Fréttatíminn - 12.10.2012, Side 4
Fundir og ráðstefnur
Veislusalurinn er vel tækjum búinn og er því tilvalinn
fyrir hvers kyns ráðstefnur og fundi, stóra sem smáa.
Í salnum er meðal annars hágæða hljóðkerfi, skjávarpi,
flettitafla og púlt. Starfsfólk okkar veitir þér ráðgjöf
varðandi veitingar og annað sem huga þarf að.
GLÆSILEGUR VEISLUSALUR!
Náttúruparadís í hjarta borgarinnar
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is sími 599 6660
Bandalag íslenskra skáta 100 ára
N okkur börn á leikskólaaldri slösuðust nýverið lítillega um borð í strætisvagni þegar bílstjóri nauðhemlaði. Barnahópurinn kastaðist til og
þurfti að flytja fimm þeirra til aðhlynningar á slysavarð-
stofu. Leikskólar notast oft við strætisvagna í vettvangs-
ferðum sínum, en vagnarnir eru undanskildir lögum
um öryggisbelti. Undanþága Strætó frá notkun öryggis-
búnaðarins gildir þar sem hraði er jafnan
lítill og farþegar fara í og úr ökutækinu með
stuttu millibili. Eða á höfuðborgarsvæðinu.
Mun strangari reglugerðir eru um viður-
kenndan skólaakstur og skólabíla. En slík-
um bílum er skylt að hafa sætisólar.
„Við erum að bíða eftir niðurstöðum
óháðs aðila, sem kannar slysið fyrir okk-
ur. Að því loknu verður tekin ákvörðun um
hvort við gerum einhverjar sérstakar ráð-
stafanir fyrir leikskólabörn, þó ég reikni nú
ekki með því,“ segir Reynir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Strætó bs, aðspurður um
hvort að gripið verði til sérstakra ráðstaf-
ana innan fyrirtækisins kjölfar slyssins á
leikskólabörnunum. Bílstjórinn nauðheml-
aði, barnahópurinn kastaðist til og þurfti að
flytja fimm barnanna til aðhlynningar á slysavarðstofu.
„Sem betur fer var þetta ekki jafn alvarlegt og látið var.
En slys engu að síður og slíkt lítum við alltaf alvarlegum
augum. Hvort að krafan um aukið öryggi á rétt á sér skal
ósagt látið. Ef setja ætti sætisólar í alla bíla hefði það
gríðarlegan kostnað í för með sér. Þá væri líka hægt að
taka mun færri farþega inn í hvern vagn fyrir sig, slíkt
myndi aldrei borga sig,“ segir Reynir og bætir við að ef
gera ætti ríkari kröfur um öryggi í strætó en gerðar eru
annars staðar í heiminum velti það á stjórnvöldum. „Það
eru þau sem setja lögin. En eins og er þá þykir ekki til-
efni til þess að endurskoða þau, tíðni slysa er mjög lág.“
Reynir segir að bílstjóranum sé mjög brugðið. „Bílstjór-
inn er mjög miður sín, hún á sjálf börn og barnabörn.“
Skrítið að pínulítil börn séu laus
Einar Magnús Magnússon, fjölmiðlafulltrúi Umferðar-
stofu, segir stofnunina ekki fara í felur
með viðhorf sitt til málsins. Hann segir
hagsmuni þjónustuaðila setta ofar öryggi
farþega. „Þetta er mjög vandmeðfarið
mál, þar sem strætó nýtur ákveðinnar
eftirgjafar frá öryggiskröfum, röksemd-
ir rekstrarins eru látnar vega töluvert
þyngra en ströngustu kröfur um öryggi
og það er reyndin víðast hvar erlendis.
Ástæða þess að fólk er laust í strætisvögn-
um byggist á þessum öru stoppum. Það
er samt skrítið að pínulítil börn séu laus
í strætó þegar krafan um öryggisbúnað
fyrir þau er svo sterk annars staðar í um-
ferðinni,“ segir hann og vísar til reglna
um notkun bílstóla í einkabílum og örygg-
isbelta í skólabifreiðum og rútum. „Okkur
á Umferðarstofu hugnast þetta fyrirkomulag ekki og
þetta er mál sem virkilega þarf að skoða. Best væri
ef að við gætum sett gott fordæmi í umferðalögum
varðandi öryggi almenningsamgangna sem löndin í
kringum okkur gætu litið til.“ Einar Magnús bætir við
að Umferðarstofa hyggist taka málið sérstaklega fyrir
og skoða ofan í kjölinn.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
OYSTER PERPETUAL DATEJUST II
Michelsen_255x50_E_0612.indd 1 01.06.12 07:21
Reglugerð 348/2007
5. gr.
