Fréttatíminn - 12.10.2012, Síða 78
Þ egar bókin kom út í Ameríku ákvað ég að halda íslenska nafninu mínu en skjóta „The Dancing Eaglewoman
from Iceland“ fyrir aftan nafnið svo Kaninn
gætti kallað mig eitthvað,“ segir Marta
Eiríksdóttir en hún hefur komið víða við
og fékk indjánanafnið Dansandi assa hjá
indjánakonu sem hún kynntist í Arizona á
sínum tíma.
Þú skrifaðir þessa bók, Becoming Goddess
– Embracing Your Power!, á ensku: Af hverju
ertu svona góð í ensku?
„Ég er alin upp í Keflavík, “svarar Marta
alvarleg og bætir því að
fyrir ári hafi þau hjónin
flutt út til Noregs og
hún hafi í fyrstu verið
atvinnulaus og því sest
við skriftir en síðustu
20 ár hefur hún í og
með skrifað fyrir Vík-
urfréttir á Suðurnesj-
um. Víkurfréttir eru
einmitt að gefa út aðra
bók eftir Mörtu fyrir
jól og hún heitir Mei
mí beibí sit og fjallar
um æskuminningar
Mörtu í bítlabænum
Keflavík.
„Ég fæddist árið
1961 og þá var
bærinn fullur af Könum sem leigðu inni í
Keflavík og þær eru margar sögurnar og
skemmtilegar allar sem ég kann úr æsku
minni,“ útskýrir Marta en hún er nýlega
komin frá Washington þar sem hún tók þátt
í bókamessu og áritaði fyrrnefnda sjálfs-
hjálparbók fyrir Ameríkana.
En af hverju ertu komin til Noregs?
„Maðurinn minn fékk vinnu hérna og hér
er gott að vera. Auðvitað togar Ísland alltaf
en við búum í pínulitlum bæ sem liggur inn
á milli fjalla. Það er ofboðslega fallegt hérna
og ekki skemmir að eiginmaðurinn er með
helmingi hærri laun hér og
í Noregi lækka húsnæðis-
lán þegar borgað er af
þeim, þau eru ekki sífellt
að hækka eins og heima á
Íslandi. Hér þekkjast ekki
svona íslensk bankafyrir-
bæri eins og verðtryggð
húsnæðislán. Ég held það
sé alveg séríslenskt,“ segir
Marta.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
„Ekki
skemmir
að eigin-
maðurinn
er með
helmingi
hærri laun
hér og í
Noregi
lækka
húsnæðis-
lán þegar
borgað er
af þeim“
Bók Marta skrifaði Bók á ensku seM er seld á aMazon
Dansandi assa frá
Íslandi komin í útrás
Marta Eiríksdóttir var í Washington á dögunum að árita nýja bók og nú er væntanleg frá henni
bók á íslensku líka, Mei mí babí sit, sem fjallar um æskuminningar Mörtu í bítlabænum Kefla-
vík. Í Ameríku kallar Marta sig „The Dancing Eaglewoman from Iceland“.
Bókin hennar Mörtu
fæst á Amazon.
Hér er Marta í Washington að árita bækur en hægt er að finna hana á Facebook undir nafninu: Marta Eiríksdóttir – The
Dancing Eaglewoman from Iceland!
Annalísa Hermannsdóttir leikur Öldu
í Pressu. Annalísa hefur nú sína þriðju
þáttaröð í hlutverkinu, en hún var að-
eins tíu ára þegar þættirnir byrjuðu.
Í dag er hún í tíunda bekk í Garða-
skóla. Annalísa segir að sér þyki mjög
vænt um Öldu en þær séu mjög ólíkar.
