Læknablaðið - 01.12.1969, Blaðsíða 64
232
LÆKNABLAÐIÐ
Við endurskoðun samnings lækna við Landakotsspitala voru gerð-
ar eftirfarandi breytingar:
í 1. lagi: í stað þess að spítalinn greiddi læknum aðeins fyrir sjúkl-
inga frá Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Garðahreppi og Hafnar-
firði, greiðir hann nú læknum fyrir sjúklinga, hvar sem er á landinu.
í 2. lagi; Gæzluvaktargreiðsla hiækkaði úr 650 í 715 til samræmis
við hina spítala bæjarins.
í 3. lagi: Taxti Læknafélags Reykjavíkur frá 1968 var nú lagður
til grundvallar í stað gjaldskrár 1966, en þó gefinn 21% afsláttur.
Með tilliti til hins erfiða fjárhagsástands í landinu þótti ekki rétt
að þvinga fram beinar kauphækkanir. Hins vegar var lögð á það megin-
áherzla á öllum fundum við ríki og Reykjavíkurborg að fá breytingu
á 50 stunda ákvæðinu, sem á sínum tíma var sett inn í samningana og
allir gerðu sér Ijóst þá, að ekki ætti að nota í framkvæmd. Þessu
ákvæði um 50 stunda vinnuviku hefur verið óspart beitt af atvinnu-
rekendum, og hlýtur það að verða megin-viðfangsefni launanefndar á
næsta ári að knýja fram breytingu á þessari grein.
Þá var og farið fram á við ríkisspítalana, að ákvæði væri í samn-
ingum um, að þeir réðu einungis félaga Læknafélags Reykjavíkur, en
því var þverneitað. Ákvæði þetta er þegar komið inn í samningana við
Reykjavíkurborg. Lög félagsins gera ráð fyrir því, að slíkt ákvæði sé í
öllum samningum, sem félagið gerir. Verður því fast fylgt eftir, þar til
úr rætist.
Gjaldskrár- í gjaldskrárnefnd er Guðmundur Jóhannesson formaður,
nefnd Guðmundur Björnsson og Jósef Ólafsson. Gjaldskrár-
nefnd var falið fyrr á árinu að endurskoða gjaldskrána
og gera tillögur að leiðréttingum og samræmingum á greiðslum á þeirri
forsendu, að mönnum með sambærilega menntun bæri sömu laun fyrir
sama tíma.
Læknafélag fslands hafði ráðgert svipaða endurskoðun á sinni
gjaldskrá. Snemma á árinu var því farið að ræða um möguleika á, að
gjaldskrárnefndir félaganna sameinuðust til þess að vinna að sameigin-
legri gjaldskrá. Gjaldskrárnefnd Læknafélags Reykjavíkur var fyrr
tilbúin til starfa, og hélt hún nokkra fundi, áður en gjaldskrárnefnd
Læknafélags íslands var formlega sett af stað. Leitað hefur verið upp-
lýsinga um gjaldskrá lækna á hinum Norðurlöndunum. Sérfræðinga-
félögum hefur verið skrifað og óskað eftir tillögum um breytingar á
gjaldskránni. Formlegu sambandi milli gjaldskrárnefnda beggja félag-
anna hefur nýlega verið komið á.
Óvíst er enn, hvort unnt verður að leggja fram nýja, endurskoðaða
og samþykkta gjaldskrá til samninga á vori komanda.
Sjúkrahúsmála- í nefndinni eiga sæti Árni Björnsson formaður, Ás-
nefnd mundur Brekkan og Tómas Á. Jónasson.
Nefndin hefur haldið allmarga fundi á árinu, en þó
ekki reglulega.
Starfsemi nefndarinnar hefur aðallega beinzt að þeim þætti sjúkra-
húsmála, er varðar samstarf sjúkrahúsa á Reykjavíkursvæðinu. Hefur