Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 36
2 heimili Helgin 12.-14. október 2012
Þú velur
og draumasófinn þinn er klár
GERÐ (50 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (yfir 3000 tegundir)
Hornsófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
H Ú S G Ö G N
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Verð áður 227.900 kr
Roma
Aðeins 159.900 kr
Takmarkað magn
Paris-Aspen
Verð frá 262.900 kr
Rín
Verð frá 285.900 kr
Basel
Verð frá 327.900 kr
Aspen-Paris
Verð frá 276.900 kr
Písa
Verð frá 317.900 kr
Mósel
Verð frá 342.900 kr
HORNSÓFAR Í MIKLU ÚRVALI
Jóhann SigmarSSon Smíðar húSgögn með einni hendi
Handritshöfundurinn sem
sneri sér að húsgagnahönnun
Jóhann Sigmarsson er fjölhæfur listamaður sem vakti fyrst verulega athygli með kvik-
myndinni Veggfóður sem hann gerði ásamt Júlíusi Kemp fyrir margt löngu. Jóhann er nú
kominn á kaf í húsgagnahönnun og vonast til þess að geta haslað sér völl á markaði fyrir
fólk sem kýs vandað handverk fram yfir verksmiðjuframleiðslu.
Þ etta er allt handsmíðað og er hugsað fyrir fólk sem vill eitt-hvað öðruvísi og sérstakt frekar
en þessi húsgögn sem eru framleidd
í verksmiðjum í þúsunda tali,“ segir
Jóhann sem dundar sér við að hann og
smíða húsgögnin á vinnustofu sinni.
„Langafi minn var smiður þannig að
þetta er gert af andagift,“ segir Jóhann
og bætir við að vegna fötlunar sinnar
smíði hann húsgögnin með einni hendi.
Jóhann og félagar hans, Guðmundur
Sigurfreyr og Sigurður Pálmi Ásbergs-
son arkitekt hafa tekið höndum saman
um að framleiða hönnun Jóhanns undir
merkjum Litlu handverkssamsteypunn-
ar. „Þetta er á byrjunarstigi og ég er að
smíða frumgerðirnar en vonandi tekst
okkur að komast inn á markaðinn með
húsgögnin. Þetta kemur mjög vel út,“
segir Jóhann sem hefur þegar fundið
fyrir eftirspurn en meðal þess sem hann
smíðar eru japanskt rúm, hillur, skrif-
borð og hægindastólar úr leðri og tré.
Og allt byrjaði þetta þegar Jóhann
brá í hallæri á það ráð að smíða rúm
undir sjálfan sig og kærustu sína
þegar hann bjó í Berlín. „Ég hannaði og
smíðaði rúmið til eigin nota í fyrravetur
og fékk nokkrar fyrirspurnir og þá fór
þetta að rúlla. Hópurinn kom síðan
saman og við ákváðum að reyna að
gera eitthvað úr þessu.“ Jóhann segist
ekkert hafa auglýst sig og lítið gert til
að vekja athygli á húsgögnunum en þó
hafi borist pantanir í rúmið, skrifborðið
og stólana. „Þetta spyrst bara svona út.“
Jóhann unir sér best á vinnustofunni
en þessa dagana er hann þó ekki aleinn
við iðju sína þar sem hann hefur tekið
kanínuunga í fóstur. „Þegar ég var að
klára skrifborðið kom villtur kanínu-
ungi inn af götunni og varð þannig sá
fyrsti sem sá skrifborðið tilbúið. Ég
hef núna tekið þennan unga í fóstur og
hann varð á einum degi heimiliskan-
ína,“ segir Jóhann sem ræðir listina og
lífið á háfleygum nótum við þennan
nýja félaga sinn. „Joseph Beuys spurði
einhvern tíma How to Explain Art to
a Dead Hare? og nú spyr ég How to
Explain Art to a living rabbit?“ segir
Jóhann og hlær.
Jóhann segist ekki nenna að standa í
allri þeirri skriffinnsku og veseni sem
þarf til þess að framleiða bíómyndir
lengur en hefur þó ekki alveg snúið
baki við kvikmyndunum. „Ég á þrjú
handrit og var að selja Friðrik Þór eitt
þeirra. Vinnuheitið er Skarð og það
fjallar um vegagerð úti á landi. Ég held
að Frikki ætli að reyna að kvikmynda
það í sumar. Mér finnst sjálfum þægi-
legra að vera bara á vinnustofunni og
skapa list eins og húsgögnin.“
Þóra rinn Þórarinnsson
toti@frettatiminn.is
Langafi
minn
var
smiður
þannig
að þetta
er gert
af anda-
gift.
Handverksmaðurinn tekur sér smá hlé og virðir
hægindastólinn, sem er sannkölluð listasmíð, fyrir sér.
Stólinn góði er hannaður
með fólk í huga sem vill hús-
gögn sem eru ekki öll eins.
Skúffan er eins og sniðin utan
um flóttakanínunna sem leitaði
skjóls á vinnustofu Jóhanns.
Kanínuunginn, sem fyrstur leit
skrifborðið fullklárað augum,
kann vel að meta handverkið.