Fréttatíminn - 12.10.2012, Síða 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
T Tölur sem sýna velgengni í ferðaþjónust-unni halda áfram að berast. Í nýliðnum september fóru um 64.700 gestir frá landinu um Leifsstöð. Um er að ræða mesta fjölda erlendra ferðamanna í septembermánuði frá
upphafi. Í september í fyrra var fjöldi þeirra
51.600. Aukningin nemur 25,4% milli ára, að
því er fram kemur í tölum Ferðamálastofu.
Þetta er hlutfallslega meiri aukning en ver-
ið hefur á milli ára í mánuði
hverjum það sem af er ári.
Þar með eru erlendir
ferðamenn sem hingað komu
fyrstu níu mánuði ársins
orðnir jafn margir og allt árið
í fyrra, sem var metár. Fyrstu
níu mánuði ársins sóttu 537
þúsund erlendir gestir okkur
heim, miðað við 458 þúsund á
sama tíma í fyrra. Aukningin
nemur 17,2%. Sama þróun sést
í sölu gistinátta. Fyrstu átta
mánuði ársins fjölgaði gistinóttum á hótel-
um um 17% miðað við sama tíma í fyrra. Þar
munaði einkum um fjölgun erlendra gesta.
Sannkallað ævintýri hefur því verið í
ferðamennsku hérlendis undanfarið og
munar um slíkt í þjóðarbúskapnum. Þar
kemur ýmislegt til. Eldgosið í Eyjafjallajökli
vakti athygli á Íslandi um allan heim og
öflugt markaðsstarf fylgdi í kjölfar þess. En
meira ræður sennilega að verð lækkaði á Ís-
landi á vöru og þjónustu í kjölfar gengisfalls
krónunnar. Ísland var orðið afar dýrt fyrir
efnahagshrunið. Landið varð því fýsilegri
kostur til heimsóknar en áður, samkeppnis-
hæfara.
Það er ekki sjálfgefið að erlendum ferða-
mönnum hingað haldi áfram að fjölga.
Greining Íslandsbanka skoðaði tölur Seðla-
bankans fyrr í vikunni um eyðslu erlendra
aðila hér á landi. Hún hefur aukist mjög eft-
ir að gengi krónunnar varð þeim hagstæð-
ara. Muninn má sjá á því að árið 2007 kost-
aði evran að jafnaði 88 krónur og dollarinn
um 65 krónur. Í ár hefur evran að jafnaði
kostað 160 krónur og dollarinn 125 krónur.
Í yfirliti Greiningarinnar kemur fram að
kortanotkun erlendra aðila hefur verið um
þrefalt meiri í krónum talið á fyrstu átta
mánuðum þessa árs samanborið við sama
tímabil árið 2007. Sé mið tekið af raunaukn-
ingu, það er að segja að teknu tilliti til verð-
bólgu, hefur kortanotkun þeirra tvöfaldast á
tímabilinu. Á sama tímabili hefur erlendum
ferðamönnum fjölgað um 39% svo draga má
þá ályktun að hver erlendur ferðamaður
geri mun betur við sig hér á landi en hann
gerði fyrir hrun.
Þessa verðvitund erlendra gesta ættu
stjórnvöld að hafa í huga þegar þau velta
fyrir sér að hækka virðisaukaskatt á gist-
ingu úr 7% í 25,5%. Við keppum við önnur
lönd um ferðamenn. Virðisaukaskattur á
gistiþjónustu er í lægra skattþrepi í flestum
öðrum Evrópulöndum, þeim löndum sem
við keppum helst við. Í nýlegri skýrslu sem
KPMG gerði fyrir Samtök ferðaþjónustunn-
ar kemur fram að reikna megi með því að
erlendum ferðamönnum geti fækkað um 40
þúsund á ári, gangi skattahækkunin eftir. Í
skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands
kemur fram að fækkunin geti numið allt
að 48 þúsund manns. Þá myndu gjaldeyris-
tekjur lækka um 11,5 milljarða króna, að því
er fram kemur á síðu Samtaka ferðaþjónust-
unnar. Einhverjir myndu líkja slíkri skatta-
hækkun við það að skjóta sig í fótinn.
Hið sama gildir um afnám vörugjalds-
lækkunar á bílaleigur sem gert er ráð fyrir
í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2013. Bíla-
leigubílar eru taldir vera 41% samgöngumáti
erlendra ferðamanna um dreifðari byggðir
landsins. Fram hefur komið hjá Samtökum
ferðaþjónustunnar að þessar breytingar
muni leiða til þess að innkaupsverð á bíla-
leigubílum hækki um 17,4% að meðaltali
og að útleiguverð þeirra muni hækka að
minnsta kosti um 27% yfir allt árið.
