Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 42
8 heimili Helgin 12.-14. október 2012
Endurnýting Biðröð á hvErjum dEgi
Friðrik Ragnarsson, versl-
unarstjóri í Góða hirðinum.
Ljósmyndir/KP
Fjölbreytt úrval í Góða hirðinum
Móðir og barn láta fara vel um sig.
á hverjum virkum degi, rétt fyr-ir hádegi, safnast um sextíu manns saman í röð fyrir utan
verslunina Góða hirðinn og bíða eftir
að hún opni. Á slaginu tólf, þegar renni-
hurð hefur verið rennt frá dyrunum,
ryðst fólk óskipulega inn, og blótar
hvert öðru ef röðin er ekki virt.
„Við höfum einstaka sinnum talið
fólkið inn og er þetta yfirleitt í kring-
um sextíu manns sem bíða fyrir utan á
hverjum degi. Nokkrum sinnum á ári
fer þó fjöldinn í 140 manns og þá gef-
umst við eiginlega upp á að telja,“ segir
Friðrik Ragnarsson, verslunarstjóri í
Góða hirðinum. „Það eru að meðaltali í
kringum 1000 til 1500 mans sem versla
hjá okkur daglega. Auðvitað tekur salan
kipp einstaka sinnum og þá oft í byrjun
mánaðar, eins og gengur og gerist í ís-
lensku samfélagi.
Við fáum nýjar vörur á hverjum degi,
sem safnast hafa í nytjagámana okkar
víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu og eru
þetta yfirleitt þrír til fjórir gámar sem
við tæmum daglega. Fjölbreytileikinn er
í hámarki og dótið sem við fáum í gám-
ana er allt frá frægum hönnunarmerkj-
um til fallegra, sérsmíðaðra húsgagna.“
kolbrun@frettatiminn.is