Bændablaðið - 21.02.2013, Side 39

Bændablaðið - 21.02.2013, Side 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 21. febrúar 2013 Skrumskæling lýðræðis er leiðin til glötunar. Að telja fólki trú um að það að setja ,,X“ á blað á fjögurra ára fresti hafi mikið með lýðræði að gera hlýtur að vera einhver mesta blekking sögunnar. Þessi blekkingarleikur elur af sér samþjöppun valds og einhæfni í lagasetningu. Kjörnir fulltrúar tengjast vafasömum skúmaskotum þröngra sérhagsmuna. Hrossakaup og baktjaldamakk er partur af pólitískri tugþraut. Dómarar vel valdir og skipaðir. Embættismannakerfið rótgróinn fléttulisti fjórflokksins. Vinavæðingin þéttriðin. Ráðningaferli seðlabankastjóra lélegur brandari til áratuga. Forseti Íslands er eini þjóðkjörni fulltrúinn í æðstu valdastöðu. Ráðamenn ræða helst við þjóðina í fjölmiðlum. Umfjöllun fjölmiðla bítur seint og illa. Þar er bæði um að kenna hagsmunatengslum í bland við þekkingar- og tímaskort. Einstaka starfsmenn fjölmiðla virðast hafa einlægan vilja til upplýsingagjafar og eiga hrós skilið fyrir viðleitni, en það ristir sjaldan djúpt og gerir lítið gagn. Umfjöllun fjölmiðla, í undanfara bankahrunsins árið 2008, segir allt sem segja þarf. Mér er til efs að einhver hafi spurt opinberlega ,,hver ber ábyrgð á Icesave ef illa fer?“ svo dæmi sé tekið. Einfaldar spurningar af þessu tagi hefðu mögulega getað sparað íslensku þjóðinni umtalsverða fjármuni og tíma. Fulltrúar þjóðarinnar? Kjörnir fulltrúar ættu að tryggja ríkisbúskapinn en tekst það mjög takmarkað, að mínu mati. Ástæðan er sennilega valdagræðgi, eigin- hagsmunapot og skortur á fjár- málalæsi. Eitt er þó verra en gjör- samlega gagnslaus snyrtipinni og jafnvel skaðvaldur í sölum Alþingis. Það er illa upplýstur kjósandi, sem kemur honum til valda. Miðað við núverandi lýð- ræðisfyrirkomulag má líkja þessu við barn, sem kaupir áfengi handa virkum alkóhólista. Ekki fögur mynd. Allt of fáir taka allt of stórar ákvarðanir fyrir hönd þjóðarinnar, sem þjóðin er illa upplýst um, skilur lítið í og skiptir sér lítið af. Lýðræði, flokksræði, ráðherra- ræði, foringjaræði, þingræði, peningaræði og önnur hugtök af svipuðum toga, hafa verið notuð til þess skilgreina grundvöll hins þrískipta valds, sem við búum við. Grunnurinn er hinsvegar skaðræði, sem leynist í núverandi lýðræðis- fyrirkomulagi. Birtingarmyndin er fulltrúalýðræði með þingbundinni stjórn. Hversu gagnlegt var það í aðdraganda bankahrunsins? Við verðum að breyta fyrirkomulaginu frá skaðræði til raunverulegs lýð- ræðis, í besta skilningi þess hug- taks. Ég skora á frambjóðendur, hvar í flokki sem þeir standa, að pólitískt láti þeir hvorki hóta sér né kaupa, heldur standi í lappirnar á grundvelli almannahagsmuna, ásamt því að fullnægja kröfu um fjármálalæsi. Úrbætur Fjármálaöryggi þjóðarinnar á að hámarka en ekki kollvarpa. Kjósendur verða að gera kröfur til frambjóðenda. Það er að hluta kjósendum að kenna, eða þakka, hvernig fer. Hugtökin hægri og vinstri virðast skipta fólk litlu máli, sem reynir frekar að átta sig á hvað snýr upp og hvað snýr niður. Á þessu þarf að skerpa. Stefnu ráðandi afla verða að fylgja skýr skilyrði. Í stjórn sýslunni þarf harðari varnagla. Hér verða að eiga sér stað áþreifanlegar úrbætur, t.d. á