Læknablaðið - 01.12.1965, Síða 34
60
LÆKNABLAÐIÐ
samtals níu eða 0.8% allra dán-
arorsaka. Á tímabilinu 1953—
1961 var árleg tala þeirra frá
níu upp í 23. Flest urðu árið
1955, en meðaltal þeirra þetta
árabil er 15.4. Á þessum níu ár-
um verða 140 sjálfsmorð, og er
það 1.3% allra mannsláta. Sam-
kvæmt því er sjálfsmorð tíu
sinnum algengara meðal
drykkjumanna en landsmanna
í heild. 6. tafla sýnir, til hverra
örþrifaráða gripið var.
6. TAFLA.
Sjálfsmorð drykkjumanna.
Svefnlyf ......... 9
Henging .......... 3
Skotvopn ......... 2
Eggjárn .......... 1
Drekking ......... 1
Fall úr glugga ... 1
17
Skýrsla þessi um dánarmein
drykkjumanna er fyrst og
fremst reist á dánarvottorðum.
Krufning var gerð á 89 líkanna,
svo að greining meina hlýtur
að teljast sæmilega örugg.
Skyndidauði er algengur með-
al drykkjumanna. Af þeim 131,
sem hér er skýrt frá, lézt 81
snögglega eða innan fárra
klukkustunda (slys, hjarta-
dauði, sjálfsmorð). Að 35 var
komið látnum, ýmist innan
dyra eða utan, og um 31 verð-
ur með vissu sagt, að þeir voru
ölvaðir við andlátið, þótt senni-
lega hafi þeir verið fleiri.
Um einstæðingsskap og aðra
ógæfu þessara mann bera eftir-
farandi ummæli vitni, en þau
er að finna meðal margra svip-
aðra í dánarvottorðum þeirra:
Fannst látinn í íbúð sinni
liggjandi á gólfinu. — Fannst
látinn í rúnii sínu eftir þriggja
vikna drykkjuskap (hauskúpu-
brot og heilasköddun).—Fannst
látinn í herskála. — Hafði
drukkið í sjö daga samfleytt,
er hann fannst látinn í rúmi
sínu. —- Ilinn látni fannst ör-
endur í herbergi sínu, og var
líkið mjög farið að rotna, þcg-
ar að var komið. — Fannst
látinn í vinnustofu sinni. —
Fannst brunninn á verkstæði
sínu. — Fannst hengdur í íbúð
sinni h. 2. marz, en hefur senni-
legt hengt sig 9. febrúar. — Var
tekinn ölvaður á götu af lög-
reglu, settur í kjallara hennar
og fannst þar látinn morgun-
inn eftir. — Mikið ölvaður, er
liann lézt liggjandi á dívan í
útiskúr við Sænska frystihúsið.
Þetta eru aðeins sýnishorn
þess, sem dánarvottorð tilgreina
um aðstæður, þegar dauðann
bar að. Loks skal þess getið, að
þótt einn sjúkdómur, t. d.
lungnabólga, berkjubólga eða
lungnalopi, sé í vottorði talinn
aðaldánarorsök, eru oft fleiri
sjúkdómar nefndir samverk-
andi að dauðanum. Er þá al-
gengast, að um sé að ræða bráð
eða langvinn áfengisáhrif eða
skemmdir í líffærum, svo sem