Bændablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. febrúar 2013 Haraldur Benediktsson lætur af formennsku í Bændasamtökunum á komandi búnaðarþingi eftir níu ára setu: Ætlaði aldrei að verða formaður – Þurfti að berjast við bankastofnanir sem vildu flytja alla mjólkurframleiðslu á Suðurland eftir hrunið Talsverð tímamót verða á komandi búnaðarþingi, en þá mun Haraldur Benediktsson láta af embætti formanns Bændasamtaka Íslands eftir níu ára setu. Haraldur er aðeins annar formaður Bændasamtakanna eftir að þau voru stofnuð með sameiningu Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda árið 1995, en Ari Teitsson hafði gegnt því embætti á undan honum. Fram undan eru líklega miklir breytingatímar hjá Haraldi, en hann situr í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Af skoðanakönnunum að dæma má gera ráð fyrir að hann eigi þingsæti næsta víst og bætist bændum því öflugur málsvari á Alþingi á komandi kjörtímabili. Það er trauðla hægt að segja að formannstíð Haraldar hafi verið tíðindasnauð. Á síðastliðnum níu árum hafa bændur þurft að kljást við efnahagshrun, eldgos á Suðurlandi, óvægna umræðu um matarverð og umsókn um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Haraldur hefur því mátt, sem formaður Bændasamtakanna, taka ófáa slagi. Það er um sumt athyglisvert í því ljósi að Haraldur ætlaði sér aldrei að verða formaður. „Nei. Ég var aldrei með það á stefnuskránni að verða formaður Bændasamtakanna. Þegar Ari nefndi þetta fyrst við mig, í desember 2003, var þetta mér algjörlega framandi hugsun og ég tók þessu mjög fálega. Einhvern tíma í lok janúar tók ég hins vegar nýja ákvörðun eftir mikla áskorun minna félaga. Ég var þá tilbúinn að láta reyna á hvort ég næði kjöri en fram að því hafði ég aldrei hugsað mér að verða formaður Bændasamtakanna.“ Haraldur var einungis búinn að sitja á búnaðarþingi í eitt kjör- tímabil þegar hann bauð sig fram til formanns. „Ég var nýlega orðinn formaður Búnaðarsamtaka Vesturlands, hafði barist fyrir þeirri kosningu. Ég hafði metnað fyrir því að verða þar for- maður, sinna því með mínum búskap. Ég hafði áhuga á því og heilmiklar hugmyndir. Mér fannst sem ég hefði fundið mína hillu í félagsmálum og annað var ekki í kortunum.“ Vill taka áhættu Það átti hins vegar eftir að breytast. Ari Teitsson, þáverandi formaður Bændasamtakanna, gaf út að hann hygðist láta af formennsku í janúar 2004. Við tóku miklar vangaveltur um arftaka hans og skiptust menn mjög í horn í afstöðu sinni varðandi það hver væri best til þess fallinn að taka við af honum. „Ég get upplýst það núna að 12. desember, á fundi formanna búnaðar- sambandanna í Bændahöllinni, tekur Ari mig tali. Hann segir að hann þurfi að gera upp hug sinn varðandi það hvort hann gefi áfram kost á sér sem formaður Bændasamtakanna. Ef svo færi að hann myndi hætta væri ég örugglega einn af þeim sem þyrftu að hugsa sig um. Hann var ekki að biðja mig um að gefa kost á mér, heldur var hann að skjóta því að mér að ég þyrfti að skoða stöðuna. Ég tók því afar fálega,“ segir Haraldur og bætir því við að hann hafi ekki rætt mögulegt formannsframboð við fjölskyldu sína né aðra fyrst um sinn. „Nei, ég ræddi þetta samtal mitt við Ara ekki við einn eða neinn og ég hef aldrei sagt frá þessu áður. Ég man ekki hvenær ég ræddi þetta fyrst en það er eftir að Ari gefur út að hann hyggist hætta. Þá er komið fram framboð til formanns, Þórólfur Sveinsson hafði þá gefið kost á sér. Svo fer þetta að stigmagnast í janúar. Þeir sem við mig töluðu geta væntan- lega staðfest það að ég neitaði stað- fastlega langt fram eftir mánuðinum. Alveg þangað til að Rögnvaldur Ólafsson kom að Reyni og ákveður þetta endanlega, eins og ég veit að hann myndi vilja orða þetta. Ég er þannig innréttaður að ég er oft alveg til í að taka áhættu í stað þess að velta mér upp úr því seinna hvað hefði orðið. Það var í raun stór hluti af ákvörðuninnni en ekki að ég hefði haft sérstakan metnað fyrir því að verða formaður.