Heimilisritið - 01.10.1955, Side 38
hvítu í blöðunum, að hún væri
aðalstjarnan og að Louise væri
búin að vera. . . . í þessari and-
ránni hugsaði hún aðeins um
blaðadómana.
— Mér þætti fróðlegt að vita
hvað blöðin segja, sagði hún
eins hirðuleysislega og hún gat.
— Þau segja áreiðanlega að
þú hafir átt kvöldið, fullyrti
ég-
Sylvía sneri sér aftur að
speglinum og kinkaði sigri hrós-
andi kolli til sjálfrar sín.
— Mér þætti gaman að sjá
svipinn á Louise þegar hún les
leikdómana. Hún verður áreið-
anlega . . .
Hún kingdi framhaldinu, því
í þessum svifum opnuðust dyrn-
ar og Louise kom inn með ljóm-
andi leiksviðsbros á vörum.
— Til hamingju, Sylvía! —
Hún þrýsti báðar hendur henn-
ar. — Þú varst stórglæsileg!
Sylvía endurgalt brosið:
— Og það segir þú, Louise.
Það var fallegt af þér! . . . En
það var óhugsandi annað en ég
sigraði með tilstyrk þínum og
hinna aðstoðarleikaranna!
Þau höfðu lyft henni til sig-
urs. Eins og hún orðaði það urðu
öll hlutverk aukahlutverk önn-
ur en hennar. Setningin kom
eins og hnefahögg framan í Lou-
ise. Ég sá að hún skildi hvað
undir bjó, en hún lét sér hvergii
bregða.
— Úr því leikstjórnin hefur
sett leikritið á svið með tveim
stjörnuhlutverkum er ekkert
eðlilegra en að sú þeirra, sem
nýtur mests álits, reyni að láta
hina stjörnuna ekki verða af-
skipta af sigrinum, sagði Louise.
— Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar, að á leiksviðinu sé
nauðsynlegt að kunna að fórna.
Þar, fremur en annars staðar,
ætti það lögmál alltaf að vera
haft í heiðri, að það er betra að>
gefa en þiggja.
— Hefurðu nokkra sérstaka
ástæðu til að fara með þetta boð-
orð fyrir mig í kvöld? spurði
Sylvía svo rólega, að mér rann
kalt vatn milli skinns og hör-
unds.
Louise greip rós, sem lá á
snyrtiborðinu, og þefaði af
henni.
— Nei, ég hef ekkert sérstakt
í huga. Ég sagði þetta bara af
því mér datt það í hug. . . . Bros
Louise gaf til kynna að hún var
fús til að sættast. — Hvers vegna
spyrðu?
— Af engri sérstakri ástæðu,
svaraði Sylvía og byrjaði að
mála á sér varirnar. — Eins og
ég sagði áðan finnst mér þið öll
hafa komið mjög vel fram við
mig á þessari frumsýningu. Ég
36
HEIMILISRITIÐ