Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 66
P ierce Brosnan og Trine Dyrholm þykja fara á kost-um í Den skaldede frisør
en myndinni er lýst sem skemmti-
legum og ljúfsárum bræðingi
kærleika og hlýju með slettu af
fáránleika og góðu gríni. Í fljótu
bragði mætti halda að söguþráður
myndarinnar sé ljósrit af Mamma
Mia! þar sem Brosnan lét einnig
til sín taka. Tvær ólíkar fjölskyld-
ur hittast í gamalli villu á Ítalíu
í tilefni brúðkaups ungs pars og
þótt allt sé skipulagt í þaula fer
vitaskuld ekkert eftir áætlun.
Hér sleppir síðan samanburðin-
um við Abba-söngleikinn og Bier
spinnur skemmtilega sögu um
hárgreiðslukonu sem misst hefur
hárið í krabbameinsmeðferð. Til
að bæta gráu ofan á svart kemst
hún að því að eiginmaður hennar
hefur haldið fram hjá henni. Hún
heldur til Ítalíu til þess að vera
viðstödd brúðkaup dóttur sinnar.
Þar hittir hún bitran ekkjumann
sem kennir heiminum um dauða
konu sinnar og með þeim tekst
náin vinátta.
Susanne Bier þykir einn besti
leikstjóri Norðurlandanna og þó
víðar væri leitað. Hún vakti fyrst
verulega athygli með rómantísku
gamanmyndinni Den Eneste Ene
fyrir þrettán árum. Myndin naut
mikilla vinsælda í heimalandi
hennar og víðar.
Hævnen aflaði Bier síðan
heimsfrægðar en fyrir hana hlaut
hún bæði Óskarsverðlaunin og
Golden Globe-verðlaunin fyrir
bestu erlendu myndina í fyrra.
54 bíó Helgin 12.-14. október 2012
xxxxx
Rómantískt gaman nýjasta mynd susanne BieR
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
H E LGA R BL A Ð
FRumsýndaR
Jake Gyllenhaal og
Michael Peña leika lög-
regufélaga og góða vini
sem komast í The End
of Watch. Þeir komast
í hann krappan þegar
þeir storka glæpahyski
sem telur ekki eftir sér
að ganga milli bols og
höfuðs á afskiptasömum
laganna vörðum.
Við venjubundið um-
ferðareftirlit finna þeir
Brian og Mike skotvopn
og peninga í eigu
glæpaklíku. Þeir gera
góssið, lögum samkvæmt
upptækt, en það á eftir
að draga dilk á eftir sér
þar sem glæpalýðurinn
hyggur á hefndir.
Lífsháski við skyldustörf
Brian og Mike
komast í klandur
við skyldustörf.
í Bíó tvæR íslenskaR
Hjartahreinn prestur
og hrátt ofbeldi
Tvær íslenskar kvikmyndir eru frumsýndar
um helgina og þær eru eins ólíkar og hugsast
getur. Önnur er heimildarmynd um íslenskan
sveitaprest en hin ofbeldisfull hasarmynd um
mansal og annan undirheimaviðbjóð.
Hreint hjarta var valin besta heimildar-
myndin á Skjaldborgarhátíðinni í ár en í
henni kynnir Grímur Hákonarson áhorfend-
ur fyrir Kristni Ágústi Friðfinnssyni, sem
verið hefur prestur á Selfossi og nágrenni
í tuttugu ár. Hann er litríkur maður sem er
ekkert óviðkomandi þegar kemur að prests-
þjónustunni. Áhorfendur fá að kynnast mann-
inum á bak við hempuna og þeim fjölmörgu
störfum sem prestar vinna en eru ekki
sýnileg.
Blóðhefnd fjallar um ungan mann, Trausta,
sem kemur heim eftir áralanga fjarveru.
Hann kemst að því bróðir hans er flæktur í
mansalshring og það brölt á eftir að koma
harkalega niður á fjölskyldunni. Þá grípur
Trausti til sinna ráða og leitar grimmilegra
hefnda um leið og hann reynir að bjarga
ungri konu úr ánauð.
Trausti gefur
ekkert eftir og
sveiflar kylf-
unni af krafti í
Blóðhefnd.
Susanne Bier og sköllótt
hárgreiðslukona
Pierce Brosnan og Trine Dyrholm finna sálufélaga hvort í öðru á Ítalíu.
Danski leikstjórinn og óskarsverðlaunahafinn Susanne Bier
gerði góða ferð til Íslands á dögunum þegar hún tók við heið-
ursverðlaunum Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík.
Nýjasta mynd hennar Den skaldede frisør, eða Love Is All You
Need, var sýnd á hátíðinni við slíkar vinsældir að færri komust
að en vildu. Myndin er nú komin í almennar sýningar en í henni
teflir Bier fram sjálfum Pierce Brosnan á móti Trine Dyrholm.