“ Haraldur segir að á þessum tíma hafi hann séð fyrir sér marga aðra bændur sem vænlegri formannsefni en hann sjálfan. „Já, já, ég sá flesta aðra en mig sem hefðu getað gert þetta. Í fyrsta lagi taldi ég ekki endilega tímabært fyrir Ara að hætta, ég hafði ekki verið óánægður með hans störf. Þegar hann tekur svo sína ákvörðun þá gátu ýmsir, í mínum huga, tekið þetta að sér.“ Hefur tvisvar ætlað að hætta Kosningarnar til stjórnar á búnaðarþingi árið 2004 voru á margan hátt magnaðar að sögn Haraldar. „Það var tekist mjög hart á. Í kjölfarið á formannskosningu þurfti því að sætta fylkingar. Þá fóru í raun og veru fram stjórnarmyndarviðræður og að endingu kaus búnaðarþing stjórn eftir tillögu minni og fleiri þingfulltrúa. Það var hins vegar svo magnað val á mönnum að við erum fjórir búnir að sitja allan tíman og hættum núna allir saman. Sveinn Ingvarsson, sem hefur verið minn varaformaður allan tíman og minn bakhjarl, Jóhannes Sigfússon, sem hefur verið annar varaformaður, og Sigurbjartur Pálsson, sem hefur verið foringi okkar í ESB-málum. Við höfum staðið vel saman þennan tíma. Vináttu þeirra og stuðning fæ ég aldrei fullþakkað, frekar en annara sem hafa verið með mér í stjórn þennan tíma.“ -Hvað hugsaðir þú svo eftir fyrsta kjörtímabilið? Varstu ákveðinn í að gefa kost á þér áfram? „Ég hugsaði mér að hætta eftir það. Mér fannst fyrsta kjörtímabilið mjög erfitt. Það var þungur róður, ekki síst fyrstu tvö árin. Það helgast kannski af því að maður var að læra og ekki búinn að ná tökum á starfinu. Síðan bý ég auðvitað við það að ég er fyrst og fremst bóndi. Ég bý með mitt bú sem ég á með minni konu og við eigum lítil börn. Í bæði skiptin sem ég hef verið kosinn aftur hef ég þurft að taka ákvörðun um að halda áfram, það hefur ekki verið augljóst í mínum huga að þannig yrði það. Ég viðraði það eftir þrjú fyrstu árin að ég myndi vilja hætta. Mér var hins vegar leitt fyrir sjónir að það væri kannski ekki skynsamlegt eftir að hafa eytt þeim tíma í að koma mér inn í málin. Eftir annað kjörtímabilið velti ég því líka fyrir mér að hætta, sex ár væru kannski bara ágætur tími í þessu starfi. Þá voru hins vegar aðeins breyttar aðstæður. Það höfðu orðið framkvæmdastjóraskipti á miðju kjörtímabili þar sem Sigurgeir Þorgeisson hætti og Eiríkur Blöndal tók við af honum. Ég gerði hins vegar upp við mig þá að það yrðu mín síðustu ár á formannsstóli. Þeirri ákvörðun ætlaði ég ekki að kvika frá. Rétt eins og fyrir níu árum, þegar ég bauð mig fram sem formann, var ég fyrir hálfgerða tilviljun kominn í þá stöðu að vera frambjóðandi til Alþingis og fékk ég talsverðan þrýsting á mig að halda áfram sem formaður Bændasamtakanna en svo lét ég mína þriggja ára gömlu ákvörðun standa.“ -Er ákvörðunin um að hætta sem formaður ekki líka tengd því að tími þinn verður takmarkaður, verðir þú kjörinn á þing, auk þess sem þú þarft að sinna þínum búskap? „Það var auðvitað úrslitaatriðið. Mér þykir einfaldlega svo vænt um búskapinn hjá okkur hjónunum að ég ætla að halda áfram að vera bóndi og á sama tíma mun ég gera mitt besta til að standa mig sem frambjóðandi og síðan vonandi sem alþingismaður.