Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 47

Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 47
Hjarðmenn hins holdlega krafts M Með réttu hefðu meðlimir hljómsveitar- innar átt að fara að sofa um það leyti sem tónleikarnir hófust, klukkan ellefu að kvöldi. Þeir höfðu enda á orði í upp- hafsatriði sínu, í lagi strax á eftir kynn- ingarlaginu, að um lokalag væri að ræða. Þeir væru orðnir þreyttir og því væri mál að ganga til náða. Að því loknu myrkvaðist svið glæsihallarinnar Hörpu en við fyrstu ljósglætu örskömmu síðar upphófust rokktónleikar af kröftugustu gerð. Hljóm- sveit allra landsmanna og hjarðmenn hins holdlega krafts stóðu svo sannarlega undir nafni. Stuðmenn, sem byrjuðu brall sitt í Norðurkjallara MH fyrir árshátíð 1969, hafa sennilega aldrei verið betri en nú, þótt sextugir séu – eða þar um bil. Magn- aður kraftur þessarar eilífu unglinga- hljómsveitar kom glögglega í ljós á fernum tónleikum um síðustu helgi. Syfja var víðs fjarri, stuðið réð ríkjum á sviðinu ekki síður en á menntaskólaár- unum þegar pistilskrifarinn var samtíða forkólfum hljómsveitarinnar. Síðan hef ég fylgst með löngum ferli hennar, hléum og endurlífgunum. Full mikið er sagt að hún sé ódrepandi en lífseig er hún og varla á aðrar grúppur íslenskrar poppsögu hallað þótt því sé haldið fram að Stuðmenn séu vinsælasta hljómsveit landsins, fyrr og síðar, hæfileikabúnt sem stöðugt bætir sig. Kvikmynd Stuðmanna frá árinu 1982, Með allt á hreinu, skaut hljóm- sveitinni eftir- minni- lega í það toppsæti sem hljóm- sveitin hefur haldið síðan: Nú, þrjátíu árum síðar, er hvorki lát á sígildum lögum hljóm- sveitarinnar né tónlistar- mönnunum sjálfum og ferskleika þeirra. Um það geta þær þúsundir manna vitnað sem sóttu tónleika Stuðmanna um helgina. Tónleikarnir voru helgaðir téðri kvikmynd. Hún sló öll aðsóknarmet á sínum tíma og enn horfa ungir og aldnir á hana í heimahúsum, sér til andlegrar upplyftingar. Frægir frasar úr kvikmyndinni eru ekki síður á vörum ungs fólks en þeirra sem eldri eru: „Það verður engin fjandans rúta, það verður langferðabíll.“ Jafnvel sígildir málshættir breyttust varanlega: „Þú einblínir alltaf á flísina en tekur ekki notice af bjálkanum.“ Skyggnilýsingar hafa vart borið sitt barr eftir miðlun rótara hljómsveitarinar, Dúdda, í meðförum Eggerts Þorleifssonar, þar sem fleira kom fram en framliðnar persónur: „Svo er hér að lokum blátt reið- hjól. Kannast einhver við það? Lásinn er... humm... lásinn er inn út, inn inn út. Ég endurtek, inn út, inn inn út. Kannast ein- hver við það? Nei, það kannast enginn við það hér.“ Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleik- stjóri leyfði Stuðmönnum – og keppi- nautum þeirra í Gærunum (hin fornfræga kvennahljómsveit Grýlurnar) að leika af fingrum fram. Ærslin og gleðin við tökurnar skína í gegn. Slíkt verður varla endurtekið. Tónlistin er síðan kapítuli út af fyrir sig, hver melódían á fætur annarri er afrakstur þessa frjóa tímabils. Nýjar kynslóðir hafa tekið kvikmynd- inni fagnandi þótt full langt hafi kannski verið gengið um árið þegar vídeóspóla fylgdi hverjum seldum pylsupakka í Bón- us. Þannig fer maður ekki með bestu syni og dætur þjóðarinnar. Betra er að nefna rétti eftir skrautleg- um karakterum myndarinnar. Nú má til dæmis velja hamborgarann Sigurjón digra á Hamborgarafabrikku þeirra Simma og Jóa. Þann skapstygga húsvörð og gólf- bónara túlkaði Flosi heitinn Ólafsson með fágætum tilþrifum. Astraltertukubb má enn fremur fá hjá Tertugalleríi sama staðar, karamellutertu með pekanhnetum, valhnetum, mjólkursúkkulaði og hvítu súkkulaði. Trúlega er það bragðbetri upp- skrift en astraltertugubb það sem boðið var upp á í myndinni góðu þar sem úfó bar við himin og líktist ótrúlega jarðnesku fellihýsi. Stuðmenn hefðu tekið mynd af þeim fljúgandi diski en þeir höfðu engan kubb. Börn nútímans – og jafnvel þeir sem fullorðnir eru – þekkja ekki lengur kubb þeirrar gerðar. Það þarf að leita til jafn- aldra Stuðmanna svo menn átti sig á flas- skubbum instamatic-myndavéla þess tíma. Það var svolítil kaupstaðarlykt í loftinu á síðari tónleikum Stuðmanna á föstudags- kvöld. Af tómri tilhlökkun hafði hluti tón- leikagestanna ekki getað hamið sig. Það kom þó ekki að sök á því svæði sem við hjónakornin sátum. Menn voru bara glað- ir, dönsuðu og sungu með þessum hjarð- mönnum hins holdlega krafts. Einn gestur sat að vísu eftir í hléi, tveimur til þremur bekkjum fyrir aftan okkur, en hvað með Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i 11. - 13. okt. það. Hann sofnaði áreiðanlega hamingjusamur undir taktföstum slætti lagsins, Draumur okkar beggja, sem stofnendur Stuð- manna, Valgeir Guðjónsson og Jakob Frímann Magnússon, suðu saman í fyrrnefndum Norðurkjall- ara árið 1969. Engan sáum við æla og heyrðum heldur ekki sögur af slíku, ólíkt því sem tónlistar- páfinn doktor Gunni hafði eftir einhverjum á síðu sinni, þar sem sagði meðal annars um tónleikana sem við sátum þetta kvöld og haustnótt: „Nokkrar sögur heyrði ég af uppköstum gesta; bæði áttu þeir fyllstu að hafa gubbað á bak annarra gesta og líka var ælt fram af svölum á óheppna hátíðargesti fyrir neðan. Nokkrir skiluðu sér ekki inn aftur eftir hlé, heldur röngluðu ofurölvi um ganga og héldu kannski að þeir væru ennþá í Atlavík 1984.“ Þar vísar doktorinn í alræmda samkomu austur á Héraði þar sem ekki ófrægari maður en bítill- inn Ringo Starr var gestur Stuð- manna – og drakk víst eðalkoníak og blandaði með kóki. Dr. Gunni hefur að vísu þann fyrirvara í lok frásagnar sinnar að hann hafi ekki verið á þessum tilteknu hljómleikum Stuðmanna, heldur öðrum, og því megi vel vera að atburðalýsing sé vel ýkt. Hugsanleg æla, jafnvel astral- tertugubb í Hörpu, breytir þó engu um frammistöðu Stuð- manna. Þeir voru frábærir. Það verður stuð á fimmtugsafmæli unglingahljómsveitarinnar eftir örfá ár, hvort heldur hún var form- lega stofnuð í Norðurkjallara MH það sæla ár 1969 eða ári síðar. Helgin 12.-14. október 2012 viðhorf 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.