Læknablaðið - 01.12.1969, Page 74
240
LÆKNABLAÐIÐ
Námssjóður Á stórráðsfundi 4. nóvember 1968 var samþykkt
sjúkrahúslækna eftirfarandi reglugerð fyrir sjóðinn:
1. gr.
Sjóður þessi er stofnaður vegna þeirra lækna, sem sögðu sig út úr
launakerfi opinberra starfsmanna í maí 1966. Meðlimir sjóðsins skulu
vera þeir sérfræðingar, sem starfa við ríkisspítalana og vinna eftir
svonefndum eyktasamningi.
Lausráðnum læknum, sem vinna eftir sams konar samningi, er
heimil þátttaka. Öllum öðrum læknum er heimil þátttaka í samráði við
stjórn sjóðsins.
2. gr.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja lækna til náms erlendis. Rétt til
styrks úr sjóðnum eiga þeir læknar, sem greiða framlag til sjóðsins.
3. gr.
Tekjur sjóðsins eru þessar:
1. Ákveðinn hundraðshluti (3—5%) af fastalaunum þeirra lækna,
sem um getur í 1. gr.
2. Vextir af innstæðu sjóðsins. Eignir sjóðsins skal jafnan ávaxta
í bönkum.
3. Gjafir og hvers konar framlög önnur, sem sjóðnum kunna að
Stjórn sjóðsins skulu skipa þrír menn. Skal einn tilnefndur af
stjórn læknaráðs Landspítalans, annar af stjórn Læknafélags fslands
og sá þriðji af stjórn Læknafélags Reykjavíkur, og skal hann vera
formaður.
Stjórnarmenn skulu kosnir til 3ja ára í senn. Starfstímabil stjórn-
arinnar telst frá 1. apríl. Sömu aðilar skulu kjósa einn mann, hver, til
vara. Varamaður tekur sæti, ef aðalmaður forfallast.
Hina fyrstu stjórn skal kjósa, þegar samþykktir þessar eru stað-
festar, og tekur hún til starfa strax.
5. gr.
Stjóm Læknafélags Reykjavíkur og læknaráð Landspítalans skulu
kjósa sinn endurskoðandann hvort til þriggja ára.
6. gr.
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Stjórn sjóðsins skal leggja
reikninga sjóðsins til endurskoðunar eigi síðar en 1. febrúar ár hvert.
Síðan skulu endurskoðendur endurskoða reikninga og árita þá með
athugasemdum sínum, og skulu þeir lagðir fyrir aðalfund L.R. ár
hvert. Sjóðurinn greiðir allan kostnað af starfsemi sinni, og er honum
heimilt að semja við skrifstofu læknafélaganna um bókhald og dag-
legan rekstur og vörzlu sjóðsins.
7. gr.
Sjóðsstjórn skal halda fund annan hvern mánuð og afgreiða þá
þær styrkumsóknir, sem fyrir liggja hverju sinni. Sérstaklega skal