Bændablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. febrúar 2013 7 Grænna land ehf., á Flúðum, sem er alhliða garðyrkjuþjónusta á sumrin í slætti og lóðaumhirðu en vinnur með birkigreinar og hálm- kransa á veturna, gaf í vikunni landgræðslufélagi Hrunamanna birkifræ sem safnast hafa saman á vinnuborði fyrirtækisins síðasta árið. Um er að ræða 2 kg birkifræ sem koma úr trjálundum skógræktar- félagsins í Hrunamannahreppi og henta því vel fyrir það svæði. Birkifræin hrynja af greinunum, sem eru nýttar í páska- og jólaskraut, og hefur eigandinn, Erla Björg Arnardóttir, safnað þeim saman yfir árið. Vegna þess hve mikið magn er um að ræða vildi Erla að fræin nýtt- ust í eitthvert stórt verkefni og hafði samband við Landgræðslufélagið í Hrunamannahreppi sem þáði fræin til sáningar í landgræðslu- reit upp á Hrunamannaafrétti. Esther Guðjónsdóttir, formaður Landgræðslu félagsins, tók á móti fræjunum og sagði þau góða gjöf sem myndi stækka og dafna í reit landgræðslufélagsins inni á Hrunamannaafrétti. Samúel Eyjólfsson ætlar að dreifa fræjunum á næstu dögum. Hann sáir þeim í börð og á staði sem væntanlega hafa meira skjól en aðrir. Fræin voru sigtuð, hreinsuð og þurrkuð við afhendinguna, en talið er að virði þeirra sé á bilinu 350 til 400 þúsund krónur. Mikið var um að vera í Sögusetrinu á Hvolsvelli laugardaginn 2. febrúar þegar Njálurefilsverkefninu svokallaða var hleypt formlega af stað. Þá tók Vilborg Arna Gissurardóttir pól- fari fyrstu sporin í Njálureflinum. Um er að ræða 80 metra langt veggteppi og 50 cm hátt, sem mun prýða veggi Sögusetursins. Slík teppi voru eftirsótt veggskraut á söguöld. Reiknað er með að um tíu ár taki að sauma teppið en öllum er velkomið að taka þátt í saumaskapnum og öll aðstoð er vel þegin. Sérstök saumakvöld verða í Sögusetrinu og síðan geta hópar, vinnustaðir og félagasamtök pantað tíma og fengið að sauma og taka þannig þátt í verkefninu. Fjölmargir aðilar koma að verkefninu, en forsvarsmenn þess eru þær Gunnhildur E. Kristjánsdóttir og Christina M. Bengtsson á Hvolsvelli. Kristín Ragna Gunnarsdóttir, teiknari og hönnuður, myndgerði Brennu- Njálssögu á refilinn. Verkefnið hefur meðal annars fengið rúmar 1,3 milljónir króna frá Vaxtarsamningi Suðurlands og 600.000 króna styrk frá Menningarráði Suðurlands. /MHH að er að verða fastur liður að leiðrétta axar- sköft undangenginna þátta. Ekki lánaðist mér að hafa rétt eftir vísuna sem Sigríður á Kagaðarhóli las mér og leitaði höfundar að. Því birtist hún lesendum aftur: Samleik eru systurnar sorg og gleði háðar. Ef þú leitar annarrar oft þú finnur báðar. Þann 7. febrúar sl. lést í Hafnarfirði Óttar Einarsson skólastjóri og rithöfundur, einn ástsælasti hagyrðingur sinnar kynslóðar. Margar af vísum Óttars urðu landfleygar fyrir léttleika sakir og fágætrar kímni sem einkenndi hans eðlisgerð. Vísnahefðin var honum í blóð borin en eins og margir þekkja var Óttar sonur Einars Kristjánssonar frá Hermundarfelli, hins þekkta útvarpsmanns og vísnaskálds, og Guðrúnar Kristjánsdóttur frá Holti í Þistilfirði. Það er því afar viðeigandi að birta lesendum minningarljóð sem Jóhannes Sigfússon bóndi á Gunnarsstöðum orti frænda sínum og vini við hin döpru þáttaskil: Árin stöðugt æða hjá, eflist tímans hvinur. Nú er Óttar fallinn frá frændi minn og vinur. Góður drengur genginn er og gegn í alla staði. Finnst mér verði að fylgja þér ferskeytla úr hlaði. Hennar bjarta stuðla stál stöðugt þjóðin metur. Ekki hafa íslenskt mál aðrir rímað betur. Ræktarsemi öll þín ár, afar mikils virði. Á grávíðinum glitra tár í gamla Þistilfirði. Ég átti fágæt bréfaskipti við Óttar á sl. vetri, sem verða sínu dýrmætari þegar hans nýtur ekki lengur við: Höndin þó sé hætt að skrifa háttum bundna stuðlagrein, vísur þínar lengi lifa og lýsa upp þinn bautastein. Vísur Óttars einkenndust margar af óvanalegri kímni, og skopaðist hann oft að eigin viti og verðleikum: Að sumu leyti Óttar er afar klár og slyngur. Annars bara eins og hver annar vitleysingur. Frá skólastjóraárum Óttars við Húsabakkaskóla í Svarfaðardal lifa ótal vísur og bragir. Hver man ekki erindið sem hann samdi við lagboðann „Love me tender“: Dalvíkin er draumablá og dýrðleg til að sjá. Ofar stendur Upsafjall eins og gamall kall. :Sólin skín á stein og stekk og stúlku í fyrsta bekk: Brageyrað sagðist Óttar hafa úr föðurættinni, en glaðværðina frá móður sinni. Þessum einkennum hélt Óttar til hinsta dags þrátt fyrir erfið veikindi: Óttar vantar aðeins hlíf, axlar þunga byrði. Yrkir sig í sátt við líf sem er einskis virði. Vín er ekkert voða gott, varla tóbak heldur. Að vera edrú finnst mér flott og fínt að vera geldur. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggd1@gmail.com Líf og starf MÆLT AF MUNNI FRAM Þ Brennu-Njálssaga saumuð á næstu 10 árum í Sögusetrinu á Hvolsvelli – Vilborg Anna pólfari mætti til að taka fyrstu sporin Vilborg Arna Gissurardóttir, pólfari sem tók fyrstu saumasporin í Njálurefl- inum, sem mun taka 10 ár að sauma. Myndir / MHH Systurnar frá Barkarstöðum í Fljótshlíð, þær Margrét og Helga Sigurðardætur fengu mynd af sér með Vilborgu Örnu, pólfara. Sigurður Hróarsson, forstöðumaður Sögusetursins notaði að sjálfsögðu tækifærið og las stuttan kafla úr Njálssögu við athöfnina. Hann fagnar líka því lífi sem mun færast inn í Sögusetrið þegar fólk hópast í húsið til að taka þátt í saumaskapnum. Svona mun hluti af Njálureflinum líta út þegar búið verið að sauma í hann. Grænna land ehf. á Flúðum: Gaf birkifræ að and- virði 400.000 króna Esther Guðjónsdóttir (t.h.), formaður Landgræðslufélagsins í Hrunamanna- hreppi, þegar hún tók við Birkifræjaafhendingunni hjá Erlu Björg, eiganda Grænna lands á Flúðum. Fræin höfðu safnast saman hjá Erlu á síðasta ári.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.