Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1965, Side 67

Læknablaðið - 01.12.1965, Side 67
LÆKNABLAÐIÐ 89 yrðu möguleikar á því að senda framvegis sameiginlega einn eða tvo fulltrúa á þing þessi, þar til séð yrði, hvort skipulags- breyting sú, er fyrirhuguð er í framhaldi af áðurgetinni „In- corporation“, myndi auka starfshæfni samtakanna. I samhandi við ráðstefnuna var haldinn fundur ritstjóra læknatímarita, og voru þar flutt mörg ágæt erindi um starfsvið og skipulagningu læknarita. Enn fremur voru kvikmyndasýningar. Minnist ég þar sérstaklega tveggja ágætra kvikmvnda; annarrar frá Houston, Texas, um skurð- aðgerðir við forhólfshjartagalla, en hin, „Multiple Injuries“, var hrezk, um skipulagningu slysaþjónustu og slysameðferð. Loks var mjög vel sviðsett sýning í húsakynnum brezka læknafélagsins, þar sem sýnd- ar voru niðurstöður nokkurra læknisfræðilegra rannsókna (Scientifie Exhibition). Vil ég nefna þaðan sýningu frá Bristol Royal Hospital, er nefndist „The Ivillers“ og fjallaði um grein- ingu og meðferð á abdominalia acuta. Við athugun á efni þeirr- ar deildar varð manni ljóst, að abdominalia acuta er vissulega enn þá einn af meiri háttar drápsvörgunum, þrátt fyrir allar framfarir síðustu áratuga í handlækningum, deyfingar- fræði og meinefnafræði. Önnur mjög merkileg sýn- ing var þarna frá Radeliffe In- firmary í Oxford, nefnd „Car- diac Arrest Acidosis: Simple to Treat, but Vital to Life.“ Þar mátti sjá, að acidosis kemur þegar í stað í öllum tilfellum hjartastöðvunar, en mjög auð- velt að lækna hana með bi- carbonat-upplausn, sé sú lækn- ing hafin samstundis. Loks má nefnamerkasýningu, sem var sameiginlega á veg- um Queen Elisabeth Hospital, Birmingaham, og University Hospital, Columhus, Ohio, um greiningu og meðferð á Syn- droma Zollinger-Ellison.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.