Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1975, Side 36

Læknablaðið - 01.04.1975, Side 36
18 LÆKNABLAÐIÐ ALMENNAR UMRÆÐUR UM NOTKUN I. U. D. Þegar athugunum lauk árin 1968 og 1969 höfðu þessar 600 konur haft I. U. D. í samtals 15.422 mánuði, eða tæpa 26 mán- uði (25.7) hver kona að meðaltali. Við mat á gildi getnaðarvarna nota flestir höfundar Pearl’s formúlu endurskoðaða af Stix- Notestein, en hún gefur upp tíðni getnaðar per 100 ár, (þ. e. tíðni getnaðar hjá 100 konum, sem nota ákveðna getnaðarvörn í eitt ár). Fjöldi getnaðar x 1200 Xli ■ | " ■ Fjöldi notkunarmanaða R = getnaðartíðni (pregnancy rate) Tafla 10, sem sænski læknirinn Ulf Borell birti 1966, sýnir gildi getnaðar- varna af ýmsum tegundum skv. PearTs formúlu. Við athugun hjá þessum 600 konum urðu 22 konur vanfærar, auk þriggja, sem fengu utanlegsfóstur, eða 25 alls. Skv. PearTs formúlu hefur getnaðar- tíðni því verið: 25 x 1200 15422 = 1.94 en eins og sjá má í Töflu 10 er getnaðar- tíðni við notkun I. U. D. frá 0.9—6.0, skv. niðurstöðum frá ýmsum höfundum (Tiet- ze, et al., 1964, 1965), sem kannað hafa árangur margra tegunda slíkra getnaðar- varna. Gefur talan 1.94 til kynna, að hjá 100 konum, sem notað hafa I. U. D. í eitt ár hafa tæpar tvær orðið barnshafandi á þeim tíma. LOKAORÐ Skoðanir hafa verið skiptar um hve lengi konur megi hafa leglægar getnaðar- varnir. Höfundar hafa fylgt þeirri reglu að leyfa konum að hafa sömu tegund árum saman, þegar engar kvartanir hafa komið fram. Þannig eru margar þeirra kvenna, sem fengu I. U. D. 1963 og 1964 með sömu tegund ennþá, án hvíldar, og virðist eng- in ástæða til þess að skipta um skv. reynslu þeirra, sem lengst hafa haft I. U. D. í notkun. Við langa notkun hafa í stöku tilfellum komið harðar ójöfnur á yfirborð I. U. D. Howard (1971) hefur lýst slíkum út- fellingum og fundið, að hér var um kalk- sölt og mucopolysaccharida að ræða. Sýndi höfundur fram á, að ekkert samband væri á milli slíkra saltmyndana og blæðinga eða annarra fylgikvilla. Dregin hafa verið fram helstu atriði, sem eftirrannsóknir á þessum 600 konum gefa tilefni til. Leglægar getnaðarvarnir eru nú notaðar í milljónatali víðsvegar í heiminum. Hefur gildi þeirra einkum verið haldið á lofti hjá vanþróuðum þjóðum, sem berjast við fólksfjölgunarvandamál. Ekki síst, þar sem ómögulegt reynist að kenna fólki að nota varnir, sem byggja á skilningi þess sjálfs á réttri notkun. Eftir 10—15 ára reynslu hafa leglægar varnir sannað gildi sitt, einnig meðal þjóða, sem betri aðstöðu hafa til þess að nýta ýmsar aðrar varnir, sem svipað ör- yggi gefa. Engar aðvaranir hafa enn komið fram um hættulegri eftirköst en af öðrum vörn- um. T. d. hefur tíðni á krabbameini í legi eða leghálsi ekki aukist hjá konum með I. U. D. Meðan enn hafa ekki komið fram getn- aðarvarnir, sem meira öryggi gefa, en þær, sem nú eru í notkun, má vænta þess, að I. U. D. verði notað áfram í vaxandi mæli meðal þjóða heims. HEIMILDIR 1. Borell, U. Contraceptive Methods — Their safety, efficacy and acceptability. Acta Obst. & Gyn. Scand. Vol XLV, Supplement I, 1966. 2. Family Planning Digest Vol. 1, 1972. 3. Iloward, G. Significance of Calcium deposits occurring on Intrauterine devices. The Jour- nal of Obst. & Gyn. Brit Cweltli. 78; 861— 862, 1971. 4. International Planned Parenthood. Medical Bulletin, Vol. 1—7 1966—1973. 5. Int. Planned Parenthood — News, 1966— 1969. 6. Pétur H. I. Jakobsson. Getnaðarvarnir í leg- holi. Læknabl. 55. árg. 4. hefti, 1969. 7. Tietze, C. Manual of Contraceptive Prac- tice (Ed. M. C. Calderone). Williams Wilkins Comp., Baltimore 126, 1964. 8. Tietze, C. and Lewil, S. Intrauterine Con- traception (Eds. S. J. Segal, A. L. Southam

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.