Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.10.2012, Síða 54

Fréttatíminn - 12.10.2012, Síða 54
42 bílar Helgin 12.-14. október 2012 Skráning og nánari upplýsingar á imark.is RÝNT Í NEYSLUMYNSTRIÐ Lífstíll og neysla – Hádegisfyrirlestur ÍMARK með sérfræðingum frá Capacent Miðvikudaginn 17. október kl. 11.30–13.30 Grand Hótel Reykjavík í Gullteig (hádegisverður innifalinn) Á fundinum rýna Einar Einarsson og Páll Ásgeir Guðmundsson frá Capacent í þær breytingar sem hafa orðið á neyslu og lífstíl Íslendinga undanfarin ár. Hvernig hafa lífstílshóparnir þróast? Hvert stefnir þróunin? Fundarstjóri er Kristján Geir Gunnarsson fram- kvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus. Nýr Toyota Auris Touring Sports Toyota kynnti nýja skutútgáfu af Auris, Touring Sports, á bílasýningunni í París á dög- unum. Bíllinn verður boðinn í hybrid-útgáfu. Framendi Auris Touring Sports er hinn sami og á nýju Auris „hatchback“ útgáfunni og jafn langt er milli hjóla, 2,600 mm, en hann er 285 mm lengri. Með lengingunni fæst aukið farangursrými, að því er fram kemur í tilkynningu Toyota. Bíllinn er lægri en forverinn og þyngdarpunktur hans liggur neðar. Afturendinn er endurhannaður, afturhleri og stuðari. Hybrid-kerfi bílsins samanstendur af 60 kW rafmótor og 1.8 lítra VVT-bensínvél. Hægt er að aka eingöngu á rafmótornum og eingöngu á bensínmótornum. Bíllinn er 10,9 sekúndur að ná hundrað kílómetra hraða. Hámarks- hraðinn er gefinn upp 180 kílómetrar á klukkustund.  ReynsluakstuR ChevRolet oRlando Þ að er bara algjör snilld að vera á sjö manna bíl. Eiginlega nauð­ synlegt fyrir alla sem eiga börn, þó svo að þau séu ekki nema tvö eða þrjú. Sérstak­ lega svona sjö manna bíl eins og Chevrolet Or­ lando, þar sem aukasætin tvö eru falin í gólf­ inu og einfaldlega lyft upp með einu handtaki. Bíllinn getur því verið rúmgóður fimm sæta bíll með svaka stóru skotti eða rúmgóður sjö manna bíll (með nánast engu skotti, reyndar). Sjálf er ég oftast á ferðinni með yngstu börnin mín tvö. Hin eldri bjarga sér sjálf á milli staða, úr skóla í íþróttir og heim. Skutlið með yngstu börnin felur meðal annars í sér akstur frá heimili í leikskóla og skóla (ekki í göngu­ fjarlægð) og úr leikskóla og skóla í fimleika, fótbolta og breik sex daga vikunnar. Við hjónin eigum góða vini sem eru dálítið í sama pakka. Með börn á svipuðum aldri í sömu íþróttum á sama stað og okkar börn. Okkur finnst við heppin því þannig getum við fækkað skutldög­ unum um helming. Við skiptumst á. Þó er einn hængur á... börnin eru fjögur. Enginn venjulegur bíll dugar í svona aðstæð­ um því börnin eru of ung til að sitja í framsæti. Við eigum sem betur fer sjö manna bíl og vina­ hjónin líka þannig að skutl­ dögunum fækkar hjá okkur báðum úr sex í þrjá. Það er heilmikill tíma­ og peninga­ sparnaður. Chevrolet Orlando er frá­ bær bíll fyrir fjölskyldur sem vilja eiga þann kost að geta tekið aukafarþega þegar þess er þörf en vilja samt sem áður vera á nettum fólksbíl. Vel fór um tvö börn í barnastólum í öftustu röðinni nema hvað þau kvörtuðu undan því að sjá illa út því glugginn er svo hátt uppi. Ég mátaði jafnframt unglinginn minn á milli tveggja barnastóla í miðröðinni og það var held­ ur þröngt en betur sést út um gluggana þar, þó ekki alveg nógu vel fyrir þau yngstu. Bíllinn er þægilegur í akstri og fallegur og stílhreinn að innan. Maður situr hátt í bílstjórasæt­ inu og útsýnið er gott. Ég hafði gaman af því að bíllinn er greini­ lega hugsaður fyrir barnafólk því í loftinu fyrir ofan baksýnisspeg­ ilinn er sérstakur spegill svo bíl­ stjórinn sjái vel farþegana í aftursætinu. Hann er sæmilega sparneytinn af svona stórum fólksbíl að vera, dísilvélin eyðir um 7 lítrum á hverja hundrað kílómetra í blönduð­ um akstri. Verðið er hagstætt fyrir sjö manna bíl, ódýrasta gerðin er á 4.490.000 krónur. Nettur og þægilegur jepplingur Chevrolet Orlando er bíll sem hannaður er með fjöl- skylduna í huga. Hann er nettur en tekur samt sjö í sæti og er á hag- stæðu verði. Greinilega hugsað­ ur fyrir barnafólk. Plúsar + Sjö sæti + Auðvelt að breyta sætum og fá stórt skott + Léttur í stýri + Hagstætt verð fyrir sjö manna bí Mínusar ÷ Börnin sjá ekki nógu vel út Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Toyota Auris Touring Sports var kynntur á bílasýn- ingunni í París.  volkswagen up! kynning hjá heklu á laugaRdag Einn áhugaverðasti smábíll síðari ára Volkswagen up! er vel búinn bíll, þrátt fyrir að stjórntæki og umhverfi hafi verið einfaldað að mun. Hann er með yfirbragð langtum stærri bíls. Breska bílatímaritið WHAT CAR? valdi Volkswagen up! bíl ársins 2012. „Mikil borgarumferð og takmörkuð bílastæði hefur kallað á minni og liprari bíla, sem henta betur innanbæjar en eru samt fyllilega færir til lengri ferða. Afrakstur slíkrar þróunarvinnu hjá Volkswagen er up!, einn áhugaverðari smábíla sem fram hefur komið á síðari árum, og er raunhæft svar þýska bílaframleiðandans við aukinni sókn bíla í þessum stærðarflokki inn á markaðinn,“ segir í tilkynningu Heklu sem kynnir smábílinn á morgun, laugardag, klukkan 12­16. „Við fyrstu sýn er up! hreinræktaður Volkswa­ gen, helsti munurinn er sá að þrátt fyrir skyldleik­ ann við Polo og Golf eru hlutirnir bara einfaldari, en notagildið það sama,“ segir enn fremur. Undir vélarhlífinni er 1,0­lítra þriggja strokka vél. Aflið er 60 hestöfl sem gefur 95Nm snúningsvægi við 3.000 sn/mín., „þannig að hinn knái up! er sprækur og snöggur af stað.“ Vélin er búin Blue Motion Technology og eyðir 4,1 lítrum á hundr­ aðið. Einnig er væntanleg metanútfærsla í upphafi næsta árs. „up! kemur líka á óvart þegar inn er komið. Það er nægt pláss fyrir fjóra fullorðna í bílnum, þótt hann sé nánast hálfum metra styttri en VW Polo, heildarlengdin er 354 cm. Farangursrýmið er 251 lítri og hægt er að leggja fram bak aftursætis til að fá meira pláss. up! verður einungis í boði í 5 dyra útfærslu og eru afturhurðirnar með rúðum sem opnast út til hliðar, í stað þess að vera skrúfaðar niður.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.