Fréttatíminn - 12.10.2012, Page 72
Frumsýning Tveggja þjónn eFTir richard Bean FrumsýnT í kvöld
Öllu tjaldað til á stóra sviðinu
„Þetta er frábært gamanleikrit,“
segir Jóhannes Haukur Jóhannes-
son sem fer með aðalhlutverkið í
Tveggja þjónn eftir Richard Bean,
nýju verki sem Þjóðleikhúsið
frumsýnir í kvöld. „Við erum ell-
efu leikarar í sýningunni og þótt
ég sé stærstur á plakatinu þá eru
aðrir sem bera mig uppi,“ útskýrir
Jóhannes hógvær og nefnir Örn
Árnason, Eggert Þorleifsson og
Ólafíu Hrönn í því samhengi en alls
leika 11 leikarar í sýningunni auk
hljómsveitar (KK og KK-band).
„Það er öllu tjaldað til og gaman
að taka þátt í jafn frísku leik-
riti. Þetta er nýtt verk sem ég sá
í London fyrir ekki alls löngu,“
segir Jóhannes en það er Þórhildur
Þorleifsdóttir sem leikstýrir. Jó-
hannes segir hana draga það besta
fram í öllum sem koma að sýning-
unni og að þar fari kona sem gefi
engan afslátt: „Þetta er eins og að
vera á skipi með skipstjóra sem
hefur reynslu og veit hvað hann er
að gera og þá er maður öruggur,“
útskýrir Jóhannes.
Tveggja þjónn byggir á gaman-
leik Goldonis og fjórar og fimm
stjörnur í öllum helstu fjölmiðlum
Bretlands þegar það var frumsýnt
ytra.
Jóhannes Haukur Jóhannesson fer
með aðalhlutverkið í Tveggja þjónn en
segist borinn uppi af samleikurunum.
Frumsýning þjóðleikhúsið Frumsýnir nýTT íslenskT leikriT
Meinfyndið nýtt
íslenskt leikverk
þ etta er kómedía úr samtímanum og sennilega myndi hún vera skilgeind sem frekar svört,“ segir
Hávar Sigurjónsson um nýja leikritið sitt,
Jónsmessunótt, sem nú er verið að frum-
sýna í Þjóðleikhúsinu, fyrst íslenskra
verka í stóru leikhúsunum í vetur.
Jónsmessunótt Hávars segir af þrem
kynslóðum sem koma saman í sumarbú-
stað til að fagna gullbrúðkaupi foreldr-
anna. Þetta er verk sprottið úr íslenskum
veruleika, „fjölskyldusaga – bara dúndr-
andi Dallas, eins og Þorstinn Bachmann
komst að orði á æfingu um daginn,“ segir
Harpa Arnardóttir sem leikstýrir verk-
inu. Hún segir að í verkinu kynnumst við
þessu fólki og því samskiptamunstri sem
það hefur komið sér upp. „Við kynnumst
þeirra fjölskyldumynstri sem kynslóð-
irnar endurtaka hver af annarri. Svoldið
eins og lokuð hringrás sem endurtekur
sig, aftur og aftur,“ segir Harpa.
Verk Hávars hafa verið sviðsett í
Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada en
hann hefur áður skrifað verkin Pabbast-
rákur og Grjótharðir fyrir Þjóðleikhúsið
og Englabörn og Höllu og Kára fyrir
Hafnarfjarðarleikhúsið.
„Ferlið hefur verið skemmtilegt,“ segir
Hávar sem hefur unnið náið með
bæði leikstjóranum og leikhópn-
um að sýningunni. „Það hefur gert
mikið og hjálpað mér sem höfundi
að sitja æfingar og takast á við að
þróa og breyta og reyna að fara
lengra með verkið.“
Harpa Arnardóttir hefur síðustu
20 ár verið starfandi leikkona en
hún er heldur enginn nýgræð-
ingur þegar kemur að leikstjórn.
