Fréttatíminn - 12.10.2012, Síða 8
www.odalsostar.is
Havartí Krydd er náskyldur einum
þekktasta osti Dana, úr smiðju hinnar
frægu ostagerðarkonu, Hanne Nielsen.
Ljúfur, mildur og smjörkenndur
ostur með sætri papriku og votti af
piparaldinum. Frábær partíostur, með
nachos eða á steikarsamlokuna.
HAVARTÍ KRYDD
FJÖRUGUR
Ellen Calmon segir ADHD samtökin
hvorki mæla með né gegn lyfjagjöf.
ADHD Sigríður JónSDóttir, ADHD mArkþJálfi, Hætti Sem vArAformAður ADHD SAmtAkAnnA
Breytt mataræði
eða lyf við ADHD
Á morgun verða ný samtök, Lifðu lífinu, með málþing um heildræna
nálgun við ADHD og fleiri einkenni og raskanir (tourette, streitu kvíða,
þunglyndi). Sigríður Jónsdóttir stendur fyrir málþinginu en Ellen
Calmon, framkvæmdarstjóri ADHD samtakanna, deilir á skoðanir
Sigríðar sem er fyrrverandi varaformaður samtakanna.
É g var á lyfjum fyrir sirka fimm árum en hætti fljótlega og fann aðra lausn við minni greiningu,“ segir Sigríður Jónsdóttir,
ADHD markþjálfi og fyrrverandi varaformaður
ADHD samtakanna, en hennar skoðanir hafa
verið umdeildar innan hins svokallaða ADHD
samfélags. Sigríður er með sín eigin samtök í
dag, Lifðu lífinu, og hefur ekkert með ADHD
samtökin að gera. Þau samtök verða 25 ára á
næsta ári og segist framkvæmdastjórinn hafa
áhyggjur ef fjölmiðlar ætli að lepja hreinlega hvað
sem er upp eftir fólki.
„Það er ábyrgðarhlutur að setja fram að fólk
eigi að hætta að steikja á teflonhúðuðum pönnum
eða borða meira af ómegavörum og þá hverfi
ADHD,“ segir Ellen Calmon, framkvæmdarstjóri
ADHD samkanna. Hún tekur fram að hún sé
engin sérfræðingur heldur starfsmaður samtaka
sem séu með doktor og geðlækni og slíka sér-
fræðinga í stjórn.
„Ég er menntaður markþjálfi,“ útskýrir Sig-
ríður en hún er að auki áfengis- og vímuefnaráð-
gjafi og á morgun klukkan 10 setur hún málþing
sem haldið er í Lifandi markaði í Borgartúni og
fjallar um heildræna nálgun við ADHD og fleiri
einkenni og raskanir.
En af hverju hættirðu sem varaformaður sam-
takanna?
„Ég var ósátt við stefnu og hugmyndir sam-
takanna. Við Gréta Jónsdóttir stofnuðum því ný
samtök, Lifðu lífinu,“ segir Sigríður sem hefur
áhyggjur af sjálfstæði ADHD samtakanna og
bendir á að á heimasíðu þeirra sé nýtt sjálfshjálp-
arforrit, Focus, en Janssen-Cilag lyfjafyrirtækið á
einkarétt að forritinu. Janssen-Cilag er dótturfyr-
irtæki bandaríska risans Johnson & Johnson.
Algengt meðal fólks
með ADHD að það
sæki í hveiti og sykur
og óhollan mat
„Við fáum ekkert borgað fyrir að hafa þetta á
síðunni,“ útskýrir framkvæmdastjórinn, Ellen,
og segir að þetta sé einungis á síðunni vegna
þess að forritið gagnist fólki. Hjá ADHD sam-
tökunum sé fólki hvorki ráðlagt að taka lyf
né að taka þau ekki. Allar slíkar ráðleggingar
verður fólk að fá frá læknum, segir Ellen.
Sigríður hefur hinsvegar lært að lifa með
ADHD og fengið nokkurn bata með því að
breyta um mataræði og rækta sjálfsmynd sína.
