Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.10.2012, Síða 30

Fréttatíminn - 12.10.2012, Síða 30
Heimur S&M-kynlífs er æsandi Við hverju bjóstu þegar fyrsta bókin kom út? Sá einhver fyrir fjörutíu milljónir seldra eintaka, kvikmynd í burð- arliðnum og haug af hamingjusömum húsmæðrum? „Viðtökurnar komu mér mjög á óvart. Mig dreymdi aldrei um slíkar vinsældir. Þar sem bækurnar voru fyrst gefnar út sem rafbækur snerist metnaður minn um að fá að sjá þær í bókabúðum.“ Rötuðu þínar eigin fantasíur í bækurnar? „Já. Ég skemmti mér mjög vel við rannsóknarvinnu fyrir bækurnar en það er allt og sumt sem ég vil segja um þetta.“ Talandi um rannsóknarvinnu. Hvernig rannsakaðir þú heim S&M-kynlífs? Og hvað var það við þennan lífsstíl sem höfðaði til þín? „Ég var dugleg við rannsóknir á netinu og var í tölvupóstsamskiptum við fólk sem stundar S&M-kynlíf. Mér finnst þessi S&M-heimur æsandi! Og mig langaði að kanna hvernig það væri ef þú kynntist einhverjum sem væri þátttakandi í þessum heimi án þess að þú vissir það – og yrðir svo að ákveða hvort þú vildir vera með eður ei.“ Hvert var vandræðalegasta eða fáránlegasta augna- blikið við rannsóknir þínar fyrir bækurnar? „Ég varð aldrei vandræðaleg en þú ættir kannski frekar að spyrja manninn minn.“ Níræðar konur meðal lesenda Hvað finnst þér um að bækurnar þínar séu kallaðar „mömmuklám“? „Ég held að þetta sé þægilegur merkimiði fyrir blaðamenn. Þetta er ekki ný tegund af bókum – þetta er ástríðufull ástarsaga með kynlífi, og það er nóg af þeim í bókabúðum. Það vill nú þannig til að þegar fólk verður ástfangið, þá stundar það kynlíf. Ég skil ekki alveg af hverju þetta hugtak varð svona vinsælt. En mér skilst að þetta sé til komið af því að konur töluðu um bækurnar þegar þær fóru með börnin í skólann eða í íþróttir. Í kjölfarið fundu fjölmiðlar upp hugtakið „mömmuklám“. Ég veit að lesendur bóka minna eru konur frá menntaskólaaldri og upp í nírætt. Margar þeirra eru ekki mömmur!“ Þú átt tvö syni á táningsaldri. Hafa þeir lesið bæk- urnar? „Nei! Ég myndi ekki vilja það og þeir vilja heldur ekki lesa þær.“ Hversu mikilvægt er kynlíf fyrir þig? „Ekki eins mikilvægt og að anda en mikilvægara en að þvo þvottinn.“ Flótti og fantasíur Þú hefur sagt frá því að Twilight-bækurnar hafi veitt þér innblástur. Hvernig? „Þetta eru bestu ástarsögur sem ég hef lesið. Þær eru bæði erótískar og fylltu mig andagift. Ég byrjaði að skrifa eftir að hafa lesið þær. Þær höfðu áhrif á mig á svo mörgum sviðum að ég hef ekki enn náð að skilja það til fulls. Ég held að það sama eigi við um Fimm- tíu gráa skugga – bækurnar hafa áhrif á lesendur á sviðum sem þeir skilja kannski ekki fullkomlega. Ég er mjög stolt af því, þó það hafi ekki verið útpælt eða ákveðið.“ Hvað gefa bækur þínar kvenkyns lesendum þínum? „Flótta, fantasíur og tækifæri til að kanna eigin hvatir á hátt sem þær þekktu ekki fyrir.“ En karlkyns lesendum? „Oftast maka sem er til í tuskið!“ Þú ert viss um að bækurnar hafi áhrif á kynlíf les- enda þinna? „Ég veit það fyrir víst enda hef ég fengið mikinn fjölda tölvupósta frá lesendum sem staðfesta það.“ En hverju S&M, af hverju ekki eitthvað annað? „Af því mér fannst það kynæsandi. Og mér sýnist að ég sé alls ekki sú eina.