Bændablaðið - 21.02.2013, Síða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. febrúar 201310
Fréttir
Lummudagar haldnir í fimmta sinn
Lummudagar í Skagafirði verða
haldnir í fimmta sinn á komandi
sumri, síðustu helgina í júní, og
verður hátíðin sérlega glæsileg af
því tilefni, að því er fram kemur
í tilkynningu. Dagskráin er enn í
mótun en venju samkvæmt verða
götuskreytingar, götumarkaður og
götugrillin á sínum stað.
Í tilefni þess að Árni Stefánsson
íþróttakennari fagnar 60 árum á
þessu ári verður efnt til Árnahlaups
laugardaginn 29. júní honum til heið-
urs og verða þrjár hlaupaleiðir í boði
Nú er um að gera að taka helgina
frá, skipuleggja fjölskylduhitting,
bekkjarmót, saumaklúbbshitting
eða hvað svo sem er, segir í
tilkynningunni, en þar eru brottfluttir
Skagfirðingar hvattir til þess að
koma heim þessa helgi og taka þátt
í hátíðarhöldunum.
/MÞÞ
Menningarráð Eyþings:
Styrkjum að upphæð 26 milljónir króna úthlutað
Menningarráð Eyþings úthlutaði
nýverið rúmlega 26 milljónum
króna til menningarstarfs á
starfssvæði sínu í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum við athöfn í
Menningarhúsinu Tjarnarborg
Ólafsfirði.
Alls bárust um 100 umsóknir að
þessu sinni, að upphæð um 60 millj-
ónir króna. Þetta er í níunda sinn sem
úthlutað er styrkjum samkvæmt sam-
starfssamningi mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytis, atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytis og sveitar-
félaga í Eyþingi um menningarmál.
Í ár eru liðin sex ár frá undirritun
fyrsta menningarsamningsins
við ríkið og á þessum árum hafa
menningarráðinu borist 788
umsóknir alls. Hafa 448 verkefni
hlotið verkefnastyrk, samtals að
upphæð 160 milljónir króna.
Ljóst er að þetta samstarf hefur
skilað miklum ávinningi á öllu starfs-
svæði Eyþings til að efla menningar-
líf og menningartengda ferðaþjón-
ustu. Í árangursmati á menningar-
samningum sem Rannsóknarstofnun
Háskólans á Akureyri framkvæmdi
koma glögglega í ljós jákvæð áhrif
samningsins.
Menningarráðið leggur jafnan
áherslu á að þau verkefni sem hljóta
styrki efli á einhvern hátt samstarf
og/eða samvinnu í menningarmálum
á Norðausturlandi eða dragi fram
menningarleg sérkenni svæðisins.
Áherslur við úthlutun þessa árs
eru meðal annars á verkefni sem
stuðla að samvinnu atvinnumanna
í listum, listnema og leikmanna,
verkefni sem hvetja til samstarfs
einstaklinga, hópa, byggðarlaga
eða listgreina, verkefni sem efla
atvinnustarfsemi á sviði menningar
og lista og verkefni sem fela í sér
samstarf við önnur lönd á sviðið
menningar og lista.
Skagaströnd:
Hitaveita lögð í sumar
Framkvæmdir eru hafnar við
að leggja vatnshitunarkerfi
í leikskólann Barnaból á
Skagaströnd, en hann hefur verið
hitaður með rafmagnsþilofnum
og neysluvatn hitað í tveimur
rafmagnshitakútum. Auk þess að
leggja nýtt hitakerfi í húsið verður
neysluvatnskerfið endurnýjað.
Á vef Skagastrandar kemur
fram að leggja eigi hitaveitu um
Skagaströnd á komandi sumri
og hafist handa við leikskólann
fyrst, en síðar á að breyta
eignum sveitarfélagsins í þeim
tilgangi að tengjast hitaveitunni.
Framkvæmdin er ekki einföld
þar sem leikskólinn er byggður
í tveimur byggingar áföngum og
í fullri starfsemi alla virka daga.
Verkið er því að mestu unnið utan
dagvinnumarka. Þar sem tenging
við hitaveitu verður ekki í boði
fyrr en næsta haust verður að halda
rafhitunarbúnaði þar til tenging
getur farið fram.
Fram undan eru síðan breytingar
á öðrum fasteignum sveitarfélagsins
sem hafa verið hitaðar með sama
hætti og leikskólinn. Sveitarfélagið
á ellefu íbúðir sem eru nú hitaðar
með rafmagnsþilofnum og auk þess
eru nokkrar aðrar byggingar með
þeim hitunarbúnaði.
Veiðileyfi í Laxá í Skefilsstaða-
hreppi , sem er falleg lítil dragá sem
fellur til sjávar í Sævarlandsvík við
vestanverðan Skagafjörð, eru nú
komin í sölu.
Áin var friðuð í nokkur ár eftir
skelfilegt ár sumarið 1999. Var þá svo
komið að laxastofn var varla lengur
til staðar í ánni eftir mikla rányrkju
áranna á undan, að því er fram kemur
á vefsíðunni agn.is. Síðan þá hefur
verið unnið merkilegt ræktunarstarf
í Laxá þar sem veiðifélagið hefur
í samvinnu við Veiðimálastofnun
staðið að hrognagreftri á vænlegum
stöðum í ánni. Ræktun með þessum
hætti krefst mikillar þolinmæði en
hefur þó reynst árangursrík. Eftir tíu
ára veiðibann hefur veiðimönnum
aftur gefist kostur á að bleyta færi í
ánni á undanförnum árum.