fjármálakerfi, hagstjórn, lýðræði, umfjöllun fjölmiðla um stjórnmál og fjármál, auk kennslu í fjármálalæsi á öllum skólastigum. Venjulegir kjósendur og skattgreiðendur geta ekki setið aðgerðalausir. Okkur ber siðferðileg skylda til þess að sinna öflugu aðhaldi og virku eftirliti, ásamt því að krefjast úrbóta og fylgja þeirri kröfu eftir. Orðin tóm eru aum en verkin tala best. Öll verðum við að leggja lóð okkar á vogarskálina, ekki vegna þess sem við fáum, heldur þrátt fyrir að færa fórnir. Í þeirri frómu ósk felst hagur þjóðarinnar, öryggi og styrkur. Pétur Fjeldsted Einarsson Í stjórn Hægri grænna info@peturfjeldsted.is X Blekkingarflokkurinn Veiðifélög eru stofnuð að öllum þeim sem að vatnasvæði liggja. Þau eiga að sjá til þess að umgangur og afrakstur vatnasvæðis sé með skipulögðum hætti til að stunda sjálfbæran búskap þar sem allir aðilar séu jafnsettir. Húsfélög í fjölbýlishúsum eru stofnsett af sömu nauðsyn. Þau fara með sameiginlega hagsmuni félaga þar sem á engan skal hallað. Innan veiðifélaga hafa samt verið stofnaðar veiðideildir þar sem sérstakar uppeldisstöðvar nytjafiska liggja að. Þeir sem þær stofna sitja yfirleitt einir að sölu veiðileyfa fyrir sínum árbökkum en eru samt félagar í veiðifélaginu og gera sig manna breiðasta á aðalfundum veiðfélagsins. Reynum að sjá samhengi í þessu tvennu með tilbúnu skálduðu dæmi og svo raunverulegu. 12 hæða blokk Hugsum okkur 12 hæða íbúðablokk. Lög um fjölbýli gilda um þessa blokk eins og aðrar. Á efstu hæð í 12 hæða blokk býr framtakssöm fjölskylda. Hún auglýsir að gegn greiðslu gjalds geti menn fengið að snæða fiskrétti sem hún eldar á sinn hátt. Menn komi með fiskinn sjálfir og eldi að nafninu til sjálfir á vél sem er tengd við rafkerfi stigagangsins en ekki íbúðarinnar. Það eina sem gestir eru rukkaðir fyrir er afnot af húsnæði og sérstökum gulldiskum sem er ekki vsk-skylt. Þetta verður óhemju vinsælt og fólk flykkist að. Ódýrara en veitingahús sem bera 7% vsk. Mikil umferð er um lyftur og stiga, sem þó allir íbúar greiða fyrir. Fyrir utan kostnað vegna stigahússins og lyftunnar eru bílastæði upptekin fyrir utan, mikið tyggjóálág á stéttunum, viðhald lyftu er stóraukið o.s.frv. Aðrir íbúar hússins fá enga hlutdeild í góðum tekjum efstu hæðar. Íbúi á 2. hæð er kannski framtaks- samur og hann reynir að sannfæra gesti um að fara ekki ofar og koma með sinn fisk til sín. Hann leggur út skrautlegar auglýsingar á netgrunna sem allir geta séð. Íbúar efstu hæðar verða ókvæða við þessu og reyna að fá bæjaryfirvöld til að hindra þetta áreiti. Þeir eigi gestina sem eins konar kvóta þar sem þeir hafa veitinga(veiði)reynslu. 2. hæð sé að taka frá þeim gesti sem þeir eiga vegna veiðireynslunnar. Efsta hæð fær Landssamband Veitingahúsa til að beita sér í Bændablaðinu og beita þrýstingi á allan hátt. Jafnvel fá þingmenn til að leggja fram lagafrumvörp á Alþingi gegn íbúanum á 2. hæð. Tungufljótsdeild Veiðifélags Árnesinga Dæmið um húsfélagið og 12 hæða blokkina má líka bera saman við vatnasvið Ölfusár og Hvítár sem nær milli Þingvallavatns og Sogs austur fyrir Gullfoss í Hvítá og frá Stóru-Laxá og til sjávar. Á þessu svæði starfar Veiðifélag Árnesinga. Það hefur látið afskiptalausa starfsemi sérstakra svokallaðra veiðideilda ofarlega á