Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1965, Side 66

Læknablaðið - 01.12.1965, Side 66
88 LÆKNABLAÐIÐ aðallega áberandi af hálfu Suð- ur-Ameríku-, Asíu- og Afriku- ríkja. í Ijós kom við áfram- haldandi umræður um skipu- lagsmálin og upplýsingastarf- semina, að fjárhagur samtak- anna er mjög þröngur, og má segja, að þau liafi barizt við stöðugan fjárskorl og yfirvof- andi gjaldþrot nú um margra ára skeið. Augljóst var, aðildarfélög þróunarlandanna höfðu mjög mikinn áhuga á að eiga sterkt alþjóðafélag að bakhjarli, enda eru vandamál þau, er kollegar í þessum löndum eiga við að slríða svo risavaxin, að erfitt er að gera sér grein fyrir þeim af afspurn einni saman. Við athugun, sem Norður- landafulltrúarnir gerðu sín á milli, kom í ljós, að allur skrif- stofukostnaður samtakanna, og þár innifalinn sá kostnað- ur, er færi til upplýsingaþjón- ustu og skipulagsstarfa, var að- eins lítill hluti af sams konar kostnaði sænska læknafélags- ins eins saman, og aðeins um 10 sinnum meiri en samanlagð- ur samskonar kostnaður L.R. og L.l.! Eitt af aðalverkefnum þings- ins var lagabreyting, er fól i sér möguleika fyrir félagið að verða skattfrjálst í New York- ríki, svonefnd „Incorporation". Höfðu framámenn uppi mikil og fögur orð um, hve mjög Iiagur samtakanna myndi batna við þelta, en þá yrðu um leið allar gjafir til félagsins skattfrjálsar. Var talið, að sam- tökunum mvndi herast stórfé að gjöf frá ýmsum fyrirtækj- um og einstaklingum, jafnskjótt og það væri orðið „incorpo- rated“ í New York. Þótti mönn- um þetta harla gott og voru samþvkkir ráðstöfunum þess- um; allir nema Frakkar, sem voru á móti flestu á þinginu, eins og þeir eru vanir. Af hálfu Norðurlandanna var flutt tillaga til lagabreyt- ingar, þannig, að alþjóðaþing- um félagsins yrði fækkað og þau aðeins haldin annað hvert ár. \roru það Finnar, sem mæltu fyrir tillögunni, og var hún kol- felld. Var það mál Norður- landabúa, að fremur myndi mega vænía árangurs af starf- semi samtakanna, ef mál væru hetur undirhúin, rcynt að ein- heita sér að ákveðnum verk- efnum á milli þinga og nota þá til þess tillög aðildarfélaga ásamt þeim fúlgum, er nú væri húizt við, að kæmu inn með skipulagsbreytingunni. Aðra daga þingsins voru fluttar skýrslur ýmissa undir- nefnda, og verð ég því miður að segja, að efni þeirra og nið- urstöður voru ekki í neinu réttu hlutfalli við orðamergð. Á óformlegum fundi Norður- landafulltrúanna var samþykkt að leggja til við læknafélög Norðurlandanna, að athugaðir

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.