Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 28
ið er í lögum um ábyrgð og slíkt
heldur hver sinnir barnastarfi,
hver unglingastarfi og svo fram-
vegis. Ég gat ekki fallist á að við
færum á svig við lög í þessum
efnum en þetta endaði með að
biskup úrskurðaði um verkaskipt-
ingu okkar og hluti af þeirri lög-
bundnu ábyrgð sem ég hef á mínu
prestakalli var tekinn og settur
yfir til prestsins sem var mér til
aðstoðar. Þetta er ágreiningsmál
og ég tel að svona eigi þetta ekki
að vera. Það eigi bara að fara eftir
lögum og nú bíð ég eftir niður-
stöðu áfrýjunarnefndar Þjóð-
kirkjunnar.“
Gert að skila kirkjunni
Íhlutun biskups var síst til þess
fallin að leysa deiluna sem fór í
rembihnút. Í febrúar 2010 greindi
DV frá því að biskup hefði farið
formlega fram á að Kristinn gæfi
Selfosskirkju eftir og héldi sig í
sveitakirkjum sóknarinnar.
„Ég skil eiginlega ekkert í
þessu og er orðlaus. Ég fylgi
inn í sameininguna sem sóknar-
prestur, það liggur fyrir. Engu að
síður sendir sóknarnefndin kröfu
til biskups og biskup biður mig
síðan að nýr prestur sem valinn
yrði stjórni og ráði Selfosskirkju.
Það má segja að ég sé beðinn
um að hafa mig hægan og nýr
prestur yfirtaki alfarið starf mitt
í stærstu sókninni og höfuðstöð
prestakallsins. Það finnst mér
með ólíkindum,“ sagði Kristinn
við DV eftir að biskup setti honum
þessa kosti.
Kristinn segist hafa á tilfinn-
ingunni að þessar málalyktir hafi
verið fyrirfram ákveðnar. „Ég
man eftir fundi á Biskupsstofu
þar sem ég lýsti því yfir að þetta
stæðist ekki og ég gæti ekki sam-
þykkt þetta þar sem þetta færi
gegn lögum. Þá sagði ein góð
manneskja þar að það skipti ekki
máli vegna þess að þegar þar að
kæmi myndi biskup úrskurða um
að hafa þetta svona. Þannig að
þetta hefur greinilega verið lengi
í deiglunni.“
Kristinn bindur ákveðnar vonir
við að mál hans verði tekið öðr-
um tökum þar sem nýr biskup
er tekinn við. „Ég bíð náttúrlega
eftir úrskurði frá áfrýjunarnefnd
og hvernig sem sú niðurstaða
verður mun nýr biskup taka á
þessu máli. Ég er ekki að biðja
um neitt annað en að það sé farið
að lögum og reglum. Ég er ekki
að biðja um neina sérafgreiðslu.“
Kristinn segir að þetta hafi
tekið á sig og sporin hafi oft
verið þung þegar hann mætti
til vinnu á morgnana. „Þetta var
erfitt til að byrja með en ég varð
bara að halda áfram. Ég upplifði
það heldur ekki af hálfu sóknar-
barnanna að það væri verið að
ýta mér til hliðar. Alls ekki. Ég
er áfram sem hingað til prestur-
inn þeirra og á milli okkar ríkir
gagnkvæmt traust. Mér þykir
ákaflega vænt um Selfyssinga
og Flóamenn og ég hef aldrei
fundið neitt annað en velvilja og
allt það besta frá þeim. Ég hef
alltaf létt undir með þeim prest-
um sem hafa starfað þarna með
því að taka ýmsa þætti að mér,
sérstaklega sálgæsluna. En það
er mjög mikil eftirspurn eftir
þeirri þjónustu minni. Sálgæslan
er mikið áhugamál Kristins og
hann hefur sinnt henni af kappi.
„Sem sveitaprestur sinnti ég sál-
gæslu á öllu svæðinu og ég held
að þetta hafi þróast eðlilega og
vel og verið öllum til góðs.“
Ástríðufullur sálgæslu-
maður
Sálgæslan og fræði henni tengd
hafa löngum verið Kristni hug-
leikin og ef til vill kann það að
hljóma sérkennilega að prestur-
inn sem staðið hefur í deilum
við kirkjuyfirvöld árum saman
stundi háskólanám í sáttamiðlun
en sú er þó raunin. Kristinn vill
ekki ganga svo langt að segja að
hann hafi hrökklast í útlegð til
Kaupmannahafnar en hann sótti
um námsleyfi og veður í Dan-
mörku til næsta hausts.
„Ég var orðinn dálítið þreytt-
ur á þessu. Ég skal alveg viður-
kenna það. Síðan kemur líka inn
í þetta að ég hafði aldrei tekið
námsleyfi áður og ef ég ætlaði á
annað borð að gera það þá var nú
varla hægt að geyma það mikið
lengur.
Ég er að læra sáttamiðlun
við Háskólann í Kaupmanna-
höfn. Þetta gengur út á að fólk
getur valið á milli þess að leysa
úr ágreiningi sínum fyrir dómi Kristinn og Anna Margrét standa þétt saman og á meðan Anna Margrét starfaði á Grænlandi ræktuðu þau samband sitt á netinu.
28 viðtal Helgin 12.-14. október 2012