Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1965, Side 26

Læknablaðið - 01.12.1965, Side 26
52 LÆKNABLAÐIÐ innar bæði á sviði sýkla- og vefjarannsókna aukin til mik- illa muna, enda var þess mikil þörf. Prófessor Dungal átti hug- myndina að byggingu Blóð- bankans og beitti sér mjög fyr- ir þeirri framkvæmd. Áður en bankinn tók til starfa, iiafði Rannsóknarstofan haft með höndum allar blóðflokka- ákvarðanir. Með ört vaxandi blóðgjöfum hafði sú starfsemi aukizt svo mjög, að eigi var unnt að koma henni þar fyrir. Hefur síðan komið á daginn, live nauðsynleg þcssi ákvörðun var. Starf Dungals við læknadeild Háskólans var margþætt. Auk kennslunnar, sem áður er getið, tók hann mikinn þátt í stjórn Háskólans. Ilann var rektor hans árin 1936 til 1939. Forseti læknadeildarinnar var hann oft. Hann var allra kennara deild- arinnar ráðhollastur kandídöt- um um framhaldsnám erlendis og styrkveitingar bæði úr inn- lendum og erlendum sjóðum, enda mun enginn íslenzkur læknir hafa farið jafnvíða sem hann. Hann fylgdist vel með þeim kandídötum, sem leitað höfðu ráða hans eða hann ætl- aði sérstök hlutverk. Hann var einn hvatamanna að stofnun háskólakvikmvndahúss, Tjarn- arbiós, i því skvni að bæta efna- bag Háskólans. Yar hann lengi í stjórn þessa fyrirtækis og batt við það miklar vonir. Síðasta hálfan annan áratug beitti prófessor Dungal sér mjög fyrir krabbameinsrannsóknum. Áltu þessar rannsóknir hug lians allan. Hann fór viða um lönd og heimsótti fleslar braut- ryðjandastofnanir í þessari grein bæði austan liafs og vest- an. Hann hóf merkilegar til- raunir hér við Rannsóknarstof- una á þessu sviði og beitti sér mjög fyrirstofnun bæðilvrabba- meinsfélags Reykjavíkur og Krabbameinsfélags Islands. Hann liafði óbilandi trú á mikl- um árangri þessara samtaka, enda virðist sú trú hans vera að rætast. Hinn eldlegi áhugi lians á þessu efni, ril hans og ræður, innan lands og utan, vöktu mikla athygli, enda hlaut þcssi starfsemi mikla viður- kenningu með ríflegri stvrkveit- ingu til krabbameinsrannsókna hér frá bandarísku heilbrigðis- stofnuninni. Er þessum merki- legu athugunum hér óbætanlegt tjón að fráfalli prófessors Dung- als. Níels Dungal var frábær elju- og afkastamaður. Hann rilaði fjölda greina um hugðarefni sin í innlend og erlend læknarit. Veit ég ekki annan islenzkan lækni komast til jafns við hann á þessu sviði. Um margra ára skeið gaf hann út „Fréttabréf um heilbrigðismál“, sem hann ritaði einnig að mestu leyti. Auk

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.