Fréttatíminn - 12.10.2012, Page 74
Margrét Eir er söngkona sveitarinnar
Thin Jim. Sveitin heldur tvenna útgáfu-
tónleika á næstunni. Ljósmynd/Hari
H ljómsveitin Thin Jim, með söngkonuna Margréti Eiri í fararbroddi, gefur út sína
fyrstu plötu og fagnar útgáfunni
með tvennum tónleikum, á Græna
hattinum og í Gamla bíói. Platan
hefur verið í fimm ár í vinnslu.
Margrét segist hafa sterkar
taugar til Gamla bíós en þar hóf
hún einmitt feril sinn fyrir tæpum
áratug. „Ég var í Hárinu svo ég hef
verið nakin þar um níutíu sinnum,“
segir hún kímin, „Ég lofa nú engu
til um nekt í þetta skiptið. En það
verður samt mjög gaman,“ segir
Margrét hlæjandi.
Tónlist hljómsveitarinnar Thin
Jim er frumsamin og sækir inn-
blástur í frumkraft bandarískrar
þjóðlagatónlistar. Þar fara saman
áhrif frá blús, þjóðlagatónlist,
kántrí og popptónlistar, „það er
svona örlítill amerískur grasrótar-
tónn í þessu,“ bætir Margrét við.
Hljómsveitin hefur verið starf-
andi í fimm ár og á þeim tíma hefur
Thin Jim sent frá sér nokkur lög
sem hafa hljómað á útvarpsstöðum
landsins. Fyrsta lagið sem hljóm-
sveitin gaf út var Old union station
sem fékk mjög góðar viðtökur hér á
landi en einnig sendi sveitin frá sér
fjögurra laga útvarpsdisk til Banda-
ríkjanna, þar sem þau voru í spilun
á yfir 200 útvarpsstöðvum. Plata
sveitarinnar hefur verið í smíðum
nær allan líftíma bandsins, eða í
fimm ár. „Við ákváðum bara að gefa
okkur tíma, þetta er allt frumsamið
efni og auk þess nutum við liðsinnis
snillingsins Gary Paczosa við hljóð-
blöndunina.“ Gary er níufaldur
grammyverðlaunahafi og nýtur
mikillar virðingar fyrir verk sín.
„Þetta er auðvitað kostnaðarsamt
ferli og öll svona vinna tekur mik-
inn tíma. Við lögðum upp með að
gera þetta vel og án þess að skulda
neinum neitt.”
Athygli vekur að sjö ár eru liðin
síðan Margrét gaf síðast út plötu
og hennar síðasta plata var tals-
vert frábrugðin þeirri nýju. Þar
söng Margrét Duran Duran lög
við undirleik kontrabassaleikarans
Róberts Þórhallssonar. „Það er svo
furðulegt hvernig þau líða þessi ár,
fyrr en varir voru þau orðin sjö, ég
veit ekkert hvert þau fóru.“ Mar-
grét hefur þó hvergi nærri setið
auðum höndum síðustu árin því auk
vinnslu plötunnar bjó hún erlendis
í tvö ár þar sem hún lærði til kenn-
ara. Hún hefur einnig sungið á
tónleikum Frostrósa frá upphafi en
mun ekki koma til með að taka þátt
í tónleikunum hér á landi í ár.
Aðspurð segist hún spennt yfir
útgáfunni, en það taki samt á
taugarnar að láta frá sér frumsamið
efni. „Þetta er mjög frábrugðið öllu
sem ég hef áður látið frá mér, það er
mikið persónulegra að vinna með
frumsamið efni sem þarf að útfæra
frá grunni. Þetta svo mikil af-
hjúpun, og tilfinningarnar af því til-
efni svona blendnar. En samt mjög
góðar,“ bætir hún við.
Tónleikarnir verða þann 20. októ-
ber í Gamla bíói og þann 3. nóvem-
ber á Græna hattinum. Áhugasamir
geta tryggt sé miða á midi.is.
Margrét Eir og HljóMsvEitin tHin jiM gEfa út plötu
Fyrsta platan í sjö ár
Margrét Eir er söngkona Thin Jim. Sveitin gefur út
sína fyrstu plötu og heldur af því tilefni tvenna tónleika.
Platan var fimm ár í smíðum og nutu þau liðsinnis grammy-
verðlaunahafans Gary Paczosa við vinnslu hennar. Hljóm-
sveitin vinnur aðeins með frumsamið efni.
Hljómsveitina
Thin Jim skipa:
Margrét Eir söngur
Kristófer Jensson söngur
Birgir Ólafsson gítar
Gísli Magnason söngur
Börkur Hrafn Birgisson gítar
Scott Mclemore trommur
Eggert Pálsson slagverk
Jökull Jörgensen bassi
ritdóMur við stönduM á tíMaMótuM
Ég verð að leyfa mér að dást
að Magnúsi Orra Schram,
þingflokksformanni Samfylk-
ingarinnar, sem í vikunni gaf
út bókina Við stöndum á tíma-
mótum. Með því er ég ekki að
dæma innihald bókarinnar eða
þær skoðanir sem þar koma
fram, einungis þá viðleitni
Magnúsar Orra að koma með
jafnskýrt innlegg í umræðuna
um framtíð þjóðar eins og
hann gerir í þessari bók.
Bókin er vitnisburður um
pólitíska sýn Magnúsar Orra
– svokallað manifestó. Með henni stígur
hann fram sem fullþroskaður stjórnmála-
maður og í raun samt miklu meira en það.
Hann er hugsjónamaður af lífi og sál sem
hefur gert upp við sig hvernig hann telur
að samfélaginu farnist sem best. Hann
tekur hugmyndir sínar saman í aðgengi-
lega, vel skrifaða bók, eins konar handbók
yfir það sem hann stendur fyrir í pólitík.
Megi aðrir stjórnmálamenn taka hann sér
til fyrirmyndar.
Hugsið ykkur ef allir stjórnmálamenn
gerðu slíkt hið sama. Að með hverjum
og einum stjórnmálamanni kæmi hand-
bók yfir stefnumál þeirra og pólitíska sýn.
Kæmi það ekki í veg fyrir popúlisma og
geðþóttaákvarðanir sem eru allt of ein-
kennandi fyrir stjórnmálamenn í dag?
Handbókarskrifin neyddu jafnframt
þingmenn til að setja sig vel inn í öll þau
mál sem brenna á íslensku samfélagi og
þvingaði fram tillögur til lausnar á þeim
vandamálum sem þjóðin stendur frammi
fyrir, líkt og Magnús Orri gerir í bók sinni.
Umræðan myndi fara úr þeim skotgröfum
sem einkennir hana í dag, þar sem mesta
orkan fer í að rakka niður hugmyndir póli-
tískra andstæðinga. Hún yrði þess í stað
uppbyggjandi, jákvæð og lausnamiðuð. Er
það ekki það sem íslenskt samfélag þarf?
Magnús Orri færi fjórar stjörnur fyrir
frumkvæðið.
-sda
Aðdáunarvert framtak
við stöndum á
tímamótum
Magnús Orri Schram
Veröld, 137 síður, 2012
62 menning
www.idusalir.is • Lækjargötu 2a • Reykjavík • sími 517 5020
Magnús Orri
Schram
Helgin 12.-14. október 2012