þessum svæðum. Í Tungufljóti í Bláskógabyggð sem er í efsta hluta gríðarlega þessa viðfeðma vatnaviðs Hvítár fer fram svipað leikrit og áður var lýst með húsfélaginu í 12 hæða blokkinni. Þar stofnuðu nokkrir framtakssamir bændur efst á vatnasvæðinu veiðideild, svokallaða Tungufljótsdeild, innan (húsfélagsins) Veiðifélags Árnesinga. Þeir gerðu samning við landskunnan og framtakssaman aðila, Lax-Á og Árna Baldursson, um að setja upp stórkostlegt fiskiræktarævintýri sem þeir kölluðu svo í Tungufljóti. Líffræðilega er ekki um annað en hafbeitarverkefni að ræða sem höfundar kjósa að kalla fiskirækt. Ástæðan er að Tungufljót býður ekki náttúruskilyrði fyrir laxsastofn. Sem blasir auðvitað við því annars hefði alltaf verið þarna lax af náttúrunnar hendi. En svo hefur aldrei verið eins og allir vita og Jón Kristjánsson fiskifræðingur benti stofnendum Tungufljótsdeildar á þetta á undirbúningsstofnfundi deildarinnar í Aratungu. Áin er einfaldlega of köld, straumhörð og gróðurvana til að lax fái þar þrifist. Staðbundin harðger bleikjustofn hefur hinsvegar lifað í ánni um aldir og hefur veiðst talsvert bæði í net og á stöng, sem Bergstaðamenn og fleiri hafa árlega nýtt sér. Þetta hafbeitarverkefni í Tungufljóti gekk vel enda er Árni vanur maður. Þarna varð til stórkostleg stangveiði í laxi sem mokseldist. Allir fiskar að mestu jafnstórir enda jafngamlir og fjöldinn í hlutfalli við sleppinguna. Bændur neðar á sameiginlega vatna- svæðinu í ánni veiddu sjálfsagt líka meira í netin sín og lax veiddist á stöng þar sem ekki veiddist lax áður. En auðvitað veiddist mest næst við sleppistaði laxins eins og eðli hans er. Neðan við Faxa hnappaðist laxinn en virtist illa komast upp stigann gamla. Tungufljótsdeild og Lax-Á kostuði seiðin alfarið og seldu veiðileyfin. Aðrir við fljótið veiddu auðvitað fyrir sig í smáum stíl og töldu sig vera í sínum góða rétti fyrir eigin landi. En þeir í nýju deildinni sáu fljótt ofsjónir yfir veiðum annarra og sendu til dæmis lögreglu á Bergstaðamenn og sagði þá veiðþjófa þótt þeir væru á eigin landi. En Bergstaðir eru næsti bær við sleppistaðinn og bakkarnir þeim megin eru langtum bestir til veiðanna. Bergstaðamenn voru frá upphafi mótfallnir stofnun Tungufljótsdeildar og þá aðallega af líffræðilegum forsendum. Þeir töldu bleikjustofninum verða hættu búna af hafbeitarverkefninu sem og því miður varð raunin. Þeir renndu að sjálfsögðu stöng og netum eins og þeir voru vanir að gera áratugum saman fyrir bleikjuna. En nú kom aðeins lax á veiðarfærin allt til þess að lögregla kom og bannaði þeim alla veiði í ánni sem þeir héldu fram að þeir ættu rétt til fyrir sínu landi. Landeigendur, á Bergstöðum, vildu heldur ekki una miklum ágangi veiðimanna á vegum Lax-Ár á landi sínu sem liggur að veiðisvæðinu. Tungufljótsdeildarmenn sendu menn óhikað í óleyfið og sögðu að Bergstaðamenn væru skyldaðir til að vera aðilar að deildinni sem þeir vildu hvorki vera í né stofna. Enga arðskrá fyrir Tungufljótsdeild lögðu forsvarsmenn fram svo að fyrsta afgjaldið frá Lax-Á lenti í fjárhirslum forystumanns deildarinnar og liggur þar enn að sögn. Líklega kemur það aldrei til úthlutunar meðal landeigenda. Bergstaðamenn hafa frá upphafi talið að lögin væru skýr um það, að annaðhvort starfaði