Fréttatíminn - 12.10.2012, Page 56
Plómulitaður varalitur nýjasta
förðunartrendið
Helgin 12.-14. október 201244 tíska
Þú skapar þinn
eigin stíl
Í byrjun vikunnar vitnaði ég í Rachel Zoe á
blogginu mínu. „Style is a way to say who you
are without having to speak.“ Þessi setning
er búin að vera föst í hausnum á mér síðan og
mun fylgja mér héðan í frá. Það er svo mikið af
utanaðkomandi áhrifum í kringum okkur að
stundum getum við gleymt því í eitt augnablik
að það er bara ein ég. Núna er tíminn þar sem
maður þarf sérstaklega að passa upp á sjálfan
sig, tískuvikurnar voru að klárast. Ég verð nú að
viðurkenna að stundum á ég það til að dragast
alltof mikið inn í þær og dásama allt sem kemur
fyrir augun mín. En maður má ekki týna sínum
smekk. Það er allt í lagi að segja að manni finnst
eitthvað ekki flott og maður á aldrei að fara gegn
sinni eigin sannfæringu til að gera öðrum til
geðs. Innblástur fyrir minn eigin stíl sæki ég allt
í kringum mig og hann er sífellt að breytast því
ég er sífellt að breytast. Ég þroskast og dafna
svo það er eðlilegt að ég noti ekki alltaf sömu
fötin dag eftir dag, ár eftir ár. Eftir nokkrar
vikur verð ég mamma og þá sé ég nú ekki fyrir
mér að ég fari aftur í djammkjólana sem ég not-
aði hverja helgi þegar ég var í Verzló. Ég vona að
litlu tískuungarnir þarna úti taki þessi orð til sín
og muni að það er ástæða fyrir því að það er bara
til eitt eintak af hverju okkar.
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Erna Hrund
Hermanns-
dóttir
tískubloggari á trendnet.is
Stígur upp úr hverSdagSleikanum í SparidreSSið með Sömu flíkinni
Með fjölbreyttan
fatastíl
Hversdagsdressið Sparidressið
Heiðdís Lóa Óskarsdóttir, 21 ára förðunarfræðingur og sálfræði- og markaðsfræðinemi við Háskóla
Íslands, heldur mikið upp á svörtu buxurnar sínar sem keyptar voru í versluninni Weekday í fyrra. „Það
var sniðið á buxunum sem helst heillaði mig. Þær eru uppháar, flottar um mittið og efnið er létt og
þægilegt. Svartar buxur henta nánast öllum tilefnum, hvort sem það er hversdagslega eða ef farið er
eitthvað fínt, og skiptir það þá helst máli við hvað ég para þær.
Fatastíllinn minn er mjög fjölbreyttur, en ég reyni þó að kaupa föt sem ég held að ég muni geta notað
oft við ólík tilefni. Ég sæki innblástur á síðum eins og Tumblr, bloglovin og svo í götutískuna. Uppáhalds-
búðirnar mínar eru Topshop, Asos og H&M og held mikið upp á tískudívurnar Mary Kate og Ashley Olsen.
Valdamestu
tískuhús heims
Árlega birtir fyrirtækið Interbrand lista yfir
bestu alþjóðlegu vörumerkin og kom listinn fyrir
árið 2012 út á dögunum.
Samkvæmt listanum skaut
tískuhúsið Louis Vuitton
öðrum tískuvörumerkjum
ref fyrir rass og er titlað,
samkvæmt Interband,
valdamesta vörumerkið
árið 2012 innan tísku-
bransans. Á síðustu tólf
mánuðum var hagnaður fyrirtækisins rúmir þrír
milljarðar króna, sem er um milljarði meira en
sænski tískurisinn
H&M græddi, sem sat
í öðru sæti listans. Á
eftir H&M kom Zara, í
fjórða sæti var Gucci og
því fimmta Hermés.
Skemmta áhorfendum á helstu
undir fata sýningu heims
Hin draumkennda undirfatasýning Victoria’s Secret fyrirtækisins
verður haldin í næsta mánuði, og síðan sjónvarpað í byrjun desember,
þar sem helstu fyrirsætur heims ganga niður tískupallinn í óút-
reiknanlegum undirfötum. Tónlistarmenn sýningarinnar hafa hingað
til farið leynt en nú hefur það verið gert opinbert að ungstirnið Justin
Bieber mun syngja undir kynþokkafullu göngulagi fyrirsætna, ásamt
þeim Rihönnu og Bruno Mars. Þau feta þá í fótspor frægra tónlistar-
manna á borð við Maroon 5, Jay Z, Nicki Minaj og Kanye West.
Vínrauða förðunartrendið,
sem gerði allt vitlaust fyrr
í haust, virðist vera að
þróast áfram í átt að þeim
fjólubláa. Plómulitaður
varalitur er farinn að vera
æ meira áberandi hjá
stjörnunum í Hollywood,
hvort sem það er á rauða
dreglinum eða hversdags.
Liturinn sem er öðruvísi og
frumlegur, dregur til sín
athyglina og er fallegt að
para hann við náttúrulega
förðun eins og leikkonan
Amanda Seyfried gerir.
Gs Skór
Weekday
H&M
Asos
H&M
Gs Skór
Weekday
Asos