Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1973, Page 22

Læknablaðið - 01.08.1973, Page 22
144 LÆKNABLAÐIÐ BRé-p tiL BLacísirjs Hr. ritstjóri. í tilefni af nýjum þætti í blaði yðar, 59. árg., 3.-4. tölublaði, sem ber yfirskriftina „Frá heilbrigðisstjórn“ bið ég yður að birta eftirfarandi. Ég fagna því, að blaðið skuli hafa tekið upp bessa nýbreytni og er sannfærður tun, að þetta er æskileg leið til þess að styrkja samstarf lækna og heilbrigðisyfir- valda og hvetja lækna til þess að taka virkari þátt í umræðum og mótun heií- brigðismála heldur en verið hefur. Raunav hefði ég óskað eftir, að blaðið gengi lengra og réði ,,part-time“ blaðamann til þess að sjá um, að þessum málum ásamt fleirum séu gerð sem bezt skil í Læknablaðinu. Má þar til nefna hugmyndir leikmanna í strjálbýlinu um læknaskipunarmál og læknisþjónustu, hugmyndir, sem fyrirtæki hafa um læknaþjónustu og tryggingarmál, lækninga- og heilbrigðismenntun almenn- ings, stjórnun spítalanna og rekstur svo eitthvað sé nefnt. í fyrrnefndri grein í blaði yðar lýsir PállSigurðsson ráðuneytisstióri með ágæt- um því helzta, sem er að gerast í fram- kvæmdum heilbrigðismála. í síðustu tveim málsgreinunum er að finna mikinn fróðleik fyrir þá, sem hafa áhuga á því, sem verið hefur að gerast í málefnum geðsjúkra að undanförnu. Þar segir frá byggingu deildar drykkjusjúklinga við Vífilsstaðaspítala, sem byggð skal fyrir fé úr Gæsluvistarsjóði og verða lokið á ár- inu 1974, Þar segir einnig frá bví, hvernig fé Gæsluvistarsjóðs hefur undanfarið ver- ið varið til byggingaframkvæmda við Kleppsspítalann. Þar hefur t. d. verið komið fyrir göngudeild, rannsóknarstof- um, vinnu- og viðtalsstofum lækna, hjúkr- unarkvenna, félagsráðgjafa, sálíræðinga, kennslustofu o. s. frv. Þá segir einnig frá geðdeild Landspítala. Það er mál margra, að vinnuaðferðir þess hóps, sem stendur að byggingu geð- sjúkrahúss á lóð Háskólans og Landspítal- ans, séu því líkastar sem verið sé að fella veruleikann að skoðunum og óskum hóps- ins, en ekki eins og leitast sé við að haga gjörðum eftir skoðunum, sem byggðar eru á könnun veruleikans. í starfi læknisins mætti líkja þessu við lækni, sem héldi til streitu einhverri uppáhaldsgreiningu án tillits til einkenna sjúklings síns. Ef fjárbörf téðrar byggingar er skoðuð með hliðsjón af stærð íslenzku þjóðarinn- ar, verður fyrirtækið álíka mikið miðað við fólksfjölda eins og fyrirhugaðar fram- kvæmdir Breta að grafa göng undir Erm- arsund. Bretar hafa verið að velta þessu fyrir sér af og til í tæpar tvær aldir og lítur nú helzt út fyrir, að af framkvæmd- um verði, ef marka má þá geysilegu undir- búningsvinnu, sem verið hefur í gangi undanfarin ár. Þótt svokölluð Byggingar- nefnd Geðdeildar Landspítalans, undir forsæti Tómasar Helgasonar prófessors, hafi verið fljót að átta sig á hlutunum, táknar það ekki endilega, að hún hafi kynnt sér málin miðlungi vel, og má eins ætla að ástæðan fyrir hröðum störfum nefndarinnar sé einmitt víðtæk gagnasöfn- un, vel unnin, sem nefndin hefur haft greiðan aðgang að. Ástæðan fyrir tor- tryggni í garð geðdeildarhópsins er kann- ske einmitt sú, að niðurstöður af gagna- söfnun og rannsóknum nefndarinnar hafa hvergi verið birtar. Það einasta, sem birzt hefur, eru tölur erlendis frá, sem auðvit- að byggja á erlendum staðháttum og skipulagi, og öðrum efnahag. I Ijósi þess, er að framan greinir, vil ég nú biðja ráðuneytisstjórann að birta helztu niðurstöður af rannsóknum og gagnasöfnun téðrar nefndar. Spurningarn- ar, sem bíða svars, eru margar. Hver er t. d. skýrgreining nefndarinnar á geðsjúkl- ingi? Hvenær eru þeir taldir þurfa sjúkra- rúm? Hvernig skiptir hún þeim í skamm- vistar- og langvistarsjúklinga? Eru áfeng- issjúklingar flokkaðir sem geðsjúklingar

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.