Læknablaðið - 01.12.1965, Qupperneq 33
LÆKNABLAÐIÐ
59
ÞaÖ er fróðlegt til saman-
burðar að geta algengustu dán-
arorsaka meðal landsmanna í
heild, og er þá stuðzt við Ileil-
brigðisskýrslur 1953—1961. Röð
þeirra er nokkuð sú sama öll
árin, og er árið 1958 valið, með
því að það er næst miðbiki 12
ára tímabilsins, sem áður var
getið. Það ár lélust á öllu land-
inu 1165 manns, og skiptust
dánarorsakir, þegar taldar eru
í röð fimm hinar algengustu,
eins og sýnt er á 4. töflu.
4. TAFLA.
Algengustu dánarmein landsmanna 1958.
Hjartasjúkdómar........... 301 eða 26% allra mannsláta
Illkynja æxli , 210 — 18% — •
Heilablóðfall . 167 — 14.3% — —
Lungnabólga , 100 — 8.6% — —
Slys (önnur en sjálfsmorð) 78 — 6.7% — -—
Slvsfarir eru tíðasta dánaror-
sök meðal drykkjumanna, ef
marka má þau takmörkuðu
gögn, sem hér eru fvrir hendi.
Virðast þær fjórum sinnum al-
gengari sem dánarorsök meðal
drykkjumanna en landsmanna
í lieild. Slysin ber að með ýms-
um hætti, svo sem 5. tafla sýnir.
5. TAFLA.
Dauðaslys drykkjumanna.
Drukknun ........ 13
Fall, bylta ..... 10
Eitrun ........... 5
Köfnun............ 2
Umferðarslvs .... 1
Voðaskot ......... 1
Bruni ............ 1
Líkamsárás....... 1
Vélarslys ........ 1
Týndur ........... 1
Um slysadrukknanir skal tek-
ið fram, að nokkrir menn far-
ast með skipum sínum á rúm-
sjó og aðra tekur út. Sumir
drukkna við bryggjur eða finn-
ast í flæðarmáli, og um einn
segir sjónarvottur, að hann hafi
gengið fvrir borð á skipi sínu
i drykkjuóráði, þrátt fyrir að-
gæzlu, sem liöfð var á honum.
Slvsahylturnar flokkast flest-
ar ýmist sem fall á einum fleli
eða sem bylta í stiga.
Slysaeitranirnar fimm voru
af völdum þessara efna: Ethyl-
alcohol, methanol, kolsýringur
(CO), trichloraethylen og tetra-
chlorid (hreinsivökvi).
Sjálfsmorð virðast áberandi
tið meðal drykkjumanna. Þau
skipa fjórða sætið á listanum
og nema 13% allra dánaror-
saka. Ef ]>etta er borið saman
við heildartölur samkvæmt
Heilbrigðisskýrslum, er munur-
inn mikill. Árið 1958 voru
sjálfsmorð óvenjufá í landinu,