Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 44
10 heimili Helgin 12.-14. október 2012
Fix Töframassinn
Hreinsar, fægir og verndar samtímis
Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Tengi - Melabúðin - Verkfæralagerinn - Eyjatölvur
Miðstöðin Vestmannaeyjum - Pottar og prik Akureyri - Rafsjá Sauðárkróki - Áfangar Keflavík
Skipavík Stykkishólmi - Nesbakki Neskaupsstað - Vélaleiga Húsavíkur - Verslanir Rönning
Litabúðin Ólafsvík - Tengi - Byggt og búið - SR byggingavörur Siglufirði - Núpur Ísafirði
Hentar vel til þrifa á blöndunartækjum, vöskum, ryðfríu stáli, áli, kopar,
messing, gleri, plasti, lökkuðum flötum, kristal, keramiki, postulíni o.fl.
Svampur
fylgir með
- Fitu- og kýsilleysandi
- Húðvænt
- Náttúrulegt
- Mjög drjúgt
Óskaþrif Hólmavík - Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.
H alldór Hjálmarsson húsgagnaarkitekt hann-aði stóllinn SKATA árið 1959. Stóllinn átti því 50 ára afmæli árið 2009. Tilvísun forms-
ins í fiskitegundina Skötu er augljós og þjóðleg en
fleira kemur til.
Enskt heiti skötu er „Ray“ en það voru einmitt
hjónin Charles og Ray Eames sem voru frum-
kvöðlar formbeygðra stóla. Hér er því
einnig tilvísun í nafnið Ray.
Formbeygðir stólar virðast ein-
faldir, ein skel, einhverskonar fætur
og úr verður stóll. Auðvitað er þessu
ekki svo farið. Það tók hönnuði og
verkfræðinga áratugi að finna ásætt-
anlega aðferð til að gera formbeygðan
stól. Mótið sem stóllinn er
beygður í er flókin og
nákvæm smíði. Því er
aðdáunarvert að Halldór
skyldi leggja í að smíða
slíkt mót, það hlýtur að
hafa tekið á og kostað
miklar vangaveltur.
Hugvitsamlega
hönnuð festing fóta
undir skelina á sér
sennilega ekki hlið-
stæðu – engin
skrúfa eða hlíf til
að hylja festingar
– einungis ein falleg festing úr mjúku gúmmíi. Allir
hlutar stólsins, formbeygð skelin, fætur og gúmmí-
festingar voru smíðaðir hér heima. Stóllinn SKATA
var framleiddur frá 1959 til 1973. Þá lagðist fram-
leiðslan af og því miður mun mótið hafa glatast. Það
hefði verið mikil fengur fyrir Hönnunarsafnið að
eignast það.
SKATA gekk í endurnýjun lífdaga þegar
Sólóhúsgögn hófu smíði hennar á ný
árið 2007. Þar er hún framleidd í
nokkrum viðartegundum og litum.
Í tilefni afmælisins voru smíðuð
50 tölusett eintök sem seld eru hjá
Hönnunarsafni Íslands.
Halldór Hjálmarsson (1927-2010) lærði
húsgagnasmíði á smíðastofu föður síns í
Reykjavík. Hann nam húsgagnahönnun
við listiðnaðarskólann í Kaupmanna-
höfn 1953-1956 og voru lærifeður hans
Poul Kjærholm, Hans J. Wegner og
Axel Bender Madsen. Að loknu námi
stofnaði hann sitt eigið húsgagna-
fyrirtæki en vann auk þess hjá
Húsameistara Reykjavíkur. Hús-
gögn Halldórs voru afar fínleg.
Meðal verka hans eru innrétting-
arnar á kaffihúsinu Mokka við
Skólavörðustíg.