“ Lilja Guðrún hryggsúlan í búskapnum -Hefur búskapur ykkar hjóna liðið fyrir setu þína á formannsstóli Bændasamtakanna? „Já, það er klárt. Það er mikið af illa viðgerðum hlutum, teipuðum vatnsleiðslum og ókláruðum verkefnum,“ segir Haraldur og glottir. Hann bætir því við að þessi níu ár hafi þó einnig verið tími uppbyggingar á bæ þeirra hjóna, hans og Lilju Guðrúnar Eyþórsdóttur á Vestri-Reyni. „Það er ekki hægt að segja að ég hafi goldið fyrir þennan tíma öðruvísi en að ég varð að vinna meira. Þetta hefði hins vegar auðvitað aldrei gengið öðruvísi en vegna þess að Lilja Guðrún er hryggsúlan í stjórnun og rekstri búsins. Ég hef verið henni svona hálfónýtur vinnumaður, stöku sinnum. Ég á ekki heiðurinn að því að búskapurinn hefur ekki farið niður á við. Það er hennar heiður. Á þessu tímabili bættist okkur hjónum eitt barn til viðbótar, fyrir fjórum árum. Ég er væntanlega fyrsti formaðurinn sem fer í feðraorlof, og Sveinn leysti mig af. En árið sem Guðbjörg okkar fæddist var ansi strembið að láta allt ganga upp, svona meðfram öllu því sem fylgdi efnahagshruninu. Við höfum annað slagið á þessum tíma haft mjög gott vinnufólk og til viðbótar átt frábært bakland í fjölskyldu minni sem hefur ítrekað aðstoðað okkur við að halda búskapnum á floti, hvort sem það hafa verið heyskapur, mjaltir eða annað. Ég vil þar nefna Valnýju systur mína, Ingiberg mann hennar og Hjálmar frænda minn. Þau hafa verið lífakkeri okkar allan þennan tíma. Það er ekki tímabært að þakka þeim fyrir núna, þau eru ekkert laus út úr þessu,“ segir Haraldur hlæjandi. Viðbragðsáætlun dregin upp úr skúffunni Haraldur segir að mörg verkefni for- manns Bændasamtakanna hafi tekið í á síðustu níu árum. Meðal þeirra hafi efnahagshrunið auðvitað verið hvað fyrirferðarmest, ESB-umsóknin en einnig matarverðsumræðan sem var mjög þung fyrir hrun. „Árin 2006 til 2007 tók verulega í að halda máli landbúnaðarins á lofti. Ég held að enginn geri sér grein fyrir því hvað við stóðum í raun tæpt þegar allt var hér í blóma í efnahagslífinu. Þjóðin hélt á þessum tíma að hún væri orðin svo rík að hún ætti ekki að framleiða mat sjálf. Tvímælalaust var það með erfiðustu tímunum. Það var síðan auðvitað erfitt að takast á við afleiðingar hrunsins. Þegar maður segir frá fyrstu dögum hrunsins hljóma þeir eins og skáldsaga, þegar við fórum inn í stofnanir og unnum að því að halda hjólunum gangandi. Við höfðum tekið þátt í stefnumótunarvinnu árið 2006, sem reyndar bar ekki ávöxt, en hluti af þeirri vinnu var að setja niður viðbragðsáætlun ef hér á landi yrðu umfangsmiklar náttúruhamfarir eða efnahagshrun. Einhverra hluta vegna hafði ég geymt þennan lista og ég dró hann upp úr skúffunni daginn sem bankarnir hrundu. Ég vil meina að það hafi skipt máli, að það var búið að hugsa um hvað þyrfti að tryggja, hvað ekki mátti stoppa. Síðan þurfti að eiga samskipti við stjórnendur lánastofnana. Það þurfti að koma þeim í skilning um að ekki væri hægt að setja stopp á búskap, þar væri lifandi búfé og heimili bænda. Svo voru auðvitað eldgosin bæði erfiðir tímar. Allt hefur þetta rifið í, þannig að þetta er búinn að vera óskaplega fjölbreyttur tími.“ Sveiflast öfganna á milli -Þú nefnir matarverðsumræðuna sem mjög erfitt viðfangsefni. Var alvara í því að aflétta tollvernd og breyta landbúnaðarkerfinu á árunum 2006-2007, þannig að óhindrað yrði hægt að flytja matvæli hingað til lands? „Já, við vorum að fást við það að tillögur lágu fyrir sem hefðu kippt grundvelli undan íslenskri búvöruframleiðslu. Með samtilltu átaki nokkurra lykilmanna sem þá voru á þessum vettvangi, eins og hinum sterka landbúnaðarráðherra Guðna Ágústssyni, Geir H. Haarde sem á þessum tíma verður forsætisráðherra og Ögmundar Jónassonar, tekst að bjarga þessu máli. Þegar ég horfi á tillögur matvælaverðsnefndarinnar sem Halldór Ásgrímsson skipaði, Haraldur segir að búrekstur á Vestri-Reyni ha í formannstíð hans verið að mestu leyti á herðum konu hans, Lilju Guðrúnar Eyþórsdóttur. g á ekki heiðurinn að því að búskapurinn hefur ekki farið niður á við. Það er hennar heiður, segir Haraldur, sem hér er ásamt Lilju Guðrúnu og Guðbjörgu dóttur þeirra. Myndir / smh

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.