Læknablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 58
80
LÆKNABLAÐIÐ
Hörður Þorleifsson var hinn 30.
sept. 1965 viðurkenndur sérfræð-
ingur í augnlækningum. Hann er
fæddur í Reykjavík 28. maí 1928,
stúdent frá M.R. 1948, cand. med.
vorið 1954. Hann var námskandí-
dat á Landspítalanum, en síðan
staðgöngumaður héraðslæknisins
í Hvammstangahéraði í átta mán-
uði. Almennt lækningaleyfi fékk
hann 26. febr. 1956; skipaður hér-
aðslæknir í Hvammstangahéraði
1. marz 1956 og gegndi því starfi
í fimm ár. Sérnám í augnlækn-
ingum í London í sex mánuði,
Uppsölum í 2V2 ár, Umeá í sex
mánuði (taugalækningar) og á
Borgarspítalanum í Reykjavík í
átta mánuði. (lyflækningar). Sér-
fræðiritgerð: Red Filter Treat-
ment of Eccentric Fixation. Hörð-
ur hefur opnað lækningastofu í
Rvík.
*
ísleifur Halldórsson hefur verið
skipaður héraðslæknir í Hvolshér-
aði frá 1. sept. 1965, og Guðsteinn
Þengilsson hefur verið skipaður
héraðslæknir í Suðureyrarhéraði
frá 1. okt. 1965.
*
Settir héraðslæknar.
í Bakkagerðishéraði: Haukur S.
Magnússon, héraðslæknir í Aust-
ur-Egilsstaðahéraði, frá 1. apríl
1965, ásamt sínu eigin héraði, og
Þorsteinn S. Sigurðsson, héraðs-
læknir í Norður-Egilsstaðahéraði,
frá 1. nóv. 1965, ásamt sínu eigin
héraði.
í Þingeyrarhéraði: Aðalsteinn
Pétursson, héraðslæknir í Flateyr-
arhéraði, frá 1. apríl 1965, á.samt
sínu eigin héraði, og Bragi Guð-
mundsson cand. med. frá 1. júlí
1965 til 31. maí 1966.
í Súðavikurhéraði: Ásgeir Jóns-
son stud. med. frá 1. júní 1965
og Valdemar Hansen cand. med.
frá 25. ágúst 1965 til 30. sept. 1965.
í Neshéraði: Eyjólfur Þ. Har-
aldsson stud. med. frá 1. til 30.
júní 1965 og Þórir Arinbjarnarson
cand. med. frá 1. júlí 1965.
í Vopnafjarðarhéraði: Magnús
Lyngdal Stefánsson cand. med. frá
16. okt. 1965.
í Hvammstangahéraði: Helgi Þ.
Valdimarsson cand. med. frá 7.
okt. 1965 til 30. sept. 1966.
*
Þorgeir Gestsson, héraðslæknir
í Hvolshéraði, hefur fengið lausn
frá embætti frá 31. ágúst 1965.
Hann hefur opnað lækningastofu
í Reykjavík.