Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 26
Ranglæti í drottins nafni
Kristinn Ágúst Friðfinnsson, sóknarprestur í Selfossprestakalli, hefur staðið í ströngu um árabil en hann telur biskup
hafa farið gegn lögum þegar hluti af embættisskyldum hans var færður yfir á annan prest í sókninni. Á meðan hann
bíður niðurstöðu áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar stundar hann nám í sáttamiðlun við Kaupmannahafnarháskóla. Grímur
Hákonarson hefur gert heimildarmyndina Hreint hjarta um Kristin þar sem hann fylgdist meðal annars með prestinum við
sálgæslu á Selfossi og fjallar um þau áhrif sem deilan hefur haft á prestinn.
É g á erfitt með að átta mig á hvað hefur gerst bak við tjöldin. Ég verð að segja það, en ég held að meiningin hafi alltaf verið, alveg frá því áður en breytingin var
auglýst, að þetta yrði með þessum hætti,“ segir
Kristinn um deiluna sem rekja má til þess að Sel-
foss og nærsveitir voru sett undir eitt prestakall
á Kirkjuþingi 2009. „Þetta var gert þegar séra
Gunnar Björnsson hætti störfum en það er rúmlega
hundrað ára hefð fyrir því að nota tækifærið þegar
prestur hættir til þess að sameina sóknir og þá tek-
ur eftirsitjandi prestur við hinum hlutanum. Það er
ekki eins og mitt embætti hafi verið lagt niður en
þarna var kominn ungur maður, prestur frá Akur-
eyri, sem hafði leyst Gunnar af á meðan hann var
frá störfum. Ég hef grun um að hann hafi gert sér
vonir um að Selfosssókn yrði ekki sameinuð mínu
prestakalli strax og hann hefur kannski ætlað sér
að verða sóknarprestur en svo varð ekki.“
Prestarnir tveir náðu ekki samkomulagi um
verkaskiptingu og að lokum hlutaðist Karl Sigur-
björnsson biskup um málið. „Samkvæmt reglum
og lögum eiga sóknarprestur og prestur að semja
um verkaskiptingu sín á milli. Ekki það sem ákveð-
Kristinn Ágúst
Friðfinnsson
leggur stund á
nám í sáttamiðlun
í Kaupmannahöfn
og bíður þess að
deila hans um
verkaskiptingu í
prestakalli hans
verði til lykta
leidd. Ljósmynd/Hari
Framhald á
næstu opnu
26 viðtal Helgin 12.-14. október 2012