Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.10.2012, Side 22

Fréttatíminn - 12.10.2012, Side 22
ÍþróttastuðningshlífarÍþróttabrjóstahaldarar Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is Á sdís Ingólfsdóttir hefur tvisvar greinst með brjóstakrabbamein – sitt hvora tegundina, hvor í sínu brjósti. Bæði voru fjarlægð og krabbinn með. „Ég hef aldrei barist við krabbamein. Ég hef aldrei hugsað þetta þannig. Krabb- inn réðst ekki á mig, ég greindist með krabbamein sem síðan var skorið í burtu og ég þurfti að byggja mig upp,“ segir Ás- dís. Hún greindist fyrst fyrir 10 árum. Hún hafði fundið fyrir hnúð í brjóstinu en fór ekki á leitarstöðina strax, vildi ljúka kennslu í Kvennó þar sem hún kennir enn. „Þegar ég loksins fór í skoðun kom í ljós töluvert æxli. Það þurfti að fjarlægja allt vinstra brjóstið og meinið hafði dreift sér í eitla,“ segir Ásdís. Hún fór í lyfjameðferð í kjölfarið og var á krabbameinslyfinu Tamoxifen í fimm ár en því fylgja mikil leiðindi, að sögn Ás- dísar. „Þetta er hormónavaki sem veldur einkennum eins og breytingaskeiðinu í fjórða veldi,“ segir Ásdís og hlær. „Ég fór því skyndilega á breytingaskeiðið 44 ára gömul. Þegar ég átti eftir þriggja vikna skammt af lyfjunum fannst æxli í hinu brjóstinu enda fór ég í reglulega brjósta- skoðun. Ég fór fyrst í fleygskurð en í ljós kom að um allt öðruvísi krabbamein var að ræða og þurfti að taka allt brjóstið,“ segir hún. Bæði brjóstin hafa verið byggð upp að nýju. Reið í annað skiptið Ásdís segist hafa verið mun hræddari í fyrra skiptið sem hún greindist. Í síðara skiptið varð hún reið. „Ég varð ofsalega hrædd þegar ég greindist í fyrra skiptið. Ég er úr rosalega mikilli krabbameins- Vigdís Finnbogadóttir gaf mér von Ásdís Ingólfsdóttir hefur tvisvar þurft að láta fjarlægja brjóstakrabbamein og bæði brjóstin með. Hún varð hrædd í fyrra skiptið og reið í það síðara en Vigdís Finnbogadóttir gaf henni von því hún var sprelllifandi þrátt fyrir að hafa fengið brjóstakrabbamein. Málþing 23. október Málþing um brjósta- krabbamein verður haldið í Öskju, húsi Há- skóla Íslands, þriðju- daginn 23. október. Þar verða flutt erindi um fæðu, hreyfingu og slökun og rætt um tengsl heilbrigðra lífs- hátta við hættu á að fá krabbamein. Málþingið er á vegum Samhjálpar kvenna, Krabbameins- félags Hafnarfjarðar og Krabbameinsfélags Reykjavíkur. fjölskyldu, tvö eldri systkini mín eru látin, systir mín úr krabbameini í nýra og bróðir minn úr lungnakrabba. Það sem hjálpaði mér og gaf mér von um að ég myndi lifa þetta af var að ég mundi eftir því að Vigdís Finnbogadóttir hafði fengið brjóstakrabbamein og hún var aldeilis sprelllifandi,“ segir Ásdís. „Það er ástæðan fyrir því að ég vil segja frá minni reynslu. Svo að aðrar konur sem greinast með krabbamein sjái að það er hægt að lifa heilbrigðu lífi eftir að maður er laus við það.“ Ásdís segist hafa reiðst þegar hún greindist í síðara skiptið. „Mér fannst það ósanngjarnt og óhugsandi. Ég var nýbúin að missa annað brjóstið og fara í lyfjagjöf sem var algjör hryllingur. Ég varð fyrst og fremst reið en ekki eins Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Ásdís Ingólfsdóttir: „Ég hef aldrei barist við krabbamein. Ég hef aldrei hugsað þetta þannig.“ Ljósmynd/Hari 22 viðtal Helgin 12.-14. október 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.