“ Klám er ofnotað orð Því hefur verið haldið fram að ef karlkyns rithöfundur myndi gefa út bók á borð við þínar yrði hann sakaður um að breiða út klám. Ertu sammála því að kvenkyns rithöfundar hafi meira frjáls- ræði en karlkyns höfundar þegar kemur að kynlífi? „Ég lít svo á að Fimmtíu-trílógían sé lostafull ástarsaga. Ef karlkyns höf- undur myndi skrifa lostafulla ástar- sögu með berorðum kynlífslýsingum vona ég að henni yrði tekið sem slíkri. Klám er ofnotað orð sem hefur tapað merkingu sinni. Þú þarft ekki annað en að líta á tímarit um gómsætan mat, og þú gæti kallað það matarklám, eða tímarit um falleg heimili og þú gætir kallað það fasteigna- klám. Ég held að klám, í þeirri merkingu sem þú átt við, sé niðurlægjandi fyrir alla sem koma nálægt því. Fimmtíu-trílógían er ekki klámfengin – enginn er niðurlægður í sögunni, allt sem gerist er öruggt og gert með samþykki allra. Og skrifað hæfilega undir rós, enda eru konur almennt ekki hrifnar af kynlífs-slanguryrðum í bókum“. Stærsti bókaútgefand- inn á Íslandi fullyrðir að allt snúist um kynlíf í bók- menntum í dag. Ertu sam- mála? „Ég myndi segja við hann að það sé ekki mjög mikið af kynlífi í Harry Potter – og samt hafa milljónir á milljónir ofan selst af þeim bókum. Bæði til full- orðinna og barna.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is F immtíu gráir skuggar fjalla um háskólastúdínu sem kynnist ung-um viðskiptajöfur og sogast inn í heim hans. Fyrsta bókin er kom-in út á íslensku, önnur kemur út í nóvember og sú þriðja í janúar á næsta ári. Bækurnar hafa sérstaklega verið umtalaðar fyrir opinskáar kynlífslýsingar, meðal annars á BDSM-kynlífi. Hafa þær gjarnan verið kallaðar mömmuklám. Höfundur bókanna er hin 49 ára gamla Erika Mitchell sem skrifar undir nafninu E L James. Hún var með öllu óþekkt þegar bækurnar komu út. Mitchell ætlaði að verða kennari þegar hún var yngri en starf- aði við framleiðslu á sjónvarpsefni í London áður að hún varð rithöfund- ur. Í frístundum las hún mikið af ástarsögum en þegar hún hóf að lesa Twilight-bækurnar fór hún að skrifa sjálf. Mitchell tók þátt í að skrifa á spjallborðum aðdáenda Twilight-bókanna og urðu þau skrif grunnurinn að Fimmtíu gráum skuggum. Líf Eriku Mitchell hefur breyst mikið síðan bækurnar komu út. Nafn hennar er nú á allra vörum og hún er á stöðugum ferðalögum til að kynna bækur sínar. Af þeim sökum svaraði Mitchell spurningum Frétta- tímans í gegnum tölvupóst. Hún tekur ekki vel í spurningar um nýtil- komið ríkidæmi sitt; segir að það eina sem hafi breyst í einkalífinu sé að hún og maður hennar hafi keypt sér nýjan bíl. Ég var dugleg við rannsóknir á netinu og var í tölvu- póstsam- skiptum við fólk sem stundar S&M-kynlíf. Mér finnst þessi S&M-heimur æsandi! Börnin mín fá ekki að lesa bækurnar Ótrúlegar vinsældir Fimmtíu grárra skugga hafa komið öllum á óvart. Bækurnar þrjár hafa selst í fjörutíu milljónum eintaka. Engin kilja hefur selst jafn hratt og hefur sjálfur Harry Potter þurft að játa sig sigraðan í þeim flokki. Höfundur bókanna er hin 49 ára Erika Mitchell sem býr og starfar í London. Hún féllst á að svara nokkrum spurningum fyrir íslenska aðdáendur sína – sem hafa tekið bókunum opnum örmum. Líf Eriku Mitchell hefur breyst mikið eftir að Fimmtíu gráir skuggar komu út. Bækurnar hafa selst í fjörutíu milljónum eintaka. Hér á landi hafa þegar yfir tíu þúsund eintök verið prentuð af fyrstu bókinni af þremur. 30 viðtal Helgin 12.-14. október 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.