Sturla Már Jónsson – honnunoghlutir.
blogspot.com
H eima hjá mér eru öll herbergi uppáhalds en borðstofan er sérstaklega í uppáhaldi, því hún er eitthvað svo snyrtileg akk-úrat núna. Á þessum stað er líka góður andi. Líklega kemur hann frá sérsmíðaða tekkskápnum sem prýðir borðstofuna en
hann hefur verið á sínum stað í meira en 50 ár. Þar sem vinnuherbergið
mitt er ekki alveg tilbúið sit ég oft þarna með tölvuna eða dagbókina
mína og skipulegg næstu skref í leik og starfi,“ segir Marta María Jónas-
dóttir, fréttastjóri dægurmála á mbl.is og ritstýra Smartlands.
„Borðstofuborðið er gamalt úr
palesander-viði. Ég var búin að láta
mig dreyma um það lengi þegar
það varð mitt. Vinkona mín keypti
það í Góða hirðinum fyrir nokkrum
árum og ég lét hana vita af því
strax að ef og þegar hún yrði leið
á því myndi ég gjarnan vilja kaupa
það af henni. Einn góðan veðurdag
hringdi hún og sagði að ég mætti
sækja borðið. Þegar við fluttum í
vor var ég efins um að borðið myndi
passa í þetta horn því ég varð
hrædd um að þetta yrði allsherjar
viðar-fyllirí ef ég myndi blanda
saman tekki og palesander. Um leið
og borðið lenti hjá tekkinu sá ég að
þessi sambúð yrði góð. Við borðið
er ég með bleikar sjöur úr Epal og
Eames-stóla úr Pennanum, ásamt
einum svörtum maur eftir Arne
Jacobsen,“ segir Marta María.
Fyrir ofan borðið hanga tvö PH-
ljós. „Við erum búin að eiga þessi
ljós í mörg ár en lengi vel voru þau á
sitt hvorum staðnum, eitt í borðstof-
unni og hitt í stofunni. Mér finnst
þessi ljós fara afar vel saman tvö í
hóp. Lagið á þeim er klassískt og
fallegt og tónar niður hippafílinginn
sem fylgir palesandernum.“
Mörtu Maríu finnst gaman að
raða saman ólíkum efnum, litum og
stíl. „Við vinkonurnar köllum þenn-
an stíl retró-glamúr enda finnst
mér gyllt og bleikt passa við allt. Ég get ekkert að þessu gert, ég hef alltaf
verið svona,“ segir hún og brosir.
Undir borðinu er svarthvít motta úr IKEA en mottan hefur verið ákaf-
lega áberandi í erlendum hönnunartímaritum síðustu misseri. „Þessi
motta er svolítið eins og bleiku sjöurnar og pallíettupúðarnir mínir, hún
passar við allt. Ég hef séð þessa mottu á mjög mínimalískum heimilum og
líka hjá fólki með franskan sveitastíl og hún er alltaf jafn falleg.“
Kolbrún Pálsdóttir
kolbrun@frettatiminn.is
Hönnun Íslensk Húsgögn
Skatan orðin klassísk
Hinn rúmlega hálfrar aldar gamli stóll Halldórs Hjálmarssonar,
Skata, er orðin klassísk, íslensk hönnun. Framleiðsla stólanna
hófst að nýju fyrir fimm árum en þá höfðu þeir verið ófáanlegt um
rúmlega þriggja áratuga skeið.
Heimili marta marÍa notar borðstofuna sem vinnuHerbergi
Bleikar sjöur í borðstofunni
Marta María flutti
í vor og er ánægð
með útkomuna
á nýja staðnum.
Ljósmynd Hari
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Bona Sprey Moppan
Nýtt á Íslandi
Gólfefnaval ehf • Vatnagarðar 14 • 104 Reykjavík • Sími 517 8000
Auðvelt að fylla á.
Rétt blönduð sápa.
Skilur ekki eftir ský á gólfi.
Hentar öllum gerðum af
viðargólfum, flísum og
gólfdúkum.
Takmarkar vatn á parketi.
Umhverfisvænt.
Ofnæmisprófað.
Yfir 1.500.000 stk seld í USA.
•
•
•
•
•
•
•
•