Læknablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 43
LÆKNABLAÐIÐ
69
Tillagan var samþykkt ein-
róma.
Um tillögu nr. 2 frá L.R.,
sem rakin er hér að framan,
urðu enn töluverðar umræður,
og tóku þátt í þeim Arinbjörn
Kolbeinsson, Jón Þorsteinsson,
Öskar Þórðarson, Páll Sigurðs-
son, Gunnlaugur Snædal og Ás-
mundur Breklcan. í lok þessara
umræðna var borin fram breyt-
ingartillaga frá Arinbirni Kol-
beinssyni varðandi þelta mál,
svobljóðandi:
„Aðalfundur L.Í., baldinn i
Reykjavík 24. og 25. júní 1965,
ályktar að fela stjórn félagsins
að gera tillögur um nýjar leiðir
til samninga um kjör og ráðn-
ingafyrirkomulag lækna, sem
starfa fyrir ríki og bæ. Einnig
kanni stjórn félagsins, hversu
ahnennur vilji er meðal lækna
að losna undan núverandi
launalcerfi opinberra starfs-
manna.“
Tillaga Arinbjörns var sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum.
Þá var tekin fyrir tillaga nr.
3 frá L.R. svohljóðandi:
„Aðalfundur L.Í., haldinn í
Reykjavík dagana 24. og 25.
júní 1965, lýsir yfir stuðningi
sinum við tillögur sjúkrabús-
málanefndar L.R., er sam-
þykktar voru á aðalfundi L.R.
10/3 1965.“
Eftir stuttar umræður (Ólaf-
ur Björnsson og Gunnlaugur
Snædal) var tillagan borin upp
og samþykkt með samhljóða
atkvæðum.
Tillaga nr. 4 frá L.R.:
„Aðalfundur L.Í., baldinn i
Reykjavík dagana 24. og 25.
júní 1965, mótmælir harðlega
niðurskurði á fjárveitingu til
spítalabygginga á fjárlögum
þessa árs.“
Tillaga þessi var borin upp
og samþykkt með samhljóða
atkvæðum allra fundarmanna.
Þá var tekin fyrir eftirfarandi
lillaga nr. 5 frá L.R.:
„Aðalfundur L.I., haldinn í
Reykjavík dagana 24. og 25.
júní 1965, ályktar að fela stjórn-
inni að kanna eða hlutast til um
könnun á fyrirkomulagi lækna-
stöðva í nágrannalöndunum
með tilliti til endurskipulagning-
ar læknisþjónustu í dreifbýli og
þéttbýli hérlendis.“
Miklar umræður urðu um lil-
löguna, og tóku þátt í þeim
Jón Þorsteinsson, ÖlafurBjörns-
son, Páll Sigurðsson, Guðmund-
ur Karl Pétursson, Ásmundur
Brekkan og Arinbjörn Kol-
beinsson. í lok umræðna var
borin fram eftirfarandi breyt-
ingartillaga við tillögu L.R.:
„Aðalfundur L.Í., haldinn í
Reykjavík dagana 24. og 25.
júní 1965, ályktar að fela stjórn-
inni að hafa samráð við stjórn
L.R. og læknisþjónustunefnd
Reykjavíkur um könnun á fyr-
irkomulagi læknastöðva í ná-
grannalöndum með tillili til
endurskipulagningar læknis-