Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1975, Side 38

Læknablaðið - 01.04.1975, Side 38
20 LÆKNABLAÐIÐ NABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Lxknafclag íslands' og LTR II Læknafélag’ Reykjavíkur * 61. ARG. — JAN.-APR. 1975 ÚTGÁFA LÆKNABLAÐSINS Við upphaf 61. árgangs Læknablaðsins er enn ástæða til hugleiðinga um stöðu blaðs- ins og framtíðarhorfur. Sextugasti árgangur blaðsins ber því miður ekki þann glæsibrag, sem slíkum tímamótaárgangi hæfir. Urðu ýmis skakkaföll til að tefja mjög fyrir út- gáfu blaðsins og það svo mjög, að fyrir- hugað afmælisblað, sem ætlað er að vera síðasta hefti 1974, er enn í burðarliðnum, en þó væntanlegt bráðlega. Ýmsum hefur gramizt seinagangur þessi á útgáfu blaðsins, og er það engin furða. Rit- stjórar blaðsins hafa fyrir þetta sætt nokkru ámæli og jafnvel verið sakaðir um leti. Þykj- ast þeir þó hafa ýmislegt sér til málsbóta. Mikilvægasta orsök tafa á útgáfu blaðsins er án efa prentaraverkfallið á síðastliðnu ári. Áhrifa slíks verkfalls gætir ekki aðeins meðan á því stendur, því að meðan það varir, hrannast upp óafgreidd verkefni hjá prentsmiðjunni, sem lengi er verið að vinna úr. Pegar svo loks tók að rofa til, skullu á sumarfrí í prentsmiðju og bókbandi. Jafnvel ritstjórar blaðsins þóttust eiga rétt á sínu sumarfríi. Hafi menn þetta allt í huga, má það kannske verða til að sefa nokkuð gremju sumra. Hitt verða svo ritstjórar enn að undir- strika, að regluleg útkoma blaðsins er nær óhugsandi meðan útgáfa þess er íhlaupa- vinna tveggja manna og blaðið hlýtur alltaf að sitja á hakanum fyrir brýnni verkefnum þeirra. Það hlýtur að vera framtíðarkrafa, að blaðið hafi fastan starfsmann, er sinnt getur útgáfunni ótruflaður. Enn er svo eitt, sem ógnar útgáfu blaðsins í æ ríkara mæli, og er það fjárskortur. Út- gáfukostnaður hefur vaxið ógnarhröðum skrefum vegna verðbólgunnar. Jafnvel sú ánægjulega staðreynd, að fræðigreinar ber- ast nú blaðinu í æ ríkara mæli, hefur í för með sér stóraukinn kostnað vegna dýrra myndamóta og töfluuppsetninga. Það er eng- in launung, að auglýsendur hafa borið blaðið uppi fjárhagslega. Sakir aukins útgáfukostn- aðar hefur orðið að hækka auglýsingaverð verulega undanfarið, en það hrekkur þó ekki til. Verður að treysta því, að auglýsendur sýni Læknablaðinu sama velvilja og ávallt á þessum erfiðu tímum, enda tvímælalaust, að auglýsingafé þeirra nýtist vart á áhrifa- meiri hátt en til auglýsinga í blaðinu, auk þess sem þeir styrkja jafnframt veigamik- inn þátt íslenzkrar læknisfræði. Það er von ritstjóra, að árið 1975 verði Læknablaðinu og læknastétt landsins gott ár. LÆKNAÞING Á undanförnum árum hefur færzt nokkuð líf í þinghöld lækna hérlendis. Fjölþjóðleg þing, einkum norræn, virðast nú árlegir við- burðir hér. Má þar t. d. nefna norræn þing barnalækna og svæfingalækna og fyrirhugað þing meltingarsérfræðinga. Þá er svo að sjá sem innlendir skurðlæknar og lyflæknar ætli að koma á reglulegum þingum, þar sem skurðlæknar hafa þegar þingað tvisvar, en lyflæknar einu sinni og munu aftur halda þing í júní n. k. í Bifröst. Hefur góður rómur verið gerður að þingum þessum og virðist almennur áhugi á að halda þeim áfram. Slíkt er ánægjuleg þróun og vonandi, að ekki verði lát á. íslenzkum læknum er mikill akkur í fjölþjóðlegu þinghaldi hérlendis og geta nú í auknum mæli aflað sér þekkingar- auka, sem þeir jafnan urðu áður að sækja um langan veg. Slíkir fundir hvetja íslenzka lækna til að vinna að vísindalegum verkefn- um og leggja niðurstöðurnar fyrir erlenda kollega sína, þar eð skömm er að því, að gestgjafarnir leggi ekkert af mörkum. Lengi eimir svo eftir af þeim áhuga og vísinda- anda, sem jafnan ríkir á þessum fundum. Galli er, að undirbúningur fjölþjóðlegra þinga lendir hér á fámennum hópi sérfræð- inga í viðkomandi grein. Hafa þeir kapp- kostað, að framkvæmd mótanna yrði þeim til sóma, enda hefur gestrisni íslendinga jafnan verið hælt. Þetta kostar þó, að undir- búendum gefst lítill tími til að vinna að

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.