið — og
lífið. Líf, sem eytt er 1 snyrtingu,
heimsóknir og samkvæmi. Til
þess að verjast leiða iðjuleysis-
ins fást þær dálítið við listir,
handavinnu og góðgerðastarf-
semi.
Fyrir hádegið tekur Rokoko-
daman á móti vinum sínum, um-
vafin léttum kniplingum. Stima-
mjúkir herrar fræða hana um
nýjungar frá hirðinni og úr borg-
arlífinu. Svo ríður hún út og
sezt að því loknu að miðdegis-
verði. Síðan fer hún í heimsókn-
ir og í tízku-, blóma-, skartgripa-
og ilmvatnsbúðir. Þegar degi
hallar er kominn tími til að fara
í gönguferðir með hákolluprúð-
um herrum, stundum eru þeir
líka ríðandi, en þær í vögnum,
á rauðhæluðum skóm.
En hámarkinu nær dagur Ro-
koko-dömunnar þó á haustin.
Þar koma hin ýmsu sjónarmið
fyrst fram. Sumar konurnar
safna um sig merkum andans
mönnum. Þó eru fleiri, sem hug
hafa á leikhúsmálum og leika
jafnvel sjálfar. Flestar hrífast
þær af glæstum sölum með ljóm-
andi ljósakrónum og umfangs-
miklum speglum, þar sem vínið
ólgar og dansinn dunar, en glað-
værir herrar hvísla ástarorðum
í fögur eyru broshýrra og prúð-
búinna hefðarkvenna.
Bókhneigðu frúrnar eru boð-
berar nýs tíma. En leikhúsið og
hirðin eru fegursta umgerðin um
Rokoko-tímabilið.
Skærasta stjarna Frakklands
var Adrienne Lecouvreur. Hún
var skarpgáfuð leikkona, fínleg
og sérkennileg í andlitsfari,
gáfulega eygð, með lítinn. vel
lagaðan munn. Hún hafði unnið
sig upp í að vera merkasta leik-
kona við Théatre Francais, og
á heimili hennar hittist merki-
legasta fólkið. „Ég ver þremur
fjórðungum af tíma mínum til
að gera það, sem mig langar ekki
til að gera,“ segir hún í sendi-
bréfi.
Hún er oft lasin, en svefnher-
bergi hennar er eins konar
dyngja, þar sem hún tekur á
móti gestum sínum. Flæmsk
teppi með ofnum mannamynd-
um þekja veggina. Auk stórrar
rekkju standa þarna lágur legu-
bekkur og nokkrir hægindastól-
ar, fóðraðir klæði með silfur-
eða gullblómum ofnum í. Aðrir
legubekkir eru þarna, klæddir
20
HEIMILISRITIÐ