Veiðifélag Árnesinga allt í deildum eða ekki. En á það var ekki hlustað frekar en annað. Tungufljótsdeild heldur því áfram með ágang sinn. Nú kemur skyndilega fram frumvarp á Alþingi að nýjum veiðilögum. Einhverjir héldu að þarna væri um framför að ræða sem leiddi til þess að veiðifélög myndu eftirleiðis annaðhvort starfa öll í deildum eða ekki. En framkvæmdin ætlar að verða sú að þetta sé aðeins til að festa starfsemi svokallaðrar Tungufljótsdeildar í sessi. Rétt eins og í húsfélaginu í blokkinni sem fyrr var lýst virðast nú mega vera veiðideildir sumstaðar en annarsstaðar ekki, þar sem bændur ráðstafa veiði hver fyrir sínu landi og hirða allan arð af án tillits til þeirra sem búa á neðri byggðum í þessu fjölbýli. Veiðifélag Árnesinga Veiðifélag Árnesinga verður skiljanlega að stjórna allri sleppingu seiða á öllu vatnasvæðinu. Enginn er til þess bær annar. Sleppingar hófust samt í Tungufljóti án þess að tilskilin leyfi hefðu verið fengin. Sú staða kom því upp að Veiðifélag Árnesinga taldi sig ekki geta samþykkt áframhaldandi óheftar seiðasleppingar í Tungufljót ár hvert. Ýmsir drógu líka í efa að uppruni seiðanna sem sleppt var í ána væri af Hvítárstofni. Féll seiðaslepping því niður um tíma. Þá dó það, sem kallaðist af þeim sleppingamönnum „laxastofninn í Tungufljóti“, umsvifalaust út. Og því miður, bleikjustofninn, sem var þar fyrir og hafði verið þar frá örófi alda, virðist nú útdauður af völdum sleppilaxsins þessi sumur sem seiðum var sleppt. Allavega sést engin bleikja við ítrekaðar kafanir á vegum Bergstaðamanna í ánni. Staðan er einfaldlega sú í veiðimálum þarna efra að nú veiðist ekkert í Tungufljóti, hvorki lax né bleikja og verður þannig þangað til að stórsleppingar laxaseiða eða þá bleikjuseiða hefjast að nýju. Auk þessa sást all vel að laxinn gekk lítið eða ekki upp stigann í Faxa sem þá er ekki að virka eins og skyldi þrátt fyrir yfirlýsingar um að hann hefði verið endurbættur í tilefni af hafbeitinni. Vatnasvæðum eins og Ölfusár og Hvítár er sem fyrr segir reynt að stjórna með stofnsetningu Veiðifélags sem eru sambærileg við húsfélög í fjölbýlishúsum. Þau eiga væntanlega að stuðla að því að menn nýti sameiginlega auðlind án þess að ganga á rétt annarra. En því er ekki að heilsa í Tungufljóti. Þar beita bændur í veiðideildinni nágranna sína ofríki, vaða yfir þá hiklaust og krefjast þess að þeir láti land sitt möglunarlaust undir þessa starfsemi þeirra án þess að nokkur tilraun sé gerð til að ræða málin. Fer oddviti sveitarstjórnar fyrir flokknum með þessum hætti og sparar sig hvergi. Stofnun svonefndrar Tungufljótsdeildar fór líka fram með þeim hætti að sumir bæir komu með fleiri atkvæði en aðrir töldu að þeim bæri og hafa Bergstaðamenn lengi haldið því fram að deildin sé ólöglega stofnuð. Í reynd er þetta sumstaðar þannig á vatnasvæðum, að á veiðistöðum sem tengjast uppeldisstöðvum laxins, mynda menn svokallaða veiðideild sem hirðir allan ágóða af laxveiðinni sem þar fer fram. Svo er um Stóru-Laxárdeild sem er einnig á vatnasvæðinu. Aðrir sem eiga aðeins lönd að umferðarbrautum laxsins leggja sumir net til að reyna að ná sér í hlutdeild í laxatraffíkinni eða veiða á stöng við hávær mótmæli deildafólksins.. En sú fiskirækt sem Veiðifélag Árnesinga ætti