„Stóra málið í mínu lífi er að ég er matarfíkill
og það er mjög algengt meðal fólks með ADHD
að það sæki í hveiti og sykur og óhollan mat. Ég
þurfti að vanda betur mataræðið og vinna með
sjálfsmyndina og þá fór athyglin að koma ásamt
ýmsu öðru,“ segir Sigríður.
Ellen er ekki með ADHD en skrifaði loka-
ritgerðina sína um ADHD (hún er kennari að
mennt og í meistaranámi í opinberri stjórn-
sýslu). Hún segist sjálf hafa mikla trú á hollu og
góðu matarræði en eftirláti sérfræðingum og
vísindamönnum að sanna gildi þess og annars
sem tengist ADHD.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Gréta Jónsdóttir, fjölskyldu- og hjónabandsráðgjafi og fyrrverandi stjórnarmaður ADHD samtakanna, Sigríður
Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og fyrrverandi varaformaður ADHD samtakanna og Hanna Elísdóttir, næringar-
microscopisti.
Samtökin verða
25 ára á næsta
ári og fram-
kvæmdastjór-
inn biður fólk
að hlusta ekki
á hvað sem er
heldur treysta
á fagfólk.
Lifdulifinu.is
Fyrrverandi
varaformaður
ADHD sam-
takanna stofnaði
þessi samtök því
hún vildi nýja
nálgun á ADHD:
Breytt mataræði og sjálfsskoðun.
Róbert Marshall hefur sagt skilið við Samfylk-
inguna og gengið til liðs við flokk Guðmundar
Steingrímssonar, Bjarta framtíð. Samkvæmt
heimildum Fréttatímans er ástæðan fyrst og
fremst sú að Róbert telur ólíklegt að hann njóti
þess stuðnings innan Samfylkingarinnar sem
hann þarf til þess að fleyta sér á þing á næsta
ári.
Enginn málefnalegur ágreiningur er milli
Róberts og Samfylkingarinnar enda hefur hann
lýst því yfir að hann muni styðja ríkisstjórnina í
einu og öllu það sem eftir er af kjörtímabilinu.
Róbert var í þriðja sæti í Suðurkjördæmi fyrir
síðustu alþingiskosningar en talið er ólíklegt að
Samfylkingin nái inn þrem mönnum í kjördæm-
inu í næstu kosningum. Um fyrsta og annað
sætið keppa fyrrverandi ráðherrar, Björgvin G.
Sigurðsson og Oddný Harðardóttir. Til greina
kom að Róbert byði sig fram í Reykjavík en þar
eru fyrir fjórir karlar að keppa um þrjú karla-
sæti, Össur Skarphéðinsson, Helgi Hjörvar,
Skúli Helgason og Mörður Árnason. Þá hefur
Vilhjálmur Þorsteinsson verið nefndur sem
líklegur til að bjóða sig fram í Reykjavík. Með
því að ganga til liðs við Bjarta framtíð eygir
Róbert því möguleika á að sitja á þingi annað
kjörtímabil.
Skýring Róberts er hins vegar sú að hann
vill rjúfa þá átakahefð sem fest hefur rætur í
íslenskum stjórnmálum. „Ég hef ákveðið að
segja skilið við Samfylkinguna og ganga til
liðs við framboð Bjartrar framtíðar í komandi
kosningum,“ segir hann í yfirlýsingu sem
hann sendi frá sér í gær. „Sú ákvörðun byggir
á þeirri sannfæringu minni að rjúfa þurfi þá
átakahefð sem fest hefur rætur í íslenskum
stjórnmálum. Átök innan og á milli núverandi
stjórnmálaflokka á yfirstandandi kjörtímabili
og vantraust á þeim afhjúpar veikleika íslenska
flokkakerfisins og hversu illa það þjónar sam-
félagi okkar. Það er kominn tími til að breyta
því og ég vil leggja mitt af mörkum til að svo
megi verða.“
-sda
StJórnmál róbert mArSHAll vill verA áfrAm á þingi
Meiri séns í Bjartri framtíð en Samfylkingu
Róbert
Marshall.
8 fréttir Helgin 12.-14. október 2012