Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 40
Við sérhæfum okkur í framleiðslu á lengri og breiðari
parketplönkum. Beint frá verksmiðju – lægra verð.
Kíktu til okkar í Síðumúla 31 og skoðaðu úrvalið.
P
OK
KA
r
EIG
IN FRAMLEIðSLA
VERKSMIÐJAN
ARKET
GRANDplank
Lengri og breiðari parketplankar
S. 581 2220 • GSM. 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
Helgin 12.-14. október 2012
Hästens | Grensásvegi 3 | Sími 581 1006
Hästens eru umhverfisvæn sænsk hágæðarúm
sem hafa verið framleidd frá árinu 1852.
Komdu og finndu muninn.
Kraum vinsælustu vörurnar
Fjölbreytt úrval
af íslenskum
hönnunarvörum
Kraum, sem er í elsta húsi Reykjavíkur; Fógetahúsinu, er fimm ára
verslun og selur eingöngu íslenska heimilishönnun frá um 200
hönnuðum. Í versluninni er að finna allt frá smávöru og skart-
gripum til fatnaðar og húsgagna. Margrét Birgisdóttir, starfsmaður
Kraums, sagði frá vinsælustu vörunum.
Kolbrún Pálsdóttir
kolbrun@frettatiminn.is
Fuzzy stóllinn er sennilega söluhæsta varan í Kraumi,
samkvæmt upplýsingum Margrétar. Þetta er viðarkollur
með gæru, hannaður af Sigurði Helgasyni og kom fyrst
á markað í kringum 1970. Nokkrum árum seinna þótti
hann þó ekki jafn merkilegur og nánast hallærislegur
en eftir að smíði hófst aftur á kollinum hefur hann verið
gríðarlega eftirsóttur.
Stóllinn
kostar
53.900 kr.
Í Kraumi eru fáanlegar
ýmsar keramikvörur og
seljast postulínsskálar
Kristbjargar Guðmunds-
dóttur sérstaklega vel.
Skálarnar eru hvítar og
mattar að utan, án gler-
ungs, en eru svo skreyttar
svokölluðum eldrósum
að innan og fást þær í
mörgum litum.
Skálarnir kosta
frá 4.800 til 40.000 kr.
Nýlega komu á markaðinn flottir herraskór úr
laxaroði hannaðir af RE101 og hefur salan á þeim
gengið mjög vel. RE101 býður upp á þrjár gerðir
af svörtum skóm og eina af brúnum en
svartar mokkasíur hafa verið
vinsælastar.
Skórnir kosta frá frá
49.900 til 59.990 kr.
Á HönnunarMars, fyrr á þessu
ári, voru kynntar nýjar herraskyrt-
ur í Kraumi frá fyrirtækinu Huginn
Muninn. Skyrturnar eru hannaðar
af Guðrúnu Guðjónsdóttur og
fengu þær mjög góðar viðtökur
og eru nú með vinsælustu vörum
verslunarinnar. Mikil áhersla er
lögð á smáatriði í hönnun Guð-
rúnar og eru skyrturnar með nýju
sniði á krögum og vandaðar að
öllu leyti.
Skyrturnar kosta
frá 12.500 kr. til 17.500 kr.
Kraum hóf fyrr á árinu samstarf með fimm
hönnuðum í endurgerð skaftsins á íslensku
pönnukökupönnunni. Pönnurnar eru fram-
leiddar af málmsteypunni Hellu og gerði hver
hönnuður nýja útgáfu af skaftinu svo hægt er
að velja um fimm mismunandi sköft. Pönn-
urnar hafa selst mjög vel og eru vinsælar
brúðargjafir.
Pannan kostar 24.770 kr.