Þetta eru tölur sem starfshópur sem fjár-
málaráðherra setti nýlega á laggirnar, með-
al annars til að meta áhrif hækkunar virðis-
aukaskatts á gistingu og vörugjaldahækkun
bílaleiganna, hlýtur að taka tillit til.
Verðvitund erlendra ferðamanna
Fjölgunin er ekki sjálfgefin
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Heilabilun
Skoðaðu bara Moggann.
Jóhannes Jónsson, áður
kenndur við Bónus en
nú Iceland, játti því í
Sjálfstæðu fólki Jóns
Ársæls að hann væri með
Davíð Oddsson á heilanum
en benti einnig á að Davíð sé með sig á
heilanum. Rökin eru á síðum Morgun-
blaðsins.
Bannað að pissa!
Við erum margbúin að kvarta yfir
þessu og lögreglan virðist ekkert ráða
við þetta, það þarf náttúrulega bara
að sekta fólk á staðnum strax eða
taka það úr umferð.
Magnús Skúlason, formaður íbúa-
samtaka miðborgarinnar, brást við
þegar íbúi í miðborginni greip til þess
örþrifaráðs að flengja með sveðju
dólga sem köstuðu af sér vatni á svefn-
herbergisglugga hans.
Góðir útlagar
Er fólk orðið snarklikkað!!!!!! Ég frábið
mér svona fréttaflutning. Þetta er
EKKI í anda Outlaws og myndi aldrei
vera samþykkt þar.
Víðir Þorgeirsson, gjarnan nefndur
Tarfur, foringi Outlaws á Íslandi brást
illa við fréttum um að bifhjólagengið
hefði skipulagt árásir á lögreglumenn
og fjölskyldur þeirra.
Gunni B.A.
Nú neyðumst við víst til að svipta Dr.
Gunna doktorsnafnbótinni,
því hér skortir bæði ná-
kvæmni og vísindalega
nálgun. Fjöður gerð að
risahænsnabúi.
Stuðmaðurinn Jakob
Frímann Magnússon
hafnaði draugasögu
Dr. Gunna um uppköst og
ofurölvun á Stuðmannatónleikum í
Hörpu.
Haltu kj....
Þetta er ekkert annað en þöggun. Mér
finnst þetta algjör klikkun.
Það fauk í Margréti Tryggvadóttur,
þingkonu
Hreyfingarinnar,
þegar borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins
komu í veg
fyrir að Eiríkur
Bergmann Einarsson
fengi að sitja fyrir
svörum á kynningarfundi um
stjórnarskrárfrumvarpið.
Er þetta hún?
Ég er náttúrlega svaka fan og þekki
aðstoðarkonuna hennar og veit
hvernig aðstoðarfólkið hennar lítur
út. Ég sá enga af þeim.
Andrea Jóhannsdóttir, aðdáandi Lady
Gaga, var mætt á Reykjavíkurflugvöll
að kvöldi dags þegar talið var að
söngkonan væri komin
til landsins. Andreu
grunaði að maðkur
væri í mysunni enda
kom síðar í ljós að
Gaga skilaði sér ekki
fyrr en daginn eftir.
Vikan sem Var
Þetta er búið að vera öðruvísi vika en
ég gerði ráð fyrir en nú er ég að fara
norður um helgina. Ætla að hreinsa
til í garðinum hjá mér og undirbúa
húsið okkar fyrir veturinn,“ segir Sigrún
Stefánsdóttir, fyrrverandi dagskrárstjóri
Ríkissjónvarpsins, en henni var sagt
upp störfum í vikunni. Hún segist brött
og hafa í nógu að stússast um helgina.
Annar sonur hennar býr á Akureyri (hinn
í Reykjavík) og fjölskylda hans kemur
í mat. Eiginmaður Sigrúnar er Yngvar
Bjorshol, garðyrkjumaður og fyrrverandi
blaðamaður („hann fórnaði starfinu fyrir
mig – erfitt að vera norskur blaðamaður
á Íslandi“).
MaðuR vikunnaR
Ætla að hreinsa til í garðinum hjá mér
Sigrún Stefánsdóttir, fyrrverandi
dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins.
EKKI ER ALLT
SEM SÝNIST
Mögnuð spennusaga úr smiðju metsölu-
höfundarins Árna Þórarinssonar sem
bregst ekki aðdáendum sínum!
„Framúrskarandi krimmi
með sterkri undiröldu ...“
Jan Arnald / Arne Dahl
um Tíma nornarinnar í Dagens Nyheter
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
14 viðhorf Helgin 12.-14. október 2012