Læknablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 55
LÆKNABLAÐIÐ
77
gagna í vísindalegum til-
gangi fást í kaupbæti söfn
upplýsinga, sem nauðsynleg-
ar eru til rannsókna á starfs-
tækni, vinnuhagræðingu,
einingaafköstum og skipu-
lagsatriðum einstakra deilda
eða stærri eininga í lieil-
brigðisstofnunum.
Kerfi og forskriftir.
Nauðsynlegt er að gæta fyrir-
hyggju og nákvæmni við söfn-
un upplýsinga, er nota skal sem
úrvinnslugögn í rafeindasam-
steypu.
Þegar í upphafi upplýsinga-
söfnunar verður að gera áætlun
um verkefnið, sem vélunum er
ætlað til úrvinnslu. Á þeirri
áætlun er síðan hyggð forskrift
(program) um úrvinnsluþætti.
Raunverulega eru þeir mögu-
lcikar, sem hægt er að gera for-
skriftir um, jafnmargþættir og
heili manns og hugur. Hins
vegar verður, þegar gerðar eru
forskriftir um úrvinnslu ákveð-
inna gagna, að takmarka sig
við ákveðinn hóp upplýsinga.
Gæla verður þess við söfn-
un upplýsinga, að ekki sé um
endurtekningar að ræða. Eink-
um á þetta við, ef nýjum upp-
lýsingum er bætt inn í eldri
forskrift.
Crvinnslugögn, sem ætluð
eru rafeindasamsteypu, verða
að vera í talna- eða hókstafa-
kerfum. Yerður því að gera þær
kröfur til upplýsinganna, að
þeim verði auðveldlega gerð
skil í slíkum kerfum. Þessi
kerfi (codar) geta orðið allflók-
in og mismunandi eftir því,
hvaða vélasamsteypur eru not-
aðar. Algengastar eru talna- eða
bókstafasamstæður, sem, flokk-
aðar á ýmsa vegu, tákna mis-
munandi ritaðar upplýsing-
ar eða niðurstöður í forskrift
þeirri, sem úrvinnsla er síðan
gerð eftir.
Hér hefur aðeins verið hreyft
nokkrum kynnisatriðum um
undirbúning að úrvinnslu með
rafeindavélum. í næstu blöðum
mun leitazt við að kynna þessi
mál nánar með aðstoð sérfræð-
inga.