Læknablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 68
90
LÆKNABLAÐIÐ
Hr erleh4m lœkharitutn.
Githens, J. H., Elliot, F.E., Saun-
ders, L. H.:
The Relation of Socioeconomic
Factors to Incidence of Childhood
Leukemia. Public Health Reports;
July 1965, 573—578.
Gerð er grein fyrir niðurstöð-
um rannsóknar í Colorado á
sambandinu milli félagslegra og
efnahagslegra aðstæðna annars
vegar og tíðni blóðlýsu í börn-
um bins vegar. Rannsóknin náði
yfir tímabilið 1941—1959. Blóð-
lýsutilfelli fimm síðustu ár
tímabilsins voru 2.7 sinnum
fleiri en fimm fyrstu árin. Til-
fellin í borgum voru 21/-* sinni
fleiri en í sveitum. í stórborg
voru tilfellin af blóðlýsu 2—4
sinnum fleiri hjá börnum úr
þeim stéttum, sem höfðu bezt
félagsleg og efnahagsleg skil-
yrði, en hjá þeim, sem bjuggu
við verstan efnahag, þröngt og
slæml húsnæði.
Munurinn gæti verið vegna
arfgengi, spillts andrúmslofts,
röntgengeislunar, tíðni entero-
veirusýkinga, jafnvel munar á
mataræði o. fl.
Það bendir til sambands milli
veirna og blóðlýsu, að tilfellin
eru færri hjá hinum fátækari,
en það er áþekkt fyrirbæri og
með mænusótt, áður en bólu-
setningar urðu almennar. Ö-
næmi gæti fengizt snemma á
lífsleiðinni hjá þeim, sem búa
við óhreinlæti. E. Á.
Tilraunarannsóknir á kali.
(Experimental Studies in Cold
Injuries).
Höfundar eru C. A. Wheatley,
White, M.D., Bruce Paton, M.R.C.
B.F.R.C.S., Björn Sjörström, M.D.
Greinin er í Plastic and Recon-
structive Surgery, Vol. 36, no. 1,
July 1965, á 10. bls.
Höfundar greina frá aðal-
kenningum á kalskemmdum
eða kuldaskemmdum á vefjum,
en þær eru aðallega tvær. Ann-
ars vegar er talið, að aðal-
skemmdin verði vegna frumu-
dauða við kuldaáverka og hins
vegar, að vefjaskemmdirnar
stafi aðallega af stíflun í háræð-
um, sem liggja að hinu kalna
svæði.
Höfundar telja, að um hvort
tveggja sé að ræða. Grundvallar-
atriði um íhaldssama (con-
servativa) nteðferð, sem Wash-
burn hefur nýlega birt, en þau
eru liröð upphitun í 42° C í
heitu vatni, nákvæmt hreinlæti
með fysohex-böðum, að balda
hinum skemmdu líkamshlut-
um óhreyfanlegum og vernda
þá gegn hnjaski, gefa fúkalyf
og forðast aðgerðir, fyrr en
drepið er orðið algerlega af-
markað. Eru flestir sammála
um þessi atriði. Hins vegar
greinir menn mjög á um að-
ferðir lil að auka blóðrásina í
hinn skemmda vef. Iiöfundar
reyndu að framkalla jafnar kal-