Læknablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 51
LÆKNABLAÐIÐ
73
samningum fyrir hönd lækna,
sem eru í opinberri þjónustu.
Miklar umræður urðu um
sanmingana, og tóku eftirfar-
andi læknar þátt í þeim: Gunn-
laugur Snædal, Ölafur Björns-
son, Jón Þorsteinsson, Arinbjörn
Kolbeinsson, Ólafur Bjarnason,
Páll Sigurðsson, Valgarð Björns-
son, Bagnar Ásgeirsson og Frið-
rik Sveinsson.
Yalgarð Björnsson bar fram
tvær breytingartillögur við upp-
kast að samningunum: A bls.
1 bætist við nýr liður f: Hér-
aðslæknar með kr. 30.000.00
mánaðarlaun.
A bls. 3 i samningsuppkast-
inu komi: Fyrstu aðstoðar-
læknar“ í stað kandídatar.
Báðar tillögurnar voru sam-
þykktar samhljóða.
Gunnlaugur Snædal lagði til,
að mál um kjarasamninga væri
falið stjórn L.l. og láunamála-
nefnd, og var það einróma sam-
þvkkt.
Næsta mál á dagskrá var:
Tillögur uin breytingar á nú-
gildandi lögum L.í.
Formaður gerði stutta grein
fvrir hreytingartillögunum, en
þær höfðu áður verið kynntar
á siðasta aðalfundi L.í. Laga-
greinarnar voru siðan bornar
upp hver fyrir sig.
1. gr.:
Reikningsár félagsins verði
almanaksárið.
Samþykkt einróma.
2., 3., 4., 5., 6. og 7. gr. sam-
þykktar einróma.
8. gr. breytist þannig:
í stað: „fyrir lok september-
mánaðar“ komi: „að aðalfundi
loknum.“
Samþykkt einróma.
Breytingartillaga frá Lf.
Norðvesturlands, að i annarri
málsgrein standi: „júlí—sepl-
ember“ var samþykkt.
9. gr. Breytingartillaga við
4. mgr.:
I stað: „Formaður stýrir
fundi“ komi: „Formaður til-
nefnir fundarstjóra.“
Önnur breytingartillaga við
síðustu málsgrein 9. gr. I stað:
„Formann má o. s. frv.“ komi:
„Stjórnarmenn má ekki endur-
kjósa í sama embætti tvö tíma-
bil í röð.“
Þannig brej’tt var 9. greinin
samþykkt samhljóða.
10. gr. breytist þannig:
í stað: „fyrir lok september-
mánaðar“ komi; „að aðalfundi
loknum“.
Tillaga þessi samþykkt með
atkvæðum allra fundarmanna,
að einum undanskildum, er var
á móti.
Við 12.gr. fluttu Páll Sigurðs-
son og Ásmundur Brekkan
sameiginlega breytingartillögu.
12. gr. orðist þannig:
„Læknafélag Tslands semur
um kaup og kjör lækna í um-
boði svæðafélaganna. Fimm
manna nefnd sér um samnings-
gerðir. Nefndin er þannig skip-