Læknablaðið - 01.08.1977, Page 15
LÆKNABLAÐIÐ
131
þar til á gamals aldri og fylgikvillar hafa
komið fram.!' Á móti aukinni áhættu vegur
sú staðreynd, að sé aðgerð dregin, kunni
aðgerðar aldrei að verða þörf.9 Aðrir greina
frá um 1,1% allsherjar dánartölu við gall-
blöðruaðgerð.35 Hjá sjúklingum yfir 60 ára
aldri með steina í aðalgallgangi (chole-
dochus), var aðgerðardánartala um 5,5%
samanborið við 0,3% dánartölu sjúklinga
undir 60 ára aldri, sem undirgengust val-
aðgerð án fylgikvilla.33 Enn aðrir ihöfundar
greina aðeins frá einu dauðsfalli vegna
kransæðasjúkdóms eftir valaðgerð meðal
134 sjúklinga með þögla steina.8 í rannsókn
frá Norðurlöndum urðu engin aðgerðar-
dauðsföll meðal 95 sjúklinga, sem undir-
gengust aðgerð vegna þögulla gallsteina og
gallsteina með væg, en dæmigerð ein-
kenni.20 í síðastnefndri rannsókn reyndist
aðgerðardánartala a.m.k. 2,7% og mikið
aukin tíðni dauðsfalla kom fram með
hækkandi aldri eða allt að 7,2% meðal
sjúklinga yfir 60 ára aldri.20
Líftryggingarfélagið „The Metropolitan
Life Insurance Company" telur meðalár-
legan dauða af gallblöðrusjúkdómum 3,8 á
hverja 100.000 hvíta menn og konur á aldr-
inum 35—-74 ára á tímabilinu 1960—1962.23
Dauðsföll við gallblöðrutöku aukast með
hækkandi aldri, einkum eftir 65 ára aldur-
inn, og fylgikvillar svo s.em bráð gall-
blöðrubólga, briskirtilbólga og gula orsak-
ar margfalda áhættu jafnvel í höndum
beztu skurðlækna.23
í okkar rannsókn kom fram að aðeins
einn sjúklingur af 127 dó af völdum gall-
blöðruaðgerðar eða 0,7%. Þessi sjúklingur
var 72 ára karlmaður, undirgekkst gall-
blöðruaðgerð vegna bráðrar gallblöðru-
bólgu og lézt á 3. degi eftir aðgerðina af
aðgerðarfylgikvilla. Á sama tímabili dóu
aðrir 26 sjúklingar, sem fengu ekki ein-
kenni frá sínum þöglu gallsteinum og lét-
ust af óskyldum orsökum öðrum en gall-
blöðrusj úkdómi.
Mcðferð
Nú verður drepið á hinar mismunandi
skoðanir varðandi meðferð á þöglum gall-
steinum.
Þrátt fyrir þá staðreynd, að rúmlega
50% af sjúklingum með þögla gallsteina
fá aldrei einkenni og þrátt fyrir mjög lága
dánartölu þeirra, sem fá einkenni og gang-
ast undir aðgerð eftir það, telja margir,
að skera eigi alla með slíka steina. Fjöl-
margir, einkum skurðlæknar, svo sem Col-
cock, Dawson, Glenn, Lund og Wenkert
mæla allir með valaðgerð snemma við
þöglum gallsteinum til að fyrirbyggja
framtíðarkrankleika (morbiditas) og bera
við lágri dánartölu við slíka valaðgerð.8 11
14 15 20 35 pessir höfundar halda því fram,
að fyrirbyggjandi aðgerðir hafi í för með
sér lægri dánartölu en íhaldsmeðferð. Com-
fort og Wilson mæla með valaðgerð.9 Hin-
ir siðastnefndu telja áhættuna við valað-
gerð a.m.k. 0,5% samanborið við 3%, ef
aðgerðin er gerð eftir að fylgikvillar gera
vart við sig eða ellihrumleiki er kominn í
spilið, en gegn þessari áhættu kemur á
vogarskálina sá möguleiki, að sé valaðgerð
frestað, kunni aðgerð aldrei að verða þörf,
þ.e. í rúmlega helming sjúklinga.9 Elmslie
telur, að ekki sé unnt að beita almennri
reglu gagnvart öllum gömlum sjúklingum
með þögla gallsteina, sem eru að öðru leyti
sæmilega hraustir.12 Sami höfundur veltir
því fyrir sér, að ef ætti að skera alla slíka
sjúklinga, ættu áhangendur þess að láta
fara fram árlega gallmyndatö'ku hjá öllu
öldruðu fólki í leit að gallsteinum.12
Krabbamein og gallsteinar
Krabbamein í gallblöðru hefur verið
tekið sem gild ástæða til fyrirbyggj andi
gallblöðrutöku úr sjúklingum með gall-
steina. Tíðni krabbameins í gallblöðru
hjá sjúklingum með gallsteina Ihefur ver-
ið talin um 1%.13 32 Aðrir telja, að fyr-
ir aldurs'hópinn 40—49 ára séu líkurn-
ar á gallblöðrukrabbameini hjá sjúk-
lingum með gallsteina um 1,4% og áhætt-
an við valaðgerð í sama aldurshópi sé
minni en 1%.21 í hærri aldursflokki eykst
hins vegar aðgerðaráhættan um leið og
líkurnar á krabbameini réna.21 Af þessu
virðist, að líkurnar á gallblöðrukrabba-
meini séu svo litlar, að þær réttlæti ekki
einar sér valaðgerð fyrir alla aldursflokka.
Á hinn bóginn ýtir sú áhætta ásamt öðrum
undir valaðgerð í aldursflokknum 40—49
ára.710 21
í okkar hópi hafði enginn sjúklingur gall-
blöðrukrabbamein. Ralston og Smith telja,
að fjarlægja ætti gallblöðru með þögla