Læknablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ
81
Greinarhöfundur er skurölœknir á
handlækningadeild Landspítalans.
Hann kynnti sér slysaskuröiœkning-
Hannes Finnbogason: ar í Bretlandi á þessu ári.
AÐGERÐIR VIÐ LIÐAGIKT
í HÖNDUM.*
Rheumatoid arthritis hefur
allt fram á hin síðari ár nær
eingöngu verið læknaður með
lyfjum. Eftir síðustu heims-
styrjöld fóru skurðlæknar í vax-
andi mæli að fást við bæklað-
ar hendur eftir slysfarir stríðs-
ins. Eftir því sem reynslan jókst
á þessu sviði skurðlækninga,
fóru menn einnig að lagfæra
hæklaðar hendur eftir liðagikt.
Smám saman varð mönnum
ljóst, að oft er hægt að koma
í veg fyrir þessa bæklun og firra
liðagiktarsjúklinga miklum og
langvinnum óþægindum með
því að gera aðgerðir, áður en
liðagiktin hefur náð að eyði-
leggja liðina.
Tilgangur þessa erindis er að
vekja athygli á þessum tiltölu-
lega nýju möguleikum í með-
ferð liðagiktar í höndum.
Það skal þó í upphafi taka
fram, að aðgerðir við liðagikt
koma ekki í staðinn fyrir lyfja-
meðferð, heldur auka mögu-
leikann til þess að lækna þenn-
an algenga sjúkdóm og byggist
* Erindi ílutt í Læknafélaginu
Eir 26. okt. 1965.
því á samstarfi lyflækna og
skurðlækna.
Liðagiktin er fyrst og fremst
bólga í þeli (synovia), himnu
þeirri, sem klæðir liðpokann að
innan og heinið innan liðpok-
ans að hrjóskröndinni. Þelið
klæðir einnig sinaskeiðar að
innan. Það er sí-rakt og liált,
vegna þess að teningsfrumur
þess framleiða slím (mucin),
sem er protein-polysaccharid
komplex, en liðvökvinn er dia-
lysat úr hlóðvökva með þessu
slími bættu út í.
Liðagikt hyrjar með hólgu i
þeli. Smám sanian myndast frá
þelinu granulations-vefur, kall-
aður pannus. Vefur þessi fyllir
hrátt Iiði og sinaskeiðar og veld-
ur skemmdum á liðbrjóski og
sinum. Bólgan verður jafnframt
umhverfis liðinn. Eyðing lið-
hrjósks, þykknaður liðpoki og
hindraðar hreyfingar sina leggj-
ast síðan á eitt með að full-
komna hæklun liðagiktar.
AðaluiJjnstaðan í kírurgískri
meðferð á liðagikt er að nema
hurtu þetta sýkta þel, sem er
ekki lengur sú hin sama hjálp-