Meðalveiði áranna 1974 til 1999
er 111 laxar, minnst 10 árið 1999
en mest 245 árið 1980. Menn stíga
þó varlega til jarðar og er farið
hægt af stað. Fyrstu tvö árin eftir
að veiðar voru leyfðar aftur var
veiðitímabilið aðeins 30 dagar. Nú
hefur einhverjum dögum verið bætt
við en þó er veiðitímabilið enn sem
komið er einungis 44 dagar.
Veiði hefur gengið ágætlega á
undanförnum árum, meðalveiði
reynst ca. einn lax á stöng á dag. Í
Laxá er veitt á tvær stangir og eru
seldir stakir dagar frá morgni til
kvölds. Veiðileyfum fylgir gamalt og
gott steypt hús sem hefur verið mikið
endurnýjað. Húsið er bæði rúmgott
og skemmtilegt. Þar er svefnpláss
fyrir allt að ellefu manns. Gasgrill
er að sjálfsögðu á staðnum.
Veiðileyfi seld á ný í Laxá í Skefilsstaðahreppi eftir friðun
Myndir / MÞÞ
Menningarráð Eyþings úthlutaði á dögunum um 26 milljónum króna í styrki til menningarstarfs á starfssvæði sínu.
„Hefur blómlegt menningarlíf áhrif
á búsetuval?“ er yfirskrift málþings
sem Upplit, menningarklasi
uppsveita Árnessýslu, boðar til í
tengslum við aðalfund sinn sem
haldinn verður á Hótel Gullfossi
í Brattholti laugardaginn 23.
febrúar. Málþingið hefst kl. 14.
Sérstakur gestur málþingsins
verður Ragnheiður Jóna Ingimars-
dóttir, menningarfulltrúi Eyþings.
Hún lauk námi í nútímafræði frá
Háskólanum á Akureyri árið 2005 og
meistaraprófi í menningarstjórnun
frá Háskólanum á Bifröst 2012. Hún
á að baki fjölbreytta reynslu af rekstri
og stjórnun verkefna og hefur starfað
sem menningarfulltrúi Eyþings frá
árinu 2007.
Erindi Ragnheiðar Jónu ber yfir-
skriftina „Skiptir menning máli?“
og er því ætlað að virka sem kveikja
að umræðum meðal fundarmanna
að því loknu. Þar mun hún segja frá
menningarstarfi á Norðurlandi eystra
og þróunarverkefni sem nú er að fara
af stað á jaðarsvæði Þingeyjarsýslu.
Verkefninu er ætlað að laða
ungt menntað fólk í menningu og
listum ættað af svæðinu heim til
að standa fyrir metnaðarfullum
menningarverkefnum. Þetta tengir
Ragnheiður Jóna svo við niðurstöður
meistaraprófsrannsóknar sem hún
vann við Háskólann á Bifröst um
samfélagsleg áhrif uppbyggingar
atvinnustarfsemi á sviði menningar
og lista í fámennum byggðarlögum.
Málþing um menningarstarf á landsbyggðinni:
Hefur blómlegt menningarlíf
áhrif á búsetuval?
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir
Frá afhendingu viðurkenningarinnar í húsakynnum Rauða krossins á
Akureyri, vinnufélagarnir Grétar, Steingrímur og Sigurður.
Björguðu lífi í sláturhúsinu
Tveir starfsmenn Norðlenska,
Grétar Guðmundsson og
Steingrímur Stefánsson, björguðu
vinnufélaga sínum Sigurði
Samúelssyni þegar hann fór í
hjartastopp síðastliðið haust
og hlutu fyrir það afrek viður-
kenningu frá Rauða krossinum.
Hún var afhent í starfsstöð RKÍ á
Ákureyri á 112 daginn.
Sigurður var við vinnu sem
verkstjóri í sauðfjársláturtíð á
Húsavík 5. október 2012 þegar hann
fór í hjartastopp og féll í gólfið.
Grétar heyrði skyndilega öskur
í vinnusalnum og gerði sér strax
grein fyrir því að eitthvað var að
gerast. Hann hleypur á vettvang og
sér þá Sigurð liggjandi á gólfinu,
og að hann er farinn að blána.
Grétar byrjar strax endurlífgun með
hjartahnoði ásamt vinnufélaga sínum
Steingrími S. Stefánssyni. Á meðan
á endurlífguninni stendur virðist
Sigurður detta inn annað slagið, að
því er fram kemur í frétt á heimasíðu
Rauða krossins á Akureyri.
Aðstæður á vettvangi voru mjög
erfiðar vegna þrengsla og bleytu en
þeir Grétar og Steingrímur héldu
áfram að hnoða þar til hjálp barst frá
lögreglu og sjúkraliði. Sigurði voru
svo gefin tvö hjartastuð, og komst
fljótlega í gang aftur. Grétar gekk svo
í það að rýma til á vettvangi, færa til
skrokka og biðja fólk að víkja, svo
bera mætti Sigurð út af staðnum í
sjúkrabílinn.
Grétar og Steingrímur eru báðir
björgunarsveitarmenn og hafa fengið
margvíslega þjálfun í skyldihjálp.
Óhætt er að segja að þeir félagar hafi
bjargað lífi Sigurðar með viðbrögðum
sínum. Síðar kom í ljós að kransæðar
voru stíflaðar hjá Sigurði, auk
þess sem hann reyndist vera með
hjartagalla. Hann fékk gangráð og
gat hafið störf fljótlega. /MÞÞ