auðvitað að standa fyrir er aðeins í mýflugumynd miðað við það sem ætti að vera. Enda félagið staurblánkt og máttlaust vegna þess að engin heildarstjórnun á sér stað. Það er alrangt hjá þeim Hreggviði og Lýði í grein í Bændablaðinu 3. tölublaði 2013 að Bergstaðamenn hlakki yfir þessari stöðu. Þvert á móti vilja Bergstaðamenn efla Veiðifélag Árnesinga með öllu móti en eru á móti sérgæsku deildabrölts. Samantekt Allir ættu sjá að þetta fyrirkomulag er fyrrkomulag ójöfnuðar alveg eins og dæmið um húsfélagið hér að ofan. Menn ættu ekki að geta nýtt sameiginlega auðlind án þess að allir aðilar komi að í einu veiðifélagi. Sanngirni ætti að ráða því hvernig skipt væri. En höfuðatrið er að það er Veiðifélag Árnesinga sem á að fara með öll veiðimál og stjórna auðlindinni öllum til góða. Ekki einstakir smákóngar eins og við Tungufljót og Stóru-Laxá. Eða til hvers er þá Veiðifélag Árnesinga eiginlega? Spyr sá sem ekki veit við þessar aðstæður. Veiðifélag Árnesinga ætti í huga þess sem hér skrifar að vera öflugt félag sem stundaði fiskirækt í stórum stíl, seldi veiðileyfi og ræki eftirlit og þjónustu. Mokveiði yrði þá um allt vatnasvæðið öllum til hagsbóta og allir legðust á eitt að laða að sér veiðimenn. Náttúrulegir laxastofnar myndu myndast þar sem skilyrði leyfðu. En í stað þess er Veiðifélag Árnesinga lítið félag með svo þröngan fjárhag að engar nýjungar komast að meðan einstöku laxveiðigreifar á vatnasvæðinu græða fyrir sig eingöngu. Í framhaldsgrein verður þetta rakið nánar. Halldór Jónsson Af húsfélögum og veiðifélögum Pétur Fjeldsted Einarsson Með setningu laga um landshluta- verkefni í skógrækt árið 1999, mörkuðu stjórnvöld þá stefnu að stórauka skógrækt í landinu. Samkvæmt lögunum var mark- mið verkefnanna að skapa skógar- auðlind á Íslandi og treysta með því byggð og efla atvinnulíf. Ræktaður skyldi skógur á a.m.k. 5% af láglendi landsins. Niðurskurður ekki alfarið kreppunni að kenna Nú eru liðin á fjórtánda ár frá þess- ari lagasetningu og skógarbændur hafa sannað að auðveldlega er hægt að uppfylla markmið laganna segir á heimasíðu Norðurlandsskóga. Stjórnvöld hafi hins vegar ekki staðið við sinn hlut, þar sem fjár- veitingar hafa verið skornar niður allt frá árinu 2005, þannig að ekki er hægt að kenna kreppunni alfarið um niðurskurð til skógræktarmála í landinu. Stjórnvöld voru byrjuð að skera niður á góðæristímum þegar smjör virtist drjúpa af hverju strái í landinu. Skiljanlega hefur skógræktarstarfið þurft að taka á sig skerðingar eins og aðrir í kjölfar efnahagshrunsins, en skógræktin hefur þó verið meðhöndluð mun harkalegar í þeim aðhaldsaðgerðum en önnur sambærileg verkefni hins opinbera. Vonandi hafa stjórnvöld kjark „Nú hlýtur að vera komið að því að skógrækt í landinu fái leiðréttingu sinna mála og framlög til landshluta- verkefnanna og annarrar skógræktar- starfsemi í landinu verði hækkuð verulega á næstu árum. Það er hag- kvæmt fyrir þjóðarbúið í heild að auka skógrækt. Vonandi hafa stjórnvöld kjark til þess að líta til framtíðar og fjárfesta í auðlind sem á eftir að skila komandi kynslóðum arði og auknum lífs gæðum,“ segir á vef Norðurlandsskóga. /MÞÞ Samdráttur í skógrækt – tugir ársverka hafa tapast

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.