Fréttatíminn - 12.10.2012, Blaðsíða 19
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Ný ávöxtunarleið með stighækkandi vöxtum
Sparnaður: Vaxtaþrep 30 dagar
Vaxtaþrep 30 dagar er nýr bundinn óverðtryggður innlánsreikningur og hækka
vextirnir í þrepum eftir fjárhæð innistæðunnar.
Þú getur stofnað Vaxtaþrep 30 dagar í Netbankanum eða í næsta útibúi Íslandsbanka.
Nánari upplýsingar á islandsbanki.is
Ársvextir skv. vaxtatöflu 22.09.12: Vextir eru stighækkandi eftir innstæðu.
Fáðu allt að
4,7% vexti
Ný
sparnaðarleið
Úttektir af reikningnum þarf að til-
kynna með 30 daga fyrirvara en á móti
eru vextirnir hærri en á almennum
óbundnum innlánsreikningum og eru
þeir greiddir út mánaðarlega inn á
ráðstöfunarreikning að eigin vali.
Vaxtaþrep 30 dagar hentar því þeim
sem vilja örugga og háa ávöxtun en
jafnframt að innistæðan sé laus með
skömmum fyrirvara.
0–5 m.kr. 5–20 m.kr. 20–75 m.kr. +75 m.kr.
3,8%
4,1%
4,4%
4,7%
5,0%
4,5%
4,0%
3,5%
3,0%
Fært til bókar
Óli Björn og Elín sækja að sitjandi
þingmönnum
Það stefnir í talsverðan slag í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjör-
dæmi 10. nóvember næstkomandi. Þetta
fjölmennasta kjördæmi landsins er sterkt
vígi Sjálfstæðisflokksins, kraginn í kringum
höfuðborgina. Nægir þar að nefna Garða-
bæ þar sem sjálfstæðismenn hafa haft
tögl og hagldir áratugum saman og sömu
sögu er að segja af Seltjarnarnesi. Þá hefur
Sjálfstæðisflokkurinn lengi verið stærsti
flokkurinn í Kópavogi, næst stærsta sveit-
arfélagi landsins. Samfylkingin hefur hins
vegar haft sterkari stöðu í Hafnarfirði, sem
næstur er Kópavogi í mannfjölda.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk afleita
kosningu í síðustu þingkosningum, í apríl
2009, í kjölfar efnahagshruns og þess að
ríkisstjórn Geirs H. Haarde hrökklaðist frá
völdum. Flokkurinn hélt þó bærilega sjó í
Suðvesturkjördæmi. Þar fékk hann fjóra
þingmenn kjörna, formanninn Bjarna
Benediktsson, Þorgerði
Katrínu Gunnars-
dóttur, Ragnheiði
Ríkharðsdóttur
og Jón Gunnars-
son. Óli Björn
Kárason kom
næstur og hefur
setið nokkrum
sinnum sem vara-
þingmaður á kjör-
tímabilinu. Í sjötta sæti
listans var síðan Rósa Guð-
bjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði.
Sitjandi þingmenn í kjördæminu sækjast
eftir endurkjöri, að Þorgerði Katrínu Gunn-
arsdóttur undanskilinni. Hún tilkynnti fyrir
skömmu að hún sæktist ekki eftir endur-
kjöri. Þorgerður Katrín hefur átt erfitt
uppdráttar innan flokks og á þingi eftir
hrun en áður má segja að hún hafi verið
helsta vonarstjarna flokksins. Hún gegndi
embætti varaformanns um fimm ára skeið
og margir sáu fyrir sér að hún yrði fyrst
kvenna formaður Sjálfstæðisflokksins.
Þorgerður hefur setið á Alþingi frá árinu
1999 og var menntamálaráðherra 2004
til 2009.
Gera má ráð fyrir því að Bjarni Bene-
diktsson sé öruggur í efsta sæti listans.
Keppnin verður hörð
um önnur sæti. Tveir
frambjóðendur
gera harða hríð
að sitjandi þing-
mönnum flokks-
ins. Annars vegar
er það Elín Hirst,
fyrrum frétta-
stjóri. Hún gefur kost
á sér í þriðja sæti listans.
Elín var virk í stjórnmálum áður en hún
fór í blaða- og fréttamennsku, var meðal
annars bæði í stjórn Vöku og Heimdallar.
Hins vegar er það Óli Björn Kárason,
ritstjóri vefmiðilsins T24, en hann tilkynnti
í gær að hann byði sig fram í eitt af efstu
sætunum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Suðvesturkjördæmi. Óli Björn er hag-
fræðingur að mennt en hefur starfað
sem blaðamaður, ritstjóri og útgefandi í
nær aldarfjórðung. Hann hefur gefið út
fjórar bækur meðal annars um viðskipti,
efnahags- og dómsmál. Þá hefur Óli Björn
skrifað fjölda greina í dagblöð og tímarit.
Óli Björn skellti sér í pólitíkina fyrir síðustu
kosningar og undanfarið hefur hann skrif-
að röð greina sem eftir hefur verið tekið,
einkum í Morgunblaðið og á eigin vef, þar
sem hann hefur gagnrýnt ríkisstjórnina en
um leið minnt eigin flokk á að halda kúrs-
inum réttum.
Fleiri geta bæst í hópinn en framboðs-
frestur er til 19. október næstkomandi.
Prófkjörs- og formennskuslagur
Stórslagur verður einnig hjá Samfylking-
unni í Suðvesturkjördæmi 10. nóvember
næstkomandi. Þá verður viðhaft flokksval
þar sem flokksfélagar og skráðir stuðn-
ingsmenn hafa einir kosningarétt. Niður-
staðan verður bindandi fyrir fimm efstu
sætin og paralistaaðferð verður beitt til að
tryggja jafnt hlutfall kynja. Þar munu tak-
ast á um forystu í kjördæminu Árni Páll
Árnason, þingmaður og fyrrum ráðherra,
og Katrín Júlíusdóttir, efnahags- og fjár-
málaráðherra. Árni Páll hefur þegar lýst
yfir framboði til formennsku í Samfylk-
ingunni og ólíklegt er annað en Katrín taki
þann slag einnig. Sigur í Kraganum stóra
verður því gott veganesti fyrir þann sem
þar sigrar þegar kemur að vali arftaki
Jóhönnu Sigurðardóttur.
Helgin 21.-23. september 2012