Undanþága frá
notkun öryggisbeltis.
Ekki er skylt að nota
öryggisbelti í strætó
líkt og hér segir:
– Þegar ekið er í
atvinnuskyni þar sem
hraði er jafnan lítill
og fara þarf úr og í
ökutæki með stuttu
millibili.
Öryggi LeikskóLabÖrN í strætisvÖgNum
Bundin í skólabílum
– óbundin í strætó
Börn á leikskólaaldri slösuðust í strætisvagni sem var nauðhemlað. Umferðarstofa lýsir yfir
áhyggjum vegna öryggis barna í strætisvögnum: „Hagsmunir þjónustuaðila settir ofar öryggi
farþega.“ Framkvæmdastjóri Strætó segir málið leiðinlegt en ekki jafn alvarlegt og látið var.
Dagný Jónsdóttir, for-
stjóri Umferðarstofu,
vildi ekki tjá sig um málið
en benti á fjölmiðla-
fulltrúann,
Einar Magnús
Magnússon.
Hann segir að
Umferðarstofa
muni skoða
öryggisbúnað í
strætisvögnum
sérstaklega.
Leikskólabörn slösuðust
nýlega í strætisvagni sem
var nauðhemlað. Sætis-
belti eru ekki í strætis-
vögnum, ólíkt því sem er í
rútum og skólabílum.
Bandalag íslenskra skáta
fagnar 100 ára afmæli
um þessar mundir. Af því
tilefni efnir banda-
lagið til friðarþings nú
um helgina. Þar verður
boðið upp á 25 fyrirlestra,
alla helgina, sem munu
fjalla um frið í sinni víð-
ustu mynd. Boðið verður
upp á vinnusmiðjur og
tónleika að fyrirlestrum
loknum. Fyrirlesararnir
eiga það allir sammerkt
að hafa sýnt frið í verki,
hvort sem það er í einka-
lífi viðkomandi eða á
opinberum vettvangi.
Tilgangur þingsins er að
fyrirlestrarnir veiti þátt-
takendum friðarþingsins
sýn inn í flóru þeirra
verka sem geta leitt til
friðar. Hugmyndin er að
friðarþingið verði árlegur
viðburður sem mun koma
til með að efla markmið
skátahreyfingarinnar, sem
er að gera hvern og einn
að sjálfstæðum, virkum,
ábyrgum og hjálpsömum
einstaklingi í bræðralagi
manna um heim allan.
m a r k v i s s m e n n t u n
Skátastarf
veður FÖstudagur Laugardagur suNNudagur
Skýjað veður, en MiLt. víða væta
Þegar Líður á daginn og uM kvöLdið
HöfuðBorgarSvæðið: SkýJAð MEð
köFLUM og ÞUrrT FrAM á kvöLD.
aLLHvaSS vindur, en úrkoMuLítið.
HöfuðBorgarSvæðið: rigning FyrST
UM MorgUninn, En LéTTir SíðAn TiL.
Lægir aftur og víðaSt Bjartviðri á
Landinu.
HöfuðBorgarSvæðið: LéTTSkýJAð og
FrEMUr MiLT.
Mikið til þurr helgi
Segja má að október sé sá mánuður þegar
búast megi við hvað flestum úrkomudögum.
Skil fara vestur yfir landið aðfaranótt
laugardagsins með vætu víðast hvar, en
eftir það helst að mestu þurrt fram yfir
helgi. reikna má með strekkingi eða all-
hvössu á laguardag, en sú A-átt verður
þurr. Hæðarsvæði norður undan
tekur stjórnina og með því þurrt
loft og víðast verður sólríkt á
sunnudag. Hlýtt að deginum
en frost yfir nóttina.
7
5 7
6
8
9
7 6 5
8
6
4 5
3
7
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Leiðrétting
ranglega var farið með nafn dr. valdísar ingibjargar Jónsdóttur í síðasta tölublaði.
Einnig var auka degi bætt við ráðstefnu á hennar vegum. valdís hefur í áraraðir velt
fyrir sér orsökum og afleiðingu í tengslum milli hávaða og málþroska hjá börnum, ekki
rannsakað. Beðist er velvirðingar á rangfærslunum.
4 fréttir Helgin 12.-14. október 2012