„Við erum sko tvennt ólíkt. Hún er til
dæmis mjög róleg og frekar félags-
fælin en sjálf er ég mjög opin og alltaf
á ferðinni.“
Annalísa situr greinilega sjaldan
auðum höndum. „Ég er í dansi og
hestamennsku og svo er ég líka
aðeins í því að semja lög.“ Hún spilar
á píanó en þó segir hún tónlistar-
feril ekki efstan baugi. Draumurinn
sé að vera leikkona. „Það er auðvi-
tað draumurinn, en mér þykir mjög
gaman að tónlistinni líka. Ætli ég hafi
það ekki bara svona með,“ segir hún
og hlær. Hún segir að mikilla breyt-
inga sé að vænta í lífi Öldu í þáttunum
en karakterinn sé kominn á gelgjuna,
„hún er að deyja úr gelgju og lendir í
mjög slæmum félagsskap, svo það eru
hvort tveggja spennandi og ógnvekj-
andi tímar fram undan hjá henni.“
Fyrsti þáttur Pressu verður sýndur á
sunnudaginn kemur.
Pressa GarðaBæjarMærin annalísa leikur í Þriðju Þáttaröð Pressu
Ekkert lík gelgjunni Öldu
Annalísa Her-
mannsdóttir er í
10. bekk í Garða-
skóla. Ljósmynd/Hari
María Lilja
Þrastardóttir
marialilja@
frettatiminn.is
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
Farðu núna á www.bioparadis.is/klubburinn!
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝJAR MYNDIR Í BÍÓ PARADÍS!
ENGLISH SUBTITLES
THE NEW HIT FILM
FROM BALTASAR
KORMÁKUR
ENGLISH SUBTITLESVERÐLAUNAMYND
SKJALDBORGAR 2012
Grant snarar Ásgeiri yfir á ensku
Fyrsta plata Ásgeirs
Trausta Einarssonar,
Dýrð í dauðaþögn,
hefur slegið í gegn
síðan hún kom út
fyrir nokkrum vikum.
Platan hefur selst afar
vel og verið spiluð
mikið í útvarpi. Ásgeir
Trausti og hans fólk
hafa greinilega trú á
því að tónlistin eigi
erindi víðar en á litla
Íslandi því Íslands-
vinurinn John Grant hefur undanfarið setið sveittur við að snara textum Ásgeirs
Trausta yfir á ensku. Ekki er vitað hvort stefnt er að útgáfu erlendis en það verður
að minnsta kosti forvitnilegt að heyra útkomuna.
Arnaldur í
kynningarham
Ný bók Arnaldar Indriðasonar
verður gefin út 1. nóvember næst-
komandi. Ekkert hefur lekið út um efni
bókarinnar eða titil hennar. Arnaldur
hefur sjaldnast tekið mikinn þátt í
kynningum á bókum sínum en nú ber
svo við að hann hefur boðað komu sína
í sérstakt kynningarpartí. Um er að
ræða boð fyrir bóksala í næstu viku þar
sem efni bókarinnar verður kynnt og
kápa hennar sýnd. Augljóst er af þessu
að Arnaldur ætlar ekki að láta Yrsu
Sigurðardóttur hrifsa af sér hásætið
á glæpasagnamarkaði án baráttu,
en eins og kunnugt er seldi Yrsa fleiri
bækur en Arnaldur á síðasta ári.
Ásgeir Trausti Einarsson John Grant
Falleg stund í Hörpu
Bandaríska baráttukonan Rachel Corrie
var 23 ára þegar jarðýta ísraelska her-
námsliðsins í Palestínu valtaði yfir líkama
hennar og varð henni að bana. Rachel
hlaut í vikunni friðarverðlaun Lennon og
Ono. Foreldrar hennar, Craig og Cindy Cor-
rie, tóku við verðlaununum en þau voru í
Hörpu með leikkonunni Þóru Karítas sem
lék Rachel í einleik um líf hennar fyrir
nokkrum misserum. Craig og Cindy sóttu
Ísland heim þegar Þóra Karítas frumsýndi
og henni þótti vænt um að hitta hjónin
aftur. Craig og Cindy verða framsögumenn
á opnum hádegisfundi hjá Félaginu Ísland-
Palestína í dag, föstudag. Fundurinn veður
í Iðnó, Vonarstræti 3.
66 dægurmál Helgin 12.-14. október 2012