Hún segir að það sé gaman fyrir sig sem
leikkonu að setjast í leikstjórastól. „Ég
skemmti mér vel því hér fæ ég tækifæri
til að vinna með frábærum leikurum,
eins og Kristbjörgu Kjeld, Arnari Jóns-
syni, Atla Rafni Sigurðarsyni og fleiri
frábærum leikurum. Reyndar hefur öll
áhöfnin hérna verið stórkostleg. Það
hefur verið æðislegt að vinna með öllu
þessu fólki,“ segir Harpa dreymin því að
hennar mati eru til dæmis þessir leikarar
mikil sviðsskáld („skáldskapur leikarans
er töfrandi og það er svo gaman á þessari
tölvuöld okkar að sjá hlutina gerast fyrir
framan sig“).
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Tvær frumsýningar í Þjóðleikhúsinu. Hér að ofan segjum við frá leikritinu Tveggja þjónn sem
er farsi en að neðan er fjallað um nýtt íslenskt leikrit eftir Hávar Sigurjónsson. Í vetur verða
þrjú ný verk frumsýnd eftir hann. Jónsmessunótt, Í gömlu húsi og Segðu mér satt.
Hávar Sigurjóns-
son hefur skrifað
nýtt leikrit, svarta
kómedíu.
Harpa Arnardóttir leikstýrir Jónsmessunótt sem er nýtt íslenskt verk, frumsýnt í Þjóðleikhúsinu. Ljósmynd/Hari
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Rautt – HHHHH – MT, Ftíminn
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Lau 13/10 kl. 14:00 11.k Lau 20/10 kl. 14:00 13.k Sun 18/11 kl. 14:00 15.k
Sun 14/10 kl. 14:00 12.k Sun 21/10 kl. 14:00 14.k Lau 24/11 kl. 14:00 16.k
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið og Hof)
Fös 12/10 kl. 19:00 6.k Fim 1/11 kl. 20:00 í Hofi Lau 17/11 kl. 22:00 aukas
Lau 13/10 kl. 19:00 7.k Fös 2/11 kl. 20:00 í Hofi Fös 23/11 kl. 20:00 aukas
Lau 20/10 kl. 19:00 8.k Lau 10/11 kl. 19:00 í Hofi Lau 24/11 kl. 20:00 10.k
Lau 20/10 kl. 22:00 aukas Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Lau 1/12 kl. 20:00 11.k
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur. Sýnt í Hofi 1, 2 og 10 nóvember
Rautt (Litla sviðið)
Fös 12/10 kl. 20:00 15.k Fim 18/10 kl. 20:00 18.k Sun 21/10 kl. 20:00 21.k
Lau 13/10 kl. 20:00 16.k Fös 19/10 kl. 20:00 19.k
Sun 14/10 kl. 20:00 17.k Lau 20/10 kl. 20:00 20.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar. Aðeins út október
Gullregn (Nýja sviðið)
Fim 1/11 kl. 20:00 frums Fim 15/11 kl. 20:00 8.k Lau 1/12 kl. 20:00 aukas
Fös 2/11 kl. 20:00 2.k Fös 16/11 kl. 20:00 aukas Fös 7/12 kl. 20:00 15.k
Lau 3/11 kl. 20:00 3.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Lau 8/12 kl. 20:00 16.k
Sun 4/11 kl. 20:00 4.k Sun 18/11 kl. 20:00 10.k Fös 14/12 kl. 20:00 17.k
Fim 8/11 kl. 20:00 aukas Lau 24/11 kl. 20:00 11.k Lau 15/12 kl. 20:00 aukas
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Sun 25/11 kl. 20:00 12.k Sun 16/12 kl. 20:00 aukas
Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Fim 29/11 kl. 20:00 13.k
Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fös 30/11 kl. 20:00 14.k
Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fös 26/10 kl. 20:00 1.k Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 24/11 kl. 20:00 11.k
Lau 27/10 kl. 20:00 2.k Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fim 29/11 kl. 20:00 12.k
Fös 2/11 kl. 20:00 3.k Fös 16/11 kl. 20:00 8.k Fös 30/11 kl. 20:00 13.k
Lau 3/11 kl. 20:00 4.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Fim 6/12 kl. 20:00 14.k
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Fös 23/11 kl. 20:00 10.k Fös 7/12 kl. 20:00 15.k
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum.
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 21/10 kl. 13:00 3.k Sun 21/10 kl. 15:30 aukas Sun 28/10 kl. 13:00 4.k
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Íslenski Dansflokkurinn: Októberuppfærsla (Stóra sviðinu)
Sun 14/10 kl. 20:00 Sun 18/11 kl. 20:00
Sun 21/10 kl. 20:00 Sun 25/11 kl. 20:00
It is not a metaphor, Cameron Colbert og Hel haldi sínu, Jérôme Delbey
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Lau 13/10 kl. 14:00 aukas Sun 28/10 kl. 17:00 16.sýn Sun 2/12 kl. 14:00
Lau 13/10 kl. 17:00 aukas Sun 4/11 kl. 14:00 17.sýn Sun 2/12 kl. 17:00
Sun 14/10 kl. 14:00 11. sýn Sun 4/11 kl. 17:00 18.sýn Sun 9/12 kl. 14:00
Sun 14/10 kl. 17:00 12.sýn Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn Sun 9/12 kl. 17:00
Lau 20/10 kl. 14:00 aukas Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn Lau 29/12 kl. 14:00
Lau 20/10 kl. 17:00 aukas Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn Lau 29/12 kl. 17:00
Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn Sun 30/12 kl. 14:00
Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Sun 30/12 kl. 17:00
Sun 28/10 kl. 14:00 15.sýn Sun 25/11 kl. 17:00
Sýningar í desember komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Lau 13/10 kl. 20:30 14.sýn Lau 20/10 kl. 20:30 16.sýn Fim 25/10 kl. 20:30 18.sýn
Sun 14/10 kl. 20:30 15.sýn Sun 21/10 kl. 20:30 17.sýn
Frábær skemmtun! Takmarkaður sýningafjöldi!
Tveggja þjónn (Stóra sviðið)
Fös 12/10 kl. 19:30 frums Fim 1/11 kl. 19:30 6.sýn Lau 10/11 kl. 19:30 11.sýn
Fim 18/10 kl. 19:30 2.sýn Fös 2/11 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 12.sýn
Fös 19/10 kl. 19:30 3.sýn Lau 3/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 16/11 kl. 19:30 13.sýn
Fös 26/10 kl. 19:30 4.sýn Fim 8/11 kl. 19:30 9.sýn Lau 17/11 kl. 19:30 14.sýn
Lau 27/10 kl. 19:30 5.sýn Fös 9/11 kl. 19:30 10.sýn
Óborganlega skemmtilegur nýr gamanleikur!
Jónsmessunótt (Kassinn)
Fös 12/10 kl. 19:30 2.syn Sun 21/10 kl. 19:30 7.sýn Sun 4/11 kl. 19:30 12.sýn
Lau 13/10 kl. 19:30 3.sýn Lau 27/10 kl. 19:30 8.sýn Fös 9/11 kl. 19:30 13.sýn
Sun 14/10 kl. 19:30 4.sýn Sun 28/10 kl. 19:30 9.sýn Lau 10/11 kl. 19:30 14.sýn
Fös 19/10 kl. 19:30 5.sýn Fös 2/11 kl. 19:30 10.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 15.sýn
Lau 20/10 kl. 19:30 6.sýn Lau 3/11 kl. 19:30 11.sýn
Meinfyndið nýtt íslenskt verk, svört kómedía beint úr íslenskum samtíma.
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
60 leikhús Helgin 12.-14. október 2012