Læknablaðið - 01.04.1975, Side 28
16
LÆKNABLAÐIÐ
TABLE 7
Follow up.
Number of cases Per cent
I. U. D. in situ without any complications 439 73.1
I. U. D. displaced 4 0.7
Spontaneous expulsion 26 4.3
Pregnant with I. U. D. 22 3.7
Extrauterine pregnancy 3 0.5
Salpingitis 2 0.3
Various complications: Cervical erosion 48 8.0
Vaginal discharge 49 8.2
Pelvic pain et al. 7 1.2
Total 600 100.0
frá I.U.D. komu fram hjá 5 konum (0,8%).
Tafla 7 gefur upplýsingar um afdrif og
ástand við eftirskoðanir. Vakin skal at-
hygli á, að I. U. D. brást hjá 22 konum,
eða 3.7%. Er þessi tala fljótt á litið í
haerra lagi, því að hjá mörgum höfundum,
sem gert hafa upp árangur af notkun
Lippes loop af ofannefndum stærðum, hef-
ur árangur verið heldur betri, eða 2.4—
2.6% kvenna hafi orðið vanfærar með
þessar tegundir. Ef hins vegar er miðað
við lengd notkunar, verður niðurstaðan
önnur, (sjá síðar).
Tafla 7 sýnir einnig, að 26 konur hafa
misst I. U. D. í flestum tilvikum urðu þær
varar við það og komu fljótlega í skoðun
og fengu nýja, eða aðrar varnir. Þó kom
það fyrir, að konur misstu I. U. D. án þess
að verða þess varar.
Hjá þrem konum sást I. U. D. í leghálsi
við skoðun og hjá einni fór Lippes loop í
gegnum legvegg konunnar út í kviðarhol.
Er því tilfelli lýst í áðurnefndri grein í
Læknablaðinu (Pétur H. J. Jakobsson
1969). Alls hefur I. U. D. farið úr skorð-
um eða gengið niður hjá 30 konum (5%),
sem er svipuð niðurstaða og hjá öðrum
höfundum, þó í hærra lagi. Tvær konur
fengu meiri háttar bólgu í móðurlíf (salpin-
gitis). Er erfitt að meta hvort I. U. D. hef-
ur valdið.
Utanlegsfóstur komu fyrir hjá þrem
konum, sem er sama tala og getið var um
áður. Þ. e. af þessum 600 konum höfðu
TABLE 8
Reasons for removal.
Number of women Per cent
Planning pregnancy 21 3.5
Excessive bleeding 67 11.2
Other complications 6 1.0
Without apparent reason At operation or other reasons that make anti- 17 2.8
conception unnecessary Woman wanted another 6 1.0
type of anticonception Removed for a period. 19 3.2
Same type reinserted Removed for a period. Another type of I. U. D. 26 4.3
inserted 13 2.2
Total 175 29.2
þrjár haft utanlegsfóstur áður en þær
fengu I. U. D.
Þessar niðurstöður eru sambærilegar við
reynslu annarra, að tíðni utanlegsþykktar
sé sú sama hjá konum með I. U. D. og hjá
konum almennt. Um önnur minni eftir-
köst er engu við að bæta, útferð, sár á
leghálsi og aðrir kvillar eru af svipaðri
tíðni hjá þessum 600 konum og almennt má
reikna með hjá sama fjölda kvenna, sem
ekki notar slíkar varnir.
AFDRIF
I. U. D. var fjarlægt um tíma, eða hætt
notkun hjá 175 konum. Er ástæðna getið
í Töflu 8.
Af þeirri 21 konu, sem I. U. D. var tek-
ið hjá, vegna þess, að konan vildi eignast
barn á ný, höfðu 16 orðið barnshafandi
við at'hugun, þar af 13 innan þriggja mán-
aða. Hjá hinum fimm var aðeins stuttur
tími liðinn frá töku I. U. D. Reynsla ann-
arra hefur einnig sýnt, að lítil hætta virð-
ist á ófrjósemi eftir notkun I. U. D.
Eins og fram kemur í Töflu 8, var I. U.
D. tekið vegna blæðinga hjá 67 konum
(11.2%). Við nánari eftirgrennslan var hér
ekki alltaf um miklar blæðingar að ræða
og sjaldan á fyrstu árum reynt að draga
úr blæðingum áður